Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 93

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 93
GERÐUBERG www.gerduberg.is Anna Guðmundsdóttir • Anna Gunnarsdóttir • Anna Þórunn Hauksdóttir • Auður Vésteinsdóttir • Ásdís Birgisdóttir • Bergrós Kjartansdóttir • Bjargey Ingólfsdóttir • Bjarni Þór Kristjánsson • Björg Juto Dóra Árna • Friðgeir Guðmundsson • Fríða Gylfa- dóttir • Guðný Hafsteinsdóttir • Guðrún H. Bjarna- dóttir • Guðrún Ásgerður Steingrímsdóttir • Hafdís Sverrisdóttir • Hélene Magnússon • Inga Elín Kristinsdóttir • Ingibjörg Hanna Pétursdóttir • Jóna Björg Jónsdóttir • Kristveig Halldórsdóttir • Oddný Magnúsdóttir • Ófeigur Björnsson • Ólöf María Ólafs- dóttir • Philippe Ricart • Rósa Helgadóttir • Sif Ægisdóttir • Sigga á Grund • Sigríður Ásdís Jóns- dóttir • Sigrún Lára Shanko • Sigrún Skarphéðins- dóttir • Steinunn Bergsteinsdóttir • Védís Jónsdóttir • Þórey Sigríður Jónsdóttir • Þórunn Símonardóttir Sýningin stendur til 11. nóvember og er opin virka daga frá kl. 11-17 og um helgar frá kl. 13-16. Ókeypis aðgangur! Leiðsögn á sunnudögum kl. 14. Hópar geta pantað leiðsögn í síma 575 7700. Menningarmiðstöðin Gerðuberg, Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík www.gerduberg.is - s. 575 7700 Handverkshefð í hönnun Bækur þýska rithöfundarins og tónlistarmannsins Alexöndru Kui eiga sér tryggan og sífellt stærri hóp aðdáenda, enda tekst henni að byggja upp dulmagnaða spennu án þess að fara troðnar slóðir. Bækur hennar ná stöðugt vaxandi útbreiðslu, því hér er sleginn nýr tónn bæði hvað varðar stíl og efnistök. www.skjaldborg.is Óvenjuleg og spennandi skáldsaga um glæp Portrett nú! Hafnarborg Kaupendur Sunday Times fá í dag glaðning með blaðinu: . Diskurinn heitir Workingmans Cafe og eru lögin tekin upp í Nashville en fullfrá- gengin í Konk-hljóðveri hans í London. Hann mun koma fram á BBC Electric Proms á sunnudag- inn kemur en diskurinn kemur í verslanir daginn eftir. Þá hefur vefur Timesonline ókeypis lag fyrir áhugasama til niðurhlaðning- ar þessa dagana. Þetta er önnur sólóplata Davies sem kom hingað og flutti stóran hluta af Others Peoples Lives í Háskólabíói en hann á sér tryggan aðdáendahóp hér á landi. Nýja safnið er sagt vera til marks um snilld hans sem laga- höfundur og flytj- andi. Tvær framúrskarandi tónlistar- konur frá fyrrum Sovétríkjunum, ung, sívaxandi og glæsileg selló- stjarna, Tanya Anisimova, og píanó- leikarinn, Lydia Frumkin, halda tónleika í Tíbrárröðinni í Salnum í kvöld og hefjast þeir kl. 20. Þær Tanya og Lydia hafa nýverið leikið þessa sömu efniskrá á tónleikum í Moskvu við frábærar undirtektir og má sjá umsögn um þá tónleika á vef Salarins: www.salurinn.is. Í til- efni af þessum tónleikum í TÍBRÁ hefur Anisimova, sem einnig er tónskáld, samið nýtt verk sem ber heitið Íslensk ballaða fyrir selló og píanó, og er verkið byggt á hinu sérstæða íslenska Liljulagi frá 14. öld „Almáttugur guð allra stétta“. Tanya Anisimova hefur á undan- förnum árum heillað áheyrendur upp úr skónum á tónleikum víða um heim. Hún stundaði sellónám við Tónlistarháskólann í Moskvu og lauk síðar doktorsprófi í sellóleik við Yale-háskólann. Lydia Frumkin lærði píanóleik við Tónlistarháskól- ann í Leníngrad en flýði til Banda- ríkjanna að loknu námi og hefur undanfarna áratugi verið prófessor í píanóleik við Oberlin-tónlistarhá- skólann. Hún kom til Íslands á vegum Listaháskóla Íslands haust- ið 2003 og hélt píanónámskeið í Salnum í Kópavogi við sérlega góðar undirtektir og hafa margir nemendur beðið þess með óþreyju að hún snúi aftur hingað til lands. Þær Tanya og Lydia eru nú báðar búsettar í Bandaríkjunum og hafa getið sér einstaklega gott orð fyrir tónlistarflutning sinn og kennslu. Tanya og Lydia hafa leikið marg- víslegar efnisskrár í gegnum tíðina en á tónleikum nú leika þær Sónötu fyrir fiðlu og píanó í A-dúr eftir César Franck í umritun Jules Dels- art, Sónötu fyrir selló og píanó í g- moll op. 19 eftir Sergei Rachmani- noff og loks nýja verkið eftir Tönju sem hún tileinkar Lydiu en verkið heitir Íslensk ballaða. Selló og píanó í kvöld Tanya og Lydia teljast brátt í hópi Íslandsvina.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.