Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 10
10 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR MENNTUN Menntamálaráðherra hyggst afnema einkaleyfi Háskóla Íslands til útgáfu almanaks og dagatala. Frumvarp ráðherra var kynnt á fundi ríkisstjórn- arinnar í gær. Einkaleyfið var lögfest árið 1921. „Alman- ak Háskól- ans heldur áfram að koma út,“ segir Þorsteinn Sæmunds- son, stjörnufræðingur og umsjónar- maður Almanaks Háskólans. Um 4.000 eintök hafa selst á ári síðustu ár. Þorsteinn segir þó óheppilegra ef þetta marki endalok Almanaks sjóðsins, sem styrkt hefur ýmis raungreinaverkefni. Í sjóðinn hafa hingað til runnið gjöld annarra en HÍ vegna útgáfu á dagatölum og almanökum. - bj Hyggst afnema einkaleyfi HÍ: Almanakið kemur áfram út ALMANAK Fyrsta Alm- anak háskólans kom út árið 1837. SVEITARSTJÓRNIR „Bandarísk rannsókn hefur leitt í ljós að auðveldara er fyrir fólk undir lögaldri að fá keypt áfengi í matvöruverslunum og stór- mörkuðum en sérstökum áfengisverslunum,“ segir forvarnarnefnd Hafnarfjarðar sem leggst eindregið gegn lagafrumvarpi um sölu áfengis í matvöru búðum. Forvarnarnefndin skorar á bæjarstjórn að samþykkja bókun fjölskylduráðs um að aukið aðgengi að áfengi með afnámi einkasölu sýni aukna neyslu. „Þetta frumvarp stefnir því í þveröfuga átt eftir að náðst hefur mikilvægur árangur í forvörnum gegn notkun áfengis og annarra vímuefna,“ segir í bókun fjölskylduráðs. - gar Forvarnarnefnd Hafnarfjarðar: Andvíg áfengi í matvörubúðum OF STUTT FYRIR STRÆTÓ Delphine Koch hefur öll tilskilin leyfi til þess að keyra strætisvagn. Engu að síður fær hún ekki að starfa við það í bænum Jumet í Belgíu vegna þess að hún þykir of lágvaxin fyrir starfið. Félagar hennar fóru af þeim sökum í verkfall í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP DANMÖRK Forysta danska alþýðusambandsins, LO, hefur boðið fulltrúum jafnaðarmanna, sósíalista og Danska þjóðar- flokksins (DF) til viðræðna með það að markmiði að ná þingmeiri- hluta fram hjá ríkisstjórn Venstre og íhaldsmanna um launahækkanir til opinberra starfsmanna. Samanlagt hafa hinir þrír nefndu flokkar 93 sæti á þingi, sem er þremur atkvæðum meira en þarf til að fá lög samþykkt. Með þetta í huga hefur Harald Børsting, forseti LO, boðið fulltrúum flokkanna til sín í næstu viku. Politiken.dk hefur eftir Kristian Thulesen Dahl, tals- manni DF í ríkisfjármálum, að hann kysi frekar samkomulag milli meirihlutaflokkanna. - aa Kjarasamningar í Danmörku: Vilja semja fram hjá stjórn HARALD BØRSTING Karlmaður var dæmdur til að greiða þrjátíu þúsund krónur í sekt til ríkis- sjóðs fyrir að stela bensíni að andvirði um fimm þúsund króna í október. Maðurinn dældi bensíninu á Subaru Impreza-bifreið og ók í burtu án þess að greiða fyrir. Hinn ákærði játaði brot sitt fyrir dómi. Auk sektarinnar var manninum gert að borga bensín- stöðinni fyrir eldsneytið. DÓMSMÁL Bensínþjófur greiði sekt Kröfufjármögnun á netinu - einföld og skilvirk lausn Viðskiptakröfur eru stærsta eign margra fyrirtækja. Með Kröfufjármögnun Landsbankans gefst fyrirtækjum kostur á lántöku gegn veði í viðskiptakröfum með einfaldari hætti en áður. Ávinningurinn er margþættur. Auðveldara er að fjármagna vöxt fyrirtækisins þar sem rekstrarfé eykst í hlutfalli við aukna sölu. Með bættu fjárstreymi er m.a. hægt að greiða birgjum fyrr og ná fram hagstæðari innkaupum. Hafðu samband við fyrirtækjasérfræðing í næsta útibúi eða Þjónustuborð fyrirtækja í síma 410 9191ÍSLE N S K A S IA .I S L B I 39 92 3 11 /0 7 www.landsbanki.is LÖGREGLUMÁL Skipulögð glæpa- starfsemi hefur skotið rótum hér á landi. Þetta segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður og bendir á áður óþekkt hugarfar að baki afbrotum hér. „Þegar landið var opnað fylgdu því ýmsir kostir, en einnig ókostir og þetta er einn af þeim,“ útskýrir hann. Þrír pólskir ríkisborgarar eru nú í farbanni vegna rannsóknar nauðgunarmáls á Selfossi. Tveir litháískir ríkisborgarar sitja í gæsluvarðhaldi vegna nauðgunar í Reykjavík. Þá lýsti lögregla eftir erlendum ríkisborgara í gær vegna rannsóknar á nauðgunarmáli þar sem rúmlega tvítug stúlka er fórnarlamb. „Ef við tölum um þessar nýjustu nauðganir eru þær eins grimmdar- legar og getur orðið,“ segir Brynjar. „Þarna erum við að ræða um refsingu sem dómstólar geta dæmt allt upp í 8-10 ára fangelsi. Þeir menn sem þarna voru að verki hafa allt aðra hugsun en hér ríkir, til að mynda viðhorf þeirra til kvenna.“ Brynjar segir aukna tíðni útlend- inga enn meiri í öðrum brotaflokki en kynferðis brotunum. „Þar á ég við fíkniefnabrotin,“ útskýrir hann. „Það sem virðist vera að gerast er að útlendingar eru smátt og smátt að taka yfir fíkniefnaheiminn eins og hefur gerst í öllum helstu borgum Evrópu. Þeir eru miklu skipulagðari í þessum brotum en Íslendingarnir, sem gera þetta nokkuð handahófs- kennt. Þetta er nýr markaður fyrir glæpastarfsemi og óplægður akur. Ég er ekki viss um að það sé hægt að bregðast við þessu úr því sem komið er.“ - jss Hæstaréttarlögmaður segir hugarfarið að baki afbrotum annað en þekkst hafi: Útlendingar taka yfir fíkniefnaheiminn JAN.-OKT. 2005 JAN.-OKT. 2006 JAN.-OKT. 2007 KÆRUR VEGNA KYNFERÐISBROTA Hlutfall ríkisborgara sem kærðir voru fyrir kynferðisbrot skv. málaskrá lögregl- unnar frá 1. janúar til 31. október árin 2005, 2006 og 2007 HEIMILD: RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI 90,2 89,2 88,1 9,8 10,6 11,9 ■ Íslenskir ríkisborgarar ■ Erlendir ríkisborgarar EFNAHAGSMÁL Þeir sem taka lán hjá Íbúðalánasjóði nú verða nú að greiða 5,3 prósenta vexti af lánum með uppgreiðsluákvæði og 5,5 pró- sent af lánum án þess. Sjóðurinn tilkynnti í gær um 0,45 prósentu- stiga hækkun á útlánavöxtum sínum. Ákvörðunin var tekin í kjöl- far útboðs á íbúðabréfum sem fram fór í gærmorgun. Áður voru vextir sjóðsins á samsvarandi lánum 4,95 prósent og 5,10 prósent. Hvergi er nú hægt að taka lán í íslenskum krónum með undir sex prósenta vöxtum nema hjá Íbúða- lánasjóði. Eftir 0,45 prósentustiga stýrivaxtahækkun Seðlabankans í októberlok, þegar stýrivextir voru hækkaðir í 13,75 prósent, hafa allir viðskiptabankarnir þrír hækkað vexti á íbúðalán. Vaxtahækkanir Íbúðalánasjóðs og bankanna eru vísbending um að stýrivextir Seðlabankans séu farnir að bíta, segir í Vegvísi Landsbankans. Í Morgunkorni Glitnis segir að vaxtahækkun gærdagsins muni að öllum líkindum ýta undir þá ósk Seðlabankans að hægist um á íbúðamarkaði. Hins vegar bendi lítið til þess að þegar sé tekið að hægjast á markaðnum, sé litið til fjölda þinglýstra kaupsamninga og verðþróunar á fasteignamarkaði í október, þrátt fyrir mikla hækkun vaxta á húsnæðislánum bankanna. - hhs FRÁ NORÐLINGAHOLTI Íbúðalánasjóður hefur hækkað vexti sína í 5,3 prósent á lánum með uppgreiðsluákvæði og 5,5 prósent á lánum án þess. Vextir Íbúðalánasjóðs hækka um 0,45 prósent eftir útboð á íbúðabréfum: Stýrivextirnir farnir að bíta LÖGREGLUFRÉTT Tengikassi fyrir rafmagn við Eiðisgranda í Reykjavík brann um klukkan tíu í gærmorgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór á staðinn til að slökkva eldinn og gekk verkið greiðlega. Kassinn eyðilagðist við brunann og var nýr settur upp í staðinn. Ekki er ljóst hvernig eldurinn kom upp. Rafmagn fór af ljósastaurum við götuna og nokkrum nærliggj- andi húsum en starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur höfðu komið rafmagninu aftur á um hádegisbil. - sþs Rafmagn fór í Eiðisgranda: Slökkt í skíðlog- andi tengikassa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.