Fréttablaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 2
Hlutfallslega eru
mun fleiri karlar í stjórnum líf-
eyrissjóða en konur. Í Kynjabók-
haldi ASÍ 2007 kemur fram að
karlar eru rúm 73 prósent stjórn-
armanna í lífeyrissjóðum en kon-
urnar tæp 27 prósent.
Stjórnarmennirnir skiptast
jafnt milli verkalýðshreyfingar-
innar og Samtaka atvinnulífsins.
Af þeim sextíu sem sitja í þessum
stjórnum lífeyrissjóðanna eru níu
konur fulltrúar stéttarfélaganna
meðan sjö konur eru fulltrúar
Samtaka atvinnulífsins.
Hlutfallslega eru mun færri
konur sem sitja í stjórnum aðild-
arfélaga ASÍ miðað við hlutfall
þeirra sem félagsmanna. Konur
eru 45 prósent félagsmanna aðild-
arfélaga ASÍ en aðeins 35 prósent
stjórnarmanna.
Þegar fjöldi stjórnarmanna í
landssamböndunum er skoðaður
eftir kyni kemur í ljós að konur
eru fimmtán en karlarnir 53 tals-
ins. Hæst er hlutfall kvenna meðal
meðstjórnenda, þar eru tólf konur
á móti 39 karlmönnum.
Í Kynjabókhaldinu kemur fram
að ekki hefur orðið veruleg breyt-
ing á hlutfalli kvenna í stjórnum
og ráðum milli ára. „Kynjabók-
haldið sjálft leysir hvorki vanda
né eykur hlut kvenna í stjórnum
og ráðum. Það þarf að breyta við-
horfum og samþætta jafnréttis-
sjónarmiðið í allri ákvarðanatöku
aðildarfélaga Alþýðusambands
Íslands,“ segir þar.
Mun færri konur í stjórnum
Samkvæmt fréttavef
breska ríkisútvarpsins tilkynnti
JK Rowling, höfundur bókanna
um galdrastrákinn Harry Potter,
aðdáendum sínum á föstudag að
ein af aðalpersónum bókanna,
skólastjórinn Albus Dumbledore,
sé samkynhneigður.
Hún ljóstraði þessu upp á
samkomu í New York þegar hún
var spurð hvort Dumbledore hafi
einhvern tímann verið ástfang-
inn. Hún sagði hann á yngri árum
hafa hrifist af galdramanninum
Gellert Grindelwald.
Samtök samkynhneigðra í
Bretlandi hafa fagnað yfirlýsing-
unni.
Dumbledore út
úr skápnum
Dagur, eru portkonur þér
hugleiknar?
„Þetta gekk
ljómandi vel og ég vona að okkur
hafi tekist að vekja fólk til
umhugsunar,“ segir Þórir
Steingrímsson, formaður
Heilaheilla, en félagið stóð fyrir
svokölluðum slagdegi í gær.
Gestir Kringlunnar, Smáralindar
og Glerártorgs á Akureyri gátu
fengið fría áhættugreiningu hjá
hjúkrunarfræðingum og læknum
sem mátu líkur á slagi, svo sem
heilablæðingu eða blóðtappa.
Þórir segir að fjölmargir hafi
nýtt sér þjónustuna og mörgum
hafi verið bent á að leita læknis.
Í Kringlunni kom til að mynda
upp eitt tilfelli þar sem einstakl-
ingur var sendur beint á bráða-
móttöku.
Einn sendur á
bráðamóttöku
„Ég tel afar mikilvægt að
hjónabandið verði áfram skil-
greint sem sáttmáli karls og
konu,“ segir hr. Karl Sigurbjörns-
son biskup. Á Kirkjuþingi, sem
stendur nú yfir, deila menn um
hvort takmarka eigi skilgreiningu
á hjónabandi við sáttmála milli
karls og konu eða hvort hjónaband
geti átt við um sambönd samkyn-
hneigðra.
Lögð verða fram tvö frumvörp
fyrir þingið í dag sem bæði mæla
með heimild presta þjóðkirkjunn-
ar til þess að framkvæma stað-
festa samvist. Biskup leggur fram
frumvarp þar sem sérstök áhersla
er lögð á að hjónaband sé sáttmáli
milli karls og konu.
„Ég held að grundvallaratriðið
hvað hjónabandið varðar sé þessi
gagnkvæmni kynjanna sem getur
af sér líf. Með allri virðingu fyrir
ást samkynhneigðra, þá er það
annars eðlis,“ segir biskup og seg-
ist álíta að tillaga hans sé mála-
miðlun milli stríðandi fylkinga
innan þjóðkirkjunnar.
„Ef til þess kæmi að ríkið myndi
gera hjúskaparlögin kynhlutlaus,
þá tel ég fyrir mína parta að hlut-
verk presta sem vígslumanna
myndi hverfa. Þá væri búið að
skilja á milli samskilnings flestra
trúarbragða heims og löggjafans
sem hingað til hefur ríkt.“
Hulda Guðmundsdóttir er guð-
fræðingur og flutningsmaður
frumvarps um staðfesta samvist
þar sem ekki kemur fram sérstök
skilgreining á hjónabandinu.
„Hjá biskupi kemur fram
áhersla sem við teljum ekki rétt
að setja. Við teljum ekki tímabært
að loka inni einhverja skilgrein-
ingu á hjónabandinu. Ég held að
þessi áhersla biskups sé til þess
gerð að þeim íhaldssömustu líði
betur, en þetta er í raun óþarft.“
Hulda segist ekki vilja loka dyr-
unum hér og nú.
„Nú þegur hefur það verið lagt
fram á Alþingi að leggja niður lög
um staðfesta samvist. Ef það fer í
umræðu, þá getum við rætt þessi
mál.“
Í könnun meðal starfandi presta
þjóðkirkjunnar reyndust 65 pró-
sent svarenda hlynntir því að
prestum verði veitt heimild til að
framkvæma staðfesta samvist.
Um 80 prósent kvenpresta voru
mjög eða frekar hlynnt, en 59 pró-
sent karlpresta. Þá hafði starfs-
aldur einnig áhrif og voru prestar
sem unnið hafa í 15 ár eða skemur
hlynntari heimildinni.
Biskup vill hjóna-
bandið skilgreint
Á Kirkjuþingi eru uppi deilur um hvernig eigi að skilgreina hjónabandið. Bisk-
up telur hjónabandið vera sáttmála milli karls og konu. Frjálslyndari armur
þjóðkirkjunnar telur ekki rétt að loka inni skilgreiningu á hjónabandinu.
Mikhail Gorbatsjov hefur
tekið þátt í stofnun nýrrar stjórn-
málahreyfingar í Rússlandi sem
kallast Samtök sósíaldemókrata og
lofar umbótum í rússnesku samfé-
lagi. Þetta kemur fram á fréttavef
breska ríkisútvarpsins
Á stofnþingi hreyfingarinnar
sagði Gorbatjov að markmið henn-
ar væri að berjast gegn spillingu
og að auka stjórnmálaumræðu í
samfélaginu.
Hreyfingin nýja styður umbæt-
ur Vladimirs Pútín, núverandi for-
seta Rússlands. Það er hugsanlega
af þeim sökum sem samtökin taka
ekki þátt í þingkosningum sem
fara fram í landinu í desember, en
þar er flokki Pútíns spáð ótvíræð-
um sigri.
„Við viljum ná völdum, en aðeins
yfir hugum almennings,“ sagði
Gorbatsjov á stofnþinginu.
Í yfirlýsingu frá samtökunum
kemur fram að „lýðræðislegir val-
möguleikar og samkeppni í stjórn-
málum eiga undir högg að sækja
og því vilja sósíaldemókratar berj-
ast fyrir frelsi og réttlæti.“
Líklegt þykir að Gorbatsjov, sem
er 76 ára, verði kosinn formaður
samtakanna á stofnþinginu.
Vilja ná völdum yfir hugum
Gordon Brown, forsætis-
ráðherra Bretlands, lýsti yfir
ánægju sinni með nýjan sáttmála
Evrópusambandsins sem var
samþykktur á fundi í Lissabon í
Portúgal á föstudag, samkvæmt
fréttavef breska ríkisútvarpsins.
„Skýrar undanþágur gera það
að verkum að Bretland þarf ekki
að óttast um hagsmuni sína,“
sagði forsætisráðherrann að
fundinum loknum.
Íhaldsmenn hafa lýst yfir
vantrausti á samþykktina. Þeir
segja að halda hefði átt þjóðarat-
kvæðagreiðslu til að skera úr um
hvort breska þjóðin hafi í raun
viljað ganga að sáttmálanum.
Ánægður með
Evrópusáttmála
Mannbjörg varð þegar litlum
skemmtibát með fjórum innan-
borðs hvolfdi á fremra Selvatni í
Mjóafirði við Ísafjarðardjúp í gær.
Þrjár konur sem í bátnum voru
komust í land að sjálfsdáðum en
óttast var um karlmann sem var
með þeim í för. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var kölluð á staðinn
ásamt björgunarsveitarmönnum
frá öllum Vestfjörðum.
Maðurinn kom sér í land á
endanum en var kaldur og
þrekaður. Hann var fluttur með
þyrlunni á sjúkrahúsið á Ísafirði
til aðhlynningar.
Ekki er vitað hvers vegna
bátnum hvolfdi.
Fluttur þrekað-
ur á sjúkrahús