Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 101

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 101
„Þetta leggst vel í mig, við erum bara að fara að djöfla þessu af stað,“ segir Björn Hlynur Haraldsson en hann leikstýrir söngleiknum Jesus Christ Superstar sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu hinn 28. desember. Æfingar hófust síðastliðinn mánu- dag. „Þetta er opið í alla enda enn þá. Við erum bara að búa allt til frá grunni, láta fólk syngja og útsetja tónlistina.“ Það er sem kunnugt er Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, sem leikur Jesús sjálfan en félagar hans úr Mínus, þeir Bjarni Sigurðarson og Björn Stefánsson, sjá um tónlistina. Þegar Björn Hlynur er inntur eftir því hvort Krummi sé sannfærandi sem Jesús Kristur stendur ekki á svari. „Það er alveg á hreinu. Krummi er eini maðurinn sem getur gert þetta eins og ég sé hann fyrir mér.“ Með önnur aðalhlutverk fara þeir Jens Ólafsson úr Brain Police sem mun fara með hlutverk hins svikula Júdasar, Lára Sveinsdóttir og Ingv- ar E. Sigurðsson. Sýningin er stór og fleiri tugir einstaklinga koma að henni á einn eða annan hátt. Björn Hlynur þvertekur þó fyrir að honum vaxi verkið í augum á frum- stiginu. „Nei, alls ekki. Þetta er bara skemmtilegt.“ Krummi sjálfur lá ekki á skoðun sinni þegar Fréttablaðið talaði við hann. „Þetta gengur ótrúlega vel enda allt í sýninguna lagt. Leik- myndin er geðveik, búningarnir eru geðveikir og lögin eru geðveik. Þetta verður bara geðveikt!“ - Æfingar hafnar á Superstar Ryan Gosling segir aðdáendur kvik- myndarinnar The Notebook vera reiða út í hann, eftir að það spurðist út að hann og Rachel McAdams, mótleikkona hans í myndinni, hefðu skilið að skiptum eftir nokkurra ára samband. Hann staðfesti sambands- slitin í viðtali við GQ og sagði konur vera brjálaðar út í sig. „Það kom stelpa upp að mér úti á götu og sló mig næstum því,“ sagði hann. „Mig langar næstum að faðma fólk að mér, það virðist svo leitt. Rachel og ég ættum að vera þau sem fá faðm- lögin! Í staðinn erum við að hug- hreysta aðra,“ sagði leikarinn. Gosling og McAdams kynntust við tökur á The Notebook, sem varð feikna vinsæl. „Guð blessi The Note- book. Þar kynntist ég einni stærstu ást lífs míns,“ segir Gosling. Gosling á lausu ÚTGÁFU TÓNLEIK AR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.