Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 102

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 102
Icelandair er samstarfsaðili West Ham og býður ferðir á alla heimaleiki liðsins í vetur. Fjölmargir leikir framundan, s.s. á móti Liverpool, Birmingham og Blackburn. 11.–13 JANÚAR W W W. I C E L A N DA I R . I S 49.300 KR. Verð á mann í tvíbýli + Nánari upplýsingar: www.icelandair.is/ithrottaferdir Leikmenn Landsbankadeildar kvenna urðu sér og kvenna- knattspyrnunni á Íslandi til skammar með því að ganga framhjá Mar- gréti Láru Viðarsdótt- ur í kosningu sinni á besta leikmanni Landsbankadeildar kvenna. Með fullri virðingu fyrir KR-ingnum Hólmfríði Magnúsdóttur sem stóð sig mjög vel og var kosin best, þá var Margrét Lára yfirburðamað- ur í deildinni. Það virðist því vera sem öfund og samantekin ráð leikmanna hafi hér ráðið um hver fengi verðlaunin. Margrét Lára Viðarsdóttir er besti leikmaður Vals og mikill leiðtogi í Íslandsmeistaraliðinu. Hún skoraði 38 mörk í 16 leikjum og bætti ársgamalt markamet sitt sem fáir töldu að væri hægt og hafði fyrir þann tíma stað- ið óhaggað í 25 ár. Það var aðeins eitt lið (KR) sem skoraði fleiri mörk en Margrét Lára og hún skoraði tvöfalt fleiri mörk en Hrefna Huld Jóhannesdóttir sem fékk silfurskóinn. Margrét Lára lagði auk þess upp stóran hluta af hinum 50 mörk- unum sem Valur skoraði. Valur og KR háðu einvígi um titilinn í sumar og mættust í tveimur úrslitaleikjum. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Margrét Lára tryggði Valsliðinu jafntefli með því að skora jöfnunarmarkið. Valur vann síðan seinni leikinn, óopin- beran úrslitaleik, 4-2 á KR-vellin- um. Margrét Lára skoraði tvö mörk, lagði upp eitt og átti stóran þátt í undirbúningi þess fjórða. Hún átti því þátt í öllum fimm mörkum Valsliðsins í toppleikj- unum við KR, mörk sem tryggðu Valsliðinu fjögur stig sem gerðu útslagið í baráttunni um titilinn. Margrét Lára skoraði síðan tvennu í báðum sigrunum á Breiðabliki (3. sæti) og sjö mörk í leikjunum gegn Keflavík (4. sæti). Hún var því allt í öllu gegn bestu liðum deildarinnar. Kröfurnar sem settar eru á Margréti Láru eru engu líkar og það að hún skyldi standast þær með jafnglæsilegum hætti er mikið afrek. Hún er stjarna íslenskrar kvennaknattspyrnu og er mikið í sviðsljósinu, greinilega of mikið að mati margra kollega hennar í Landsbankadeild kvenna. Þeir leikmenn gerðu sér og öllum kvennaboltanum mikinn grikk með því að láta öfund og afbrýði- semi leiða sig út í að ganga fram hjá langbesta leikmanni Lands- bankadeildar kvenna. Eftir stendur að verðgildi kosn- ingarinnar er hrunið og kröfur hljóta að vera háværar að KSÍ leiti leiða til þess að koma í veg fyrir önnur eins „mistök“ í fram- tíðinni. Er öfundin og afbrýðisemin svona mikil út í bestu knattspyrnukonu landsins? Ég kaus sjálf Margréti Láru besta leikmanninn Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær en staðan er óbreytt á toppnum þar sem sjö efstu liðin unnu öll leiki sína. Arsenal hélt sigurgöngu sinni áfram, Manchester liðin United og City unnu bæði sína leiki og Liverpool vann borgar- slaginn gegn Everton. Arsenal vann lánlaust lið Bolton 2-0 á heimavelli sínum og heldur því toppsæti deildarinnar áfram. Arsenal átti í þó nokkrum vand- ræðum í leiknum gegn baráttu- glöðu liði Bolton og fyrsta markið kom ekki fyrr en á 68. mínútu þegar Kolo Toure skoraði. Arsenal náði svo að bæta öðru marki við þegar tíu mínútur voru til leiks- loka þegar Tomas Rosicky skoraði eftir undirbúning varamannsins Theo Walcott og þar við sat. Ars- ene Wenger, stjóri Arsenal, sá ástæðu til þess að hrósa liði Bolton eftir leikinn. „Þeir gerðu okkur lengi vel erfitt fyrir og eru með reynda og góða leikmenn, en við vorum verðlaunaðir fyrir þolin- mæðina og ég var mjög ánægður með að við héldum okkar leik- skipulagi til enda,“ sagði Wenger. Elano var enn og aftur bjarg- vættur Manchester City og skor- aði sigurmarkið gegn Birming- ham í gær og Sven-Göran Eriksson, stjóri Mancester City, var ánægð- ur með sinn mann. „Hann er frá- bær leikmaður og er að skora mik- ilvæg mörk og ég held að hann eigi eftir að bæta sig enn meira á næstu árum,“ sagði Eriksson. Manchester United vann Aston Villa 1-4 á Villa Park eftir að hafa lent undir í leiknum. Wayne Roon- ey skoraði tvö mörk fyrir United og feilaði einni vítaspyrnu í leikn- um, en Rio Ferdinand og Ryan Giggs skoruðu hin mörkin tvö. Alex Ferguson, stjóri United, var í hæstu hæðum í leikslok. „Þetta er sennilega besti leikur okkar á tímabilinu. Það eru vonbrigði hvað við erum búnir að skora lítið til þessa á tímabilinu þannig að þetta voru frábær úrslit,“ sagði Fergu- son. Það er alltaf mikið undir þegar Everton og Liverpool mætast og leikurinn í gær var engin undan- tekning. Liverpool vann leikinn 1- 2 eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik, en tvö mörk úr vítaspyrn- um frá Dirk Kuyt voru nóg til þess að Liverpool hirti öll stigin. Evert- on missti mann útaf með rautt spjald í hvoru vítinu fyrir sig, því fyrra í byrjun síðari hálfleiks og því seinna í uppbótartíma. Eftir markið var Everton svo neitað um vítaspyrnu á lokaandartökum leiksins og David Moyes, stjóri Everton, var því skiljanlega súr í bragði í leikslok. „Svona er fót- boltinn. Ákvarðanir eru ekki alltaf þér í hag og mér fannst við eiga skilið að fá víti í lokin og jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit,“ sagði Moyes svekktur. Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærdag þar sem sigurganga Arsenal hélt áfram, Chelsea vann á útivelli og Wayne Rooney skoraði tvö mörk fyrir Manchester United sem vann Aston Villa 4-1. Enska úrvalsdeildin:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.