Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2007, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 09.10.2007, Qupperneq 26
Lækjarskóli í Hafnarfirði fagnaði 130 ára afmæli 2. október síðastlið- inn. Skólinn hét áður Barnaskóli Hafn- arfjarðar og þar á undan Barnaskóli Garðahrepps. Lækjarskóli á sér óslitna sögu allt frá árinu 1877 og eru þetta því mikil tímamót. Haraldur Haraldsson, skólastjóri Lækjarskóla, sagði okkur frá skemmtilegri sögu og starfi skólans og hátíðarhöldum í tilefni af afmælinu. „Þórarinn Böðvarsson og Þórunn Jónsdóttir gáfu fé til minningar um son sinn Böðvar í ágúst 1877. Þessi gjöf átti að vera til þess að koma á fót alþýðuskóla. Síðan breyttist skip- an mála í Garðabæ og Hafnarfirði og þá verður þetta að Barnaskóla Hafn- arfjarðar og síðar var nafni barnaskól- ans breytt í Lækjarskóla. Húsnæðið við lækinn var tekið í notkun 2. október 1927 og það eru því 80 ár frá því það hús var vígt en 130 ár síðan grunnur var gerður að þessum skóla,“ útskýrir Haraldur en svo skemmtilega vill til að Þórarinn Böðvarsson var langalangafa- bróðir hans. Haldið var upp á afmælið með kaffisamsæti fyrir nemendur og starfsmenn í tilefni af vígslunni 2. okt- óber. „Þetta var svona innri gleði. Það var kaffisamsæti, frjálsir tímar og svoleið- is og var þetta afskaplega vel heppn- að. Starfsfólk og nemendur bökuðu fyrir veisluna og þetta var því eins og stórt heimili. Við vildum hafa þetta inn- hverft afmæli,“ segir Haraldur sem er annt um að skólinn haldi persónu- legu og heimilislegu andrúmslofti þrátt fyrir að vera stór. „Við verðum með opið hús 15. nóv- ember og þá ætlum við að bjóða öllum sem vilja að koma og skoða skólann og starf nemenda hér. Síðan gefum við út afmælisrit í nóvember sem dreift verð- ur um allan Hafnarfjörð,“ segir Harald- ur stoltur og bætir við að í tilefni af af- mælinu fái skólinn nýjan fótboltavöll. Það eru þó fleiri ástæður til að fagna á þessu starfsári. „Við erum að ljúka innleiðingu á jákvæðri skólafærni hjá okkur og erum við mjög stolt af henni. Þetta er kerfi þar sem við kennum nemendum jákvæðan aga. Þá er til dæmis gengið hægra megin, menn leiða hjá sér óæskilega hegðun og við leiðum börn- in áfram í jákvæðninni. Þau fá umbun- armiða fyrir góða hegðun og læra regl- urnar í gegnum skólastarfið. Þetta er byggt á amerískri fyrirmynd en við höfum algjörlega staðfært þetta yfir á okkar hafnfirska umhverfi og þýddum allt kerfið. Við vorum annar af fyrstu tveimur skólunum á landinu sem fóru af stað með þetta og nú er verið að inn- leiða kerfið í öllum hafnfirskum skól- um, í Reykjavík og víðar um landið,“ segir Haraldur ánægður með árang- urinn. Auk þessa getur skólinn fagnað góðum árangri úr samræmdum próf- um, í íþróttum og fleira. Lækjarskóli er heildstæður grunn- skóli með 1.-10. bekk en þar er einnig sérdeild fyrir börn með þroskaraskanir og nær hún nú upp í unglingastig. Í Lækjarskóla er sterk hefð í atferlis- mótun fyrir einhverfa og þar hefur átt sér stað mikil þróun. Þar er einnig mót- tökudeild fyrir nýbúa í Hafnarfirði og nýtt kerfi fyrir níunda og tíunda bekk þar sem í boði er svokallað fjölnám. „Fjölnámið virkar þannig að þeir sem hafa fundið sig illa í almennum skólum í Hafnarfirði eiga þess kost að stunda verklegt nám þar sem bóklega námið er einfaldað og verkþekkingin aukin. Með þessu getur tiltekinn hópur öðlast betri líðan í skólanum, kærleika og alúð. Við erum með þrjátíu nemend- ur í þessu námi og þar erum við aftur komin í gamla, góða húsið sem heit- ir nú Menntasetrið við lækinn og var gamli Lækjarskóli,“ útskýrir Harald- ur. „Þar erum við einnig með svokallað fjöltækninám fyrir þá einstaklinga sem eiga mjög erfitt með að vera í hinu al- menna skólakerfi vegna þess að þeir hafa lent á erfiðum skerjum lífsins þrátt fyrir ungan aldur. Þarna finnst mörgum þeir vera komnir í himnaríki,“ segir Haraldur sem er annt um velferð allra nemenda sinna. Auk þessa stýrir Lækjarskóli verk- efni með menntamálaráðuneytinu, Hafnarfjarðarbæ, Flensborg og Iðn- skólanum þar sem komið hefur verið á fót framhaldsdeild. Þar verður tveggja ára nám fyrir þá sem annars myndu líklega flosna úr námi annars. Þá eiga fjölnámsnemendur Lækjarskóla kost á að fara í þetta framhaldsnám sem er að mörgu leyti eins og fornámsbraut í menntaskóla. Þetta er gert til þess að missa ekki þennan hóp úr kerfinu. Lækjarskóli er því einn með öllu og augljóslega mörgu að fagna. Haraldur ítrekar að lokum að hið farsæla skóla- starf helgist fyrst og fremst af nemend- um, góðu starfsfólki og þeim kærleika sem þar ríkir á milli. „Mér er ekki illa við viðtöl. Ég er bara ein af þeim sem semja tónlist af því að þeim finnst erfitt að tala.“ Guevara tekinn af lífi Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Jóna Jónsdóttir Heiðarvegi 24, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, föstudaginn 5. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 12. október kl. 14.00. Jóhann Björn Dagsson Dagbjartur Björnsson Valur Björnsson Erla Guðjónsdóttir María Björnsdóttir Svavar Sædal Einarsson Ingiþór Björnsson Regína Rósa Harðardóttir Bjarnveig Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, besti vinur minn og faðir okkar, Ásgeir Eyfjörð Sigurðsson Ægisgötu 19, Akureyri, lést 3. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 15. október kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á sjóð sem stofnaður hefur verið til styrktar fjölskyldu hans. Banki 0565-14-102975 kt. 201060-3979. Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir Sigurvin Guðlaugur Eyfjörð Ásgeirsson Unnur Rósa Eyfjörð Ásgeirsdóttir Þórhildur Helga Eyfjörð Ásgeirsdóttir Stefán Ásgeir Eyfjörð Ásgeirsson Guðrún Borghildur Eyfjörð Ásgeirsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, Kjartans Símonarsonar Klapparstíg 9, Njarðvík, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hinn 26. sept- ember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Símon Hallberg Kjartansson Kristín Hallbergsdóttir Björn Heiðar Hallbergsson Anna B. Kjartansdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Sigrún Guðmundsdóttir Hofsvallagötu 22, lést á heimili sínu 29. september sl. Útför hennar fer fram í Fossvogskapellu, þriðjudaginn 9. október, kl. 15. Sigurjón Guðmundur Jóhannesson Áslaug Sigurjónsdóttir Sigurður Ólafsson Jakob Sigurðarson Helga Sjöfn Magnúsdóttir Jóakim Snær Sigurðarson Sigrún Sif Sigurðardóttir og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ruth Jónsdóttir dvalarheimilinu Höfða, áður Sólvöllum, Innri-Akraneshreppi, sem lést fimmtudaginn 4. október verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 12. október kl. 14.00. Elín Kolbeinsdóttir Guðbjörn Ásgeirsson Þorgeir Kolbeinsson Hrönn Hjörleifsdóttir Guðfinna Valdimarsdóttir Sigurður Hauksson Ingólfur Valdimarsson Guðný Sjöfn Sigurðardóttir barnabörn og langömmubörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.