Fréttablaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 28
að eru myndir hvert sem maður lítur. Samtími okkar er mynd-
væddur í meira lagi, svo mjög að við erum hætt að taka eftir
raunverulegum myndum sem ber fyrir augu okkar allan daginn
og við njótum líka í svefni. Nei, við tökum bara eftir ljósmynd-
inni, rammanum, rétt eins veruleiki okkar sé aðeins séður með
linsunni. Og um ljósmyndaiðnaðinn hverfist mikið fjármagn.
Hann sefur aldrei, það er aldrei hlé, á hverju augnabliki verður
ekki ein mynd til, heldur margar. Eins og við séum ekki til nema
á mynd.
Á mánudagskvöld hittist í Lincoln Center í New York stór
hópur fólks sem lifir og hrærist í ljósmyndum. Það var þar saman komið
á fimmtu Lucie-hátíðinni sem var sett á stofn fyrir fimm árum til að
auka virðingarstöðu ljósmyndara í heiminum. Fólkið var prúðbúið enda
boðsbréfin send út með vinsamlegum tilmælum um snyrtilegan klæðn-
að. Annar hver maður var með myndavél og endalaust var verið að
skjóta. Í einu horni hins glæsilega fordyris var upprisið studíó og þar
var strax komin röð af fólki sem vildi fá af sér mynd. Hátíðin fór glæsi-
lega fram: þar voru heiðraðir nokkrir snillingar úr hópi ljósmyndara
heimsins, menn komnir á efri ár. Á hátíðina var settur show-bisness
blær: Lily Taylor kynnti, Lou Reed veitti gömlum vini sínum verðlaun,
Snowdon lávarður ávarpaði samkomuna af bandi og Jeff Bridges heiðr-
aði hinn kunna auglýsingaljósmyndara Howard Zieff. Andakt fór um
salinn þegar minnst var látinna meistara, sá síðasti féll fyrir byssukúlu
í Írak vikunni fyrr.
Myndirnar sem þarna voru til marks um yfirburði þeirra sem voru
heiðraðir sýndu líka að hluti af ljósmyndaiðnaði heimsins er að kljást
við ljótasta hlutann af lífi hér á jörð: hatursorðin sem féllu af verð-
launapalli í garð stríðs voru sögð af mönnum sem hafa séð – og sýnt
okkur – grimmd mannsins í sinni nöktustu mynd: Bush var hrakyrtur
við innilegan fögnuð viðstaddra.
En þar var líka margt annað lofað: Pilsner Urquell bjórframleiðand-
inn tékkneski var meginstyrktaraðili hátíðarinnar og að hans frum-
kvæði voru veitt verðlaun í nýjum flokkum: Alþjóðlegu ljósmyndaverð-
launin í tveimur flokkum og fóru þau til ungra ljósmyndara.
Magnum-ljósmyndafyrirtækið var heiðrað sérstaklega, tímarit ársins
valið, bókaútgáfa á þessu sviði, myndstjórn á blöðum sem féll í hendur
myndritstjóra Sports Illustrated, umbrot á ljósmyndaröð fór til þeirra á
Harper‘s Bazaar.
En flestir voru að bíða eftir gömlu brýnunum: Elliott Erwitt, Ralph
Gibson, Philip Jones Griffiths, Heinz Kluetmeier, Eugene Richards,
Snowdon lávarði, Howard Ziefff, Kenro Izu og Deborah Turbeville. Þau
komu öll fram og þökkuðu fyrir sig. Og myndir þeirra segja meira en
mörg orð um hvers vegna þau voru heiðruð.
Pilsner Urquell vill færa veldi þessara verðlauna út: hingað til lands
kemur í nóvember sýning með nokkrum mynda þeirra sem voru verð-
launaðir í fyrra og samfara því mun umboðsaðili bjórsins hér á landi,
Mekka, efna til samkeppni. Og ekkert er því til fyrirstöðu að íslenskir
ljósmyndarar geti á næsta ári keppt til sigurs við jafningja sína frá þeim
rúmlega hundrað löndum sem í ár áttu fulltrúa í Lucie-verðlaununum.
- pbb
Philip Jones Griff-
iths er Walesmað-
ur og menntaður
sem lyfjafræð-
ingur. Hann fór
að taka myndir í
aukavinnu fyrir
Manchester
Guardian og
þaðan lá leið
hans í sérverkefni
fyrir Observer:
hann var í Alsír
1962. Var tekinn
í Magnum 1966
og var þá kominn
til Víetnam: bók
hans um stríðið,
Vietnam Inc. var
unnin á þriggja
ára tímabili
og er enn talin
ein gleggsta
heimild sem til
er um stríðið.
Hann hefur gert
nokkrar heimild-
armyndir en er
kunnastur fyrir
bókverk sín. Hann
hefur myndað í
120 löndum og
á nokkrar þekkt-
ustu fréttamyndir
síðustu aldar.
Hann var heiðr-
aður fyrir framlag
sitt til fréttaljós-
myndunar.
Kenru Izu er fæddur í Osaka 1949. Hann
hefur verið búsettur í New York síðan
1975. Hann hefur tekið á stórt format
um árabil: 14x20 þumlunga. Hann
hefur gert tilraunir með Cyan-print og
gefið út bækur sem rekja þær tilraunir.
Í einni af mörgum ferðum sínum til
Anghor Vat í Kambódíu rann honum
til rifja bágt ástand þar og setti þá á
stofn sjúkrahús þar í landi: „Ég var svo
barnalegur“, sagði hann. Barnaspítali
hans hefur starfað síðan 1999 og sinnt
420 þúsund veikum börnum. Hann er
enn að vinna að röð sinni Sacred Places
um helga staði jarðarinnar. Izu var
heiðraður fyrir hugsjónir sínar.
Snowdon lávarður segist vantreysta myndum sem
séu fallegar. Hann hóf feril sinn í myndatökum fyrir
tímaritamarkaðinn í Bretlandi og hafði einstaka
stöðu sem meðlimur yfirstéttar þar í landi, ekki síst
eftir hjónaband hans og Margrétar prinsessu. Hann
var ráðinn myndaritstjóri Sunday Times Magazine
1960 og opnaði þann miðil fyrir stórum hópi breskra
ljósmyndara. Hann er virkur hönnuður og hefur
komið fram um árabil sem málsvari fatlaðra. Hann
hefur gefið út fjölda bókverka og er virtastur fyrir
portrett sín sem hann var heiðraður fyrir.
Deborah Turbeville tók til við ljósmyndir eftir feril í tískubransanum í New York þar sem hún vann á
Harper‘s og Mademoiselle. Hún gerbreytti tískuljósmyndun með því að færa það fag nær tilrauna-
kendri vinnslu og tökutækni. Verk hennar hafa birst í öllum helstu tískublöðum heims og hún hefur
unnið myndaraðir fyrir bókverk. Hún hefur hlotið ýmsan sóma af hálfu tískubransans en var á mánu-
dag heiðruð fyrir framlag sitt til tískuljósmyndunar.
HÉR Á OPNUNNI GEFUR
AÐ LÍTA NOKKUR
DÆMI UM VERK
VERÐLAUNAHAFANNA
FRÁ SÍÐASTA
MÁNUDAGSKVÖLDI.
ALLAR ERU ÞÆR BIRTAR
MEÐ GÓFÚSLEGU LEYFI
PILSNER URQUELL
LUCIE AWARDS 2007.