Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 6
6 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
UMHVERFISMÁL „Virkjanaáform
sem hér voru til staðar eru hér
ekki lengur,“ segir Bjarni
Daníelsson, sveitarstjóri Skaftár-
hrepps í Vestur-Skaftafellssýslu.
Sveitarstjórnin ræddi í vikunni
bréf frá umhverfisráðuneytinu
en í því er farið fram á samþykki
fyrir því að Langisjór verði hluti
af Vatnajökulsþjóðgarði.
Sveitarstjórnin telur áform
ráðuneytisins áhugaverð og óskar
eftir viðræðum við ráðuneytið til
að fá nánari upplýsingar um
hvaða svæði er nákvæmlega að
ræða og hvaða áform eru um fjár-
mögnun nauðsynlegrar þjónustu.
Landsvirkjun hefur haft áform
um að veita Skaftá í Langasjó og
nýta vatnið í virkjanirnar á
Tungnaár- og Þjórsársvæðinu og
lét útbúa fyrir sig verkhönnun á
Skaftárveitu árið 2003.
Einnig var ætlunin með þessu
að hefta sandburð í Skaftárhlaup-
um og þótti íbúum svæðisins
mikill kostur ef mögulegt yrði að
koma böndum á hlaup og aurburð
árinnar. Bjarni segir að honum
heyrist flestum íbúum svæðisins
þykja sú lausn orðin nokkuð
langsótt.
Í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar segir í kafla um
umhverfismál að „Vatnasviði
Jökulsár á Fjöllum verði bætt við
Vatnajökulsþjóðgarðinn og tryggt
að ekki verði snert við Langasjó í
virkjanaskyni“.
Það er þó sveitarstjórn Skaftár-
hrepps sem hefur skipulagsvald í
þessum málum.
„Sveitarstjórnin hefur ekki
tekið afgerandi ákvörðun um
þetta mál en hún telur sjálfsagt
að skoða erindi umhverfis-
ráðherra með jákvæðum hug,“
segir Bjarni. Hann ítrekar að
endanleg niðurstaða sé þó ekki
komin, skýrari svör þurfi frá yfir-
völdum um hvaða svæði sé
nákvæmlega um að ræða og
hvernig.
„Þarna má greina breytingu á
áhuga heimamanna, vonandi að
það viti á gott,“ segir Árni Finns-
son, formaður Náttúruverndar-
samtaka Íslands.
Hann segir að sér þyki bréf
umhverfisráðuneytisins til marks
um raunverulegan metnað ríkis-
stjórnarinnar um að fara eftir því
sem skráð er í stefnu yfirlýsingu
hennar. karen@frettabladid.is
Virkjanaáform við
Langasjó gufuð upp
Umhverfisráðuneytið hefur farið fram á samþykki sveitarstjórnar Skaftár-
hrepps að Langisjór verði hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. Áform hafa verið uppi
um virkjun á svæðinu. Sveitarstjóri segir þau áform ekki lengur til staðar.
DÓMSMÁL Ríkið hefur verið sýknað af skaðabótakröfu
hjúkrunarfræðings, sem starfaði á dagdeild fyrir
geðfatlaða á Kleppi, vegna árásar sem hún varð fyrir
við vinnu sína árið 1997. Starfsmenn Landspítalans
voru ekki taldir eiga sök á að árásin átti sér stað og
ríkið því sýknað.
Árásin varð í árlegri skemmtiferð með sjúklinga.
Þar kýldi geðfatlaður maður konuna með þeim
afleiðingum að hún datt og marðist víða á líkamanum.
Fyrir dómi sagðist hún hafa fengið taugaáfall og
glímt við þunglyndi og reiði í kjölfar árásarinnar.
Vegna þess hafi hún sótt meðferð hjá sálfræðingi
árum saman.
Krafa hjúkrunarfræðingsins byggðist á því að
starfsmenn Landspítalans hefðu brugðist ranglega
við þeim aðstæðum sem komu upp í ferðalaginu, sem
hafi þar að auki verið illa skipulagt. Ríkið beri
vinnuveitendaábyrgð á saknæmri hegðun starfs-
manna sinna og skuli því greiða skaðabætur vegna
atviksins.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur var ekki
fallist á þessar kröfur. Hjúkrunarfræðingurinn sem
stefndi ríkinu hafi sjálf brugðist rangt við aðstæðun-
um sem upp komu og árásina megi ekki rekja til
saknæmrar háttsemi annarra starfsmanna. Máls-
kostnaður stefnanda var greiddur úr ríkissjóði. - sþs
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknar ríkið af skaðabótakröfu hjúkrunarfræðings:
Árás sjúklings ekki ríkinu að kenna
■ Annað mál var höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
vegna árásar sama manns á annan hjúkrunarfræðing í
sömu ferð.
■ Dómur féll í því máli árið 2003 og var ríkið dæmt
skaðabótaskylt. Samstarfsmenn konunnar sem stefndi
ríkinu voru ekki taldir hafa upplýst hana nægilega vel
um ástand mannsins sem réðst á konurnar.
■ Í þessu máli taldi dómarinn ekki að samstarfsmenn
hjúkrunarfræðingsins sem stefndi ríkinu hefðu sýnt
af sér gáleysislega eða saknæma hegðun. Því var ríkið
sýknað af skaðabótakröfu konunnar.
EKKI FYRSTA MÁLIÐ
Miðvikudagurinn 21. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á
áralöngum rannsóknum fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar
árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni eftirfarandi aðila:
Verkefnið er styrkt af
Kynntu þér málið á www.forvarnardagur.is
Rannsóknir sýna að ein besta forvörnin gegn fíkniefnum er
að sniðganga áfengi
sem lengst
Það leiðir til ills að byrja snemma að
drekka, skemmir lifrina og maður
getur endað á biðlista fyrir líffæragjöf.
Hefur þú hugmynd um hvað virkar best?
F
O
R
V
A R
NA R DAGU
R
I N
N
TAKTU ÞÁTT!
HVERT ÁR SKIPTIR MÁLIH
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
–
0
3
4
0
Kanntu jól
að baka?
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
ISIG barnasvunta
395,-
Opið 10-20 virka daga Laugardaga 10-18 Sunnudaga 12-18
LANGISJÓR Langisjór er eitt tærasta fjallavatn á Íslandi. Áform hafa verið uppi um að
veita Skaftá í Langasjó og nýta vatnið til virkjunar en við það myndi vatnið missa tær-
leika sinn. Íbúar hafa séð hag í því að böndum verði komið yfir Skaftá og þar með
þau hlaup og aurburð sem henni fylgja. Sveitarstjóri segir flesta íbúa telja virkjunar-
framkvæmdir langsótta lausn.
ÁRNI
FINNSSON
BJARNI
DANÍELSSON
Ertu byrjuð/byrjaður að kaupa
jólagjafir?
Já 41,9%
Nei 58,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Heldur þú að verðsamráð eigi
sér stað á matvörumarkaði?
Segðu skoðun þína á visir.is
VÍSINDI Íslensk erfðagreining
býður fólki upp á að senda inn
erfðaefni sitt á þar til gerðum
tunguspaða og bera það saman
við upplýsingar fyrirtækisins.
Er það gert í gegnum síðuna
decodeme.com.
Kári Stefánsson forstjóri segist
vilja miðla þeim upplýsingum
sem fyrirtæki hans hefur safnað
undanfarin ár til almennings með
því að gera fólki kleift að skoða
eigið erfðamengi.
„Ég lít svo á að fólk eigi að fá
að skoða sjálft sig upp að því
marki sem það vill,“ segir Kári,
en fólk getur einnig borið erfða-
mengi sitt saman við annað fólk
með samþykki viðkomandi.
Kári segist ekki hafa áhyggjur
af misnotkun á þjónustunni.
„Við reiknum ekki með því að
menn séu að ráðast á fólk úti í bæ
og stinga upp í það tunguspaða
og gerum ekki ráð fyrir öðru en
að fólk sé að senda okkur sinn
eigin tunguspaða. Tryggingafé-
lögin væru að brjóta lög ef þau
notuðu þessar upplýsingar. Það
er ekki okkar að vaka yfir lög-
hlýðni borgara.“
Í notendaleiðbeiningum kemur
fram að upplýsingarnar geti
verið meiðandi.
„Það sem ég hef mestar
áhyggjur af í þessu sambandi er
hvernig fólk bregst við þeim
upplýsingum sem það fær. Það
eru alltaf einhverjir sem bregð-
ast illa við upplýsingum um upp-
runa sinn.“ - eb
Íslensk erfðagreining býður greiningu á erfðamengjum einstaklinga:
Fólk á að fá að skoða sjálft sig
FÓLK Ólafur Egilsson, fyrrverandi
sendiherra, Rakel Olsen fram-
kvæmdastjóri og Þórunn
Sigurðardóttir, listrænn stjórn-
andi Listahátíðar, hafa verið
skipuð í orðunefnd fálkaorðunnar.
Um leið ganga úr nefndinni
Guðný Guðmundsdóttir konsert-
meistari, Jón Páll Halldórsson
framkvæmdastjóri og Sigmundur
Guðbjarnason, fyrrverandi
háskólarektor.
Fyrir í nefndinni sitja Ólafur G.
Einarsson formaður, Jón Helga-
son og Örnólfur Thórsson sem er
ritari nefndarinnar.
Forseti skipar í nefndina að
tillögu forsætisráðherra. - sgj
Nýtt fólk í orðunefnd:
Ólafur, Rakel og
Þórunn skipuð
ÓGRYNNI
UPPLÝSINGA
Kári Stefánsson
segir viðskipta-
vini fá aðgang
að þeim
upplýsingum
sem Íslensk
erfðagreining
hefur safnað.
Starfslokasamningar í bæj-
arráð
Framvegis verða starfslokasamningar
sem gerðir eru við starfsmenn Kópa-
vogsbæjar lagðir fyrir bæjarráð. Þetta
samþykkti bæjarráðið í fimmtudag
að tillögu Guðríðar Arnardóttur, sem
er fulltrúi minnihluta Samfylkingar í
ráðinu.
KÓPAVOGUR
Atkvæðagreiðsla um traust
Janez Jansa, forsætisráðherra Slóveníu,
mun á mánudag láta fara fram
atkvæðagreiðslu á þingi um traust á
ríkisstjórninni, eftir að frambjóðandi
stjórnarandstöðunnar vann sigur í
forsetakosningum um síðustu helgi.
Jansa segir „stanslausa gagnrýni“
stjórnarandstöðunnar grafa undan
undirbúningi fyrir formennsku Slóvena
í Evrópusambandinu á næsta ári.
SLÓVENÍA
KJÖRKASSINN