Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 112

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 112
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Lyftu þér upp með Express Ferðum! Golfvertíðinni lýkur aldrei hjá okkur! Golfmót á Real de Faula 14.–21. nóvember 14.–16. desember West Ham Everton www.expressferdir.is Express Ferðir bjóða fjölbreyttar og spennandi ferðir á verði sem gerir öllum kleift að skreppa út og gera sér dagamun. Fótbolti, golf, stórborgir, stuttar ferðir eða lengri – þú finnur þína draumaferð hjá okkur! Smelltu þér inn á www.expressferdir.is og kynntu þér úrvalið! Real De Faula er frábær golfvöllur, enda hannaður af Jack Nicklaus. Nú bjóðum við íslenskum golfurum að fara á suðrænar slóðir og spila golf við bestu aðstæður. Á hverjum degi stendur til boða að taka þátt í golfmóti og eru vegleg verðlaun í boði. Einnig verður leikið á hinum sívinsæla Alicante Golf og La Sella vellinum sem er hannaður af José María Olazábal. Innifalið: Flug og skattar, frítt fyrir golfsett í flug, gisting á Sheraton-hótelinu og morgunverðarhlaðborð. 94.800 kr. Verð á mann í tvíbýli www.expressferdir.is/fotbolti www.expressferdir.is/borgarferðir www.expressferdir.is/golf Verð á mann í tvíbýli 48.800 kr. Innifalið: Flug og skattar, gisting á hóteli í 2 nætur og miði á leikinn. 7.–10. desember Aðventuferð til Barcelona Verð á mann í tvíbýli 66.900 kr. Innifalið: Flug og skattar, gisting á Mont Blanc hótelinu með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. 9.–12. nóvember Fararstjóri: Hjálmar SveinssonFararstjóri: Halldór Stefánsson Helgarferð til Berlínar Verð á mann í tvíbýli 53.900 kr. Innifalið: Flug og skattar, gisting á 4 stjörnu hóteli, akstur til og frá flugvelli, gönguferð um borgina og íslensk fararstjórn. 21.–22. nóvember Undankeppni EM Danmörk Ísland Verð á mann í tvíbýli 39.900 kr. Innifalið: Flug og skattar, hótelgisting í eina nótt og miði á leikinn. Einnig í boði að bæta við annarri nótt. 7.–9. desember Chelsea Sunderland Verð á mann í tvíbýli 71.900 kr. Innifalið: Flug og skattar, gisting á hóteli í 2 nætur og miði á leikinn. OMXI15 var 8.468,06, þegar ég gáði í morgun hvort ég hefði misst kaupréttarsamninginn undir hjónarúmið, og Dow Jones var 13.984,80 þegar ég fann allt í einu lengst undir rúminu minnis- blaðið sem gamli borgarstjórinn hafði gleymt til 20 ára eftir fund- inn með okkur Jóa. Ég fékk líka hóstakast því að gólfið undir rúm- inu var þakið í óhroða og skúmi eins og þar hefði allt verið á fullu í einkavæðingu. æpti á Elzbietu, Elzbieta hrópaði til himins og Mallí öskr- aði á mig. Hún var átakanlega herpt í framan eins og trítilóða Hanna að hella sér yfir framsókn- armann sem lætur hana róa. Hún hótaði jafnvel að fara í masters- nám á Bifröst svo að hún þyrfti ekki að vita af þessu ógeði um allt. Þetta var ótrúlegt uppistand. Ég hélt um tíma að ég yrði að hringja í Geir Haarde og biðja hann að róa okkur niður með því að geta ekki lagt mat á þetta. En Mallí varð loks kjaftstopp þegar ég vitnaði í Loðinkjamma XVI. og hvernig hann brást við fyrstu fréttum af frönsku byltingunni 1789: „Æ, þetta er bernskt, van- þroskað upphlaup og vandræða- legt orðagjálfur.“ Jói hittumst eftir hádegi og héldum stuttan krísufund í Víti Energy Invest. Það er ekki á hreinu hvaða útrásarfyrirtæki í orkubransanum hafa runnið inn í VEI og síðan hvaða fyrirtæki VEI á sjálft að renna saman við. Ég hef svo ekki hugmynd um hvar ég fælaði minnisblöðin sem Bjarni Ármanns sendi mér alveg örugg- lega og þau sem hann segist hafa sent mér. Einu minnisblöðin frá honum, sem ég finn í tölvunni, eru minnisblöð sem hann segist ekki hafa sent mér. Það er brenni- steinsfnykur af þessu öllu saman. En við Jói finnum líka ógeðslega góða peningalykt. Eins og Bjarni. Ég hringdi í Bjarna og spurði hvort hann gæti ekki hitt okkur á heimili nýja borgarstjórans þegar væri orðið alveg dimmt. Hannes mætti koma með ef hann lofaði að láta borgarstjóra ekki veita sér neina eftirtekt. Bjarni sagðist varla þora að blotta sig meira með því að hitta fleiri borgar- stjóra. það hefur margt misjafnt verið grafið upp á síðustu vikum. Það bendir að minnsta kosti ýmis- legt til þess að Guð hafi bara skapað Guðfinnu – en ekki okkur hin. Billjónsdagbók 21.10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.