Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 33
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Bíladellan hefur lengi loðað við Viktoríu Lýðs-
dóttur leikskólastarfsmann. Hún byrjaði því
snemma að safna sér fyrir góðu farartæki og
festi kaup á Hondu Civic þegar hún var fimmtán
ára.
„Ég er forfallin bílaáhugamanneskja. Hondan mín er
samt ósköp venjulegur stelpubíll sem ég er búin að
eiga frekar lengi því ég keypti hana tveimur árum
áður en ég fékk bílprófið. Pabbi vildi að ég færi í
æfingaakstur á eigin bíl frekar en hans,“ segir Vikt-
oría þegar hún er spurð um bílinn. Hún kveðst hafa
unnið í ísbúð sem unglingur og verið dugleg að leggja
fyrir svo hún gæti fest sér bíl sem allra fyrst. Skyldi
hún hafa verið með bíladelluna í blóðinu frá því hún
fæddist? „Já ég man ekki eftir mér öðruvísi en hugs-
andi um bíla. Smitaðist af afa og bróður mínum sem
eru algerir bíladellukallar.“ En hvað gerði hún við
bílinn meðan hún beið eftir prófinu? „Ég þvoði og
bónaði hann næstum vikulega þó ég fengi ekki að
keyra hann og pabbi spaugar með að ég hafi boðið
bílnum góða nótt á hverju kvöldi. Það var auðvitað
frekar fúlt að þurfa að bíða svona lengi eftir að fá að
setja í gang og bruna af stað og þegar ég fékk æfinga-
leyfið fengu foreldrar mínir engan frið. Þá var alltaf
verið á rúntinum.“
Viktoría segir Honduna vera af árgerð 1998. „Ég
fékk hana fyrir fjórum árum og hún hefur aldrei
bilað. Þó hef ég notað hana heilmikið á höfuðborgar-
svæðinu og oft farið á henni upp í sveit. Hún hefur
reynst mér sérlega vel,“ segir hún og strýkur nett
yfir húddið.
Viktoría kveðst á tímabili hafa hugleitt að fara í
bifvélavirkjun en af því hafi ekki orðið enn. Spurð
hvort hún gæti gert við Honduna ef hún bilaði svarar
hún hlæjandi. „Ég fer létt með að skipta um perur og
dekk en ræð ekki við stórvægilegar bilanir. Þá fengi
ég hjálp hjá bróður mínum og mági.“
Þó Viktoría sé ánægð með Honduna viðurkennir
hún að annar draumabíll sé í sigti. „Ég neita því ekki
að mig langar að fara að skipta og sportbíll af gerð-
inni Mazda3 heillar.“ gun@frettabladid.is
Keypti bíl tveimur árum
áður en hún fékk bílpróf
„Ég hef haldið tryggð við Honduna og hún við mig,“ segir Viktoría. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEL BÚIN Í VETUR
Húfur, treflar,
vettlingar,
grifflur og
kragar eru
klæðilegir fylgi-
hlutir í kuldanum.
TÍSKA 4
Meiri gæða-
harðfisk!
Samkvæmt nýrri rannsóknarskýrslu Matís er harðfiskur enn hollari en áður
var talið, prótínríkur og inniheldur mikið af vítamínum og bætiefnum.
Okkar kælda framleiðsluaðferð kemur mjög vel út í öllum samanburði.
Fæst í flestum matvöruverslunum og á bensínstöðvum um allt land
N Æ R I N G O G H O L L U S T A
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
RÝMRA UM LEXUS
Lexus opnaði nýjan sýningarsal
í gær að Nýbýlavegi í Kópavogi
sem rúmar fleiri bíla en
sá fyrri.
BÍLAR 2