Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 86
Þjálfarar og forsvarsmenn leikmanna FH og Fjölnis búast við spennandi leik í
úrslitum VISA-bikarsins. Fyrir leikinn eru FH-ingar þó taldir sigurstranglegri.
FH og Fjölnir mætast í
úrslitaleik VISA-bikars karla í
knattspyrnu á Laugardalsvelli í
dag kl. 14.00.
FH-ingar, sem rétt misstu af
deildartitli í ár, hafa þrisvar sinn-
um áður leikið til úrslita í bikar-
keppninni, árin 1972, 1991 og 2003,
en aldrei hampað bikarnum.
Fjölnismenn, sem spiluðu í fyrstu
deildinni í sumar, hafa hins vegar
aldrei áður leikið til úrslita í bik-
arnum og eru í raun að stórbæta
besta árangur sinn í keppninni
fram að þessu, sem var áður 32-
liða úrslit. Segja má því að bak-
grunnur liðanna sé ólíkur.
„Þetta er auðvitað mikið ævin-
týri fyrir okkur að komast í þenn-
an leik og menn áttu kannski ekki
von á því fyrir mót að við yrðum í
þessari stöðu í dag,“ sagði
Ásmundur Arnarsson, þjálfari
Fjölnis sem kvaðst eðlilega vera
spenntur fyrir leiknum. „Leikur-
inn leggst rosalega vel í okkur og
ég tel að við séum alltaf líklegir
fram á við gegn hvaða liði sem er,
en í þessum leik þá mun væntan-
lega mikið mæða á vörninni og
möguleikar okkar felast fyrst og
fremst í því að spila agaðan og
góðan varnarleik,“ sagði Ásmundur
og Magnús Ingi Einarsson, fyrir-
liði Fjölnis, tók í sama streng.
„Það er rökrétt að reikna með
því að þeir verði meira með bolt-
ann í leiknum, en ég held að það
muni henta okkur ágætlega og við
erum með fljóta sóknarmenn sem
hafa verið að klára leikina fyrir
okkur í sumar,“ sagði Magnús.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari
FH, hefur miklar mætur á liði
Fjölnis og reiknar með hörkuleik.
„Fjölnisliðið er skemmtilegt og
spilar góðan sóknarbolta, þannig
að það verður gaman að etja kappi
við það. Fjölnir er litla liðið og
menn búast við því að FH vinni og
þess vegna halda eflaust flestir
með þeim, þannig að það getur
verið dálítið erfitt að undirbúa
liðið fyrir leikinn,“ sagði Ólafur.
Tryggvi Guðmundsson, sóknar-
maður FH, lagði þó mikla áherslu
á að FH liðið myndi ekki verða
með neitt vanmat fyrir leikinn.
„Staða liða í deild skiptir engu
máli þegar komið er í svona stóran
leik og það er klárt að það er ekk-
ert „lítið“ lið sem kemur sér alla
leið í úrslitaleikinn. Leikurinn er
gott tækifæri fyrir okkur, eftir
vonbrigðin með deildina, að enda
tímabilið á jákvæðum nótum og
það var einmitt að losna bikara-
pláss í hillunni okkar,“ sagði
Tryggvi léttur.
Fjölnismenn mæta í dag
FH-ingum í úrslitaleik bikarsins
en þeir voru sem kunnugt er í 1.
deild í sumar þar sem þeir tryggðu
sér sæti í Landsbankadeildinni
næsta sumar.
Fjölnir er sjöunda neðri deild-
arliðið sem kemst alla leið í
úrslitaleik bikarkeppninnar en
aðeins það þriðja sem fær tæki-
færi til að spila bikarúrslitaleik á
Laugardalsvellinum sem hefur
hýst alla úrslitaleiki frá og með
haustinu 1973. Það er ekki daglegt
brauð að lið utan efstu deildar
komist alla leið því 67 af síðustu
70 liðum í bikarúrslitaleiknum
hafa spilað í A-deild það sumar.
Það hefur aðeins einu liði utan
efstu deildar tekist að vinna
bikarinn og það var lið Víkinga
árið 1971. Víkingar voru þá
nýkrýndir meistarar í B-deildinni
og mættu nýliðum Breiðabliks í
úrslitaleiknum.
Aðalkeppnin fór fram eftir að
Íslandsmótinu lauk og Víkingar
voru því í rauninni orðnir efstu
deildarlið þegar bikarævintýri
þeirra hófst. Víkingar unnu
úrslitaleikinn 1-0 með sigurmarki
Jóns Ólafssonar á 21. mínútu
leiksins.
Á þessum 36 árum sem eru liðin
hafa þrjú B-deildarlið komist í
bikarúrslitaleikinn og öll þurftu
að sætta sig við silfrið.
FH-ingar töpuðu 2-0 fyrir ÍBV í
úrslitaleik á Melavelli 1972,
Grindvíkingar töpuðu 2-0 fyrir
KR í úrslitaleik á Laugardalsvell-
inum 1994 og fyrir sex árum
þurftu Fylkismenn vítaspyrnu-
keppni til þess að vinna B-deildar-
lið KA í úrslitaleik á Laugardals-
vellinum.
Eins og sjá má á þessu þá hefur
ekkert lið utan efstu deildar orðið
bikarmeistari síðan að byrjað var
að spila bikarúrslitaleikinn á
Laugardalsvellinum og Fjölnis-
menn eiga því möguleika á að
brjóta blað í sögu bikarkeppninnar
í Laugardalnum í dag.
36 ár síðan B-deildarlið vann bikarinn
FH-ingar spila í dag sinn
fjórða bikarúrslitaleik en þeir
eiga enn eftir að vinna bikarinn.
Það hefur aðeins eitt félag þurft
að bíða lengur en Skagamenn
unnu bikarinn ekki fyrr en í
níundu tilraun sinni árið 1978 en
hafa síðan unnið 9 af 10 úrslita-
leikjum sínum.
FH tapaði 2-0 fyrir ÍBV í fyrsta
bikarúrslitaleik sínum fyrir 35
árum en þá var liðið í B-deild.
FH-ingar komust aftur í bikarúr-
slitaleikinn 19 árum síðar og
töpuðu þá 1-0 í aukaleik gegn
Valsmönnum eftir 1-1 jafntefli í
sjálfum bikarúrslitaleiknum. FH
fór einnig í úrslitaleikinn fyrir
fjórum árum síðan en töpuðu þá
1-0 fyrir Skagamönnum. Garðar
Gunnlaugsson skoraði eina mark
leiksins tólf mínútum fyrir
leikslok.
Sex leikmenn FH-liðsins í dag
tóku þátt í þessum úrslitaleik árið
2003, Daði Lárusson, Sverrir
Garðarsson, Guðmundur Sævars-
son, Tommy Nielsen, Freyr
Bjarnason og Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson.
FH-ingar reyna
í fjórða sinn
Það lið sem skorar fyrsta
markið í úrslitaleik VISA-bikars
karla í dag ætti að vera í góðum
málum ef marka má þróun mála í
bikarúrslitaleikjum síðustu ára.
Bikarmeistararnir hafa
nefnilega skorað fyrsta markið í
úrslitaleiknum síðustu fimm ár
og í 13 af síðustu 14 bikarúrslita-
leikjum.
Eini úrslitaleikurinn sem sker
sig út er leikur Fylkis og KA árið
2001 en KA, sem þá var í B-deild
eins og Fjölnir nú, komst tvisvar
sinnum yfir í leiknum en tapaði
síðan í vítakeppni.
Það hefur ekki alltaf verið
algilt að fyrsta markið skili
bikarnum í hús því á árunum 1981
til 1992 lentu verðandi bikar-
meistarar undir í 7 af 12 úrslita-
leikjum.
Fyrsta markið
mikilvægt
Fjölnir er sextánda
félagið sem kemst í bikarúrslit
en aðeins fimm félög hafa náð að
fagna bikarmeistaratitlinum í
fyrstu tilraun.
Nágrannar Fjölnismanna í
Fylki urðu fyrsta félagið í 32 ár
til þess að vinna sinn fyrsta
bikarúrslitaleik þegar þeir unnu
KA í vítakeppni 2001. Fram að
þeim leik höfðu sjö nýliðar í röð
þurft að sætta sig við silfur eða
allt frá því að ÍBA vann sinn
fyrsta bikarúrslitaleik 1969.
Síðustu nýliðar
unnu bikarinn
FH-ingar ættu að vera
farnir að venjast að spila
bikarleiki í Laugardalnum og
jafnframt að vera búnir að
yfirvinna bikargrýluna í Dalnum
því þeir spila í dag sinn þriðja
bikarleik í röð á Laugardalsvelli.
Fyrir þetta sumar hafði FH-
liðið dottið þrisvar sinnum út úr
bikarnum í Laugardalnum á
síðustu fjórum árum en nú hefur
liðið unnið tvo bikarsigra í röð á
Þjóðarleikvanginum.
FH vann 1-0 sigur á Val í átta
liða úrslitunum með marki
Ásgeirs Gunnars Ásgeirssonar og
svo 3-1 sigur á Breiðabliki í
framlengdum undanúrslitaleik
þar sem Tryggvi Guðmundsson
og Atli Guðnason tryggðu
Hafnarfjarðarliðinu sigurinn
eftir að Ásgeir Gunnar hafði
komið FH í 1-0 í venjulegum
leiktíma.
Þrír bikarleikir
í röð í Dalnum
Leiðinlegt að mega ekki skjóta á markið