Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 84
52 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
(1) Jónas fæddist á
Hrauni í Öxnadal árið
1807. Jón Sigurðsson
(1811-1879) fæddist
aftur á móti á Hrafns-
eyri í Arnarfirði.
(2) Kvæði Jónasar heitir
Alsnjóa.
(3) Björn Halldórsson (1724-
1794) ræktaði kartöflur í Sauð-
lauksdal fyrstur Íslendinga
árið 1760. Eggert Ólafsson
(1726-1768), mágur Björns, til-
einkaði honum kvæðið Búnað-
arbálk.
(4) Ljóð Jónasar heitir Ferða-
lok. Þar má finna ljóðlínuna
„Greiddi ég þér lokka/við
Galtará“. Galtará er ekki í
Grafarvogi.
(5) Í norrænni goðafræði er
Fjölnir sonur ássins Freys og
Gerðar. Líklegt er að íþrótta-
félagið í Grafarvogi dragi nafn
sitt þaðan eins og Fjölnismenn.
(6) Rétt er að segja að hlaupa
undir bagga.
(7) Jónas samdi sannarlega
mörg nýyrði, til
dæmis ljósvaki og
fjölmiðlar. Apótek
og harmóníka eru
þó ekki í þeim hópi
af augljósum
ástæðum og orðið flatskjár
er varla frá Jónasi
runnið.
(8) Magnús Þór Sig-
mundsson samdi lag
og texta við Ísland
er land þitt.
(9) Passíusálm-
arnir eru eftir
Hallgrím Péturs-
son (1614 –1674).
(10) Sigurður
Breiðfjörð (1798-
1846) átti í vináttusambandi við
Rósu Guðmundsdóttur frá
Vatnsenda (1795–1855) og orti
ástúðleg ljóð til hennar.
(11) Jónas lést í Kaupmanna-
höfn árið 1845 af völdum blóð-
eitrunar sem stafaði af fótbroti
eftir að hann féll í tröppum.
Jón Thoroddsen (1898-1924)
lést aftur á móti eftir að hann
varð fyrir sporvagni í Kaup-
mannahöfn.
(12) Jónas dó vissulega langt
fyrir aldur fram og var ófáum
harmdauði en var þó orðinn 37
ára þegar hann bar beinin, tíu
árum eldri en Janis
Joplin, Jim Morrison
og Kurt Cobain. Færa
má rök fyrir því að
Jónas hafi jafnvel
verið betra skáld en
þau. Benda má þó
á að Kristján
Jónsson fjalla-
skáld var 27 ára þegar hann
safnaðist til feðra sinna.
(13) Stytta af Jónasi eftir Einar
Jónsson var afhjúpuð árið 1907
í Hljómskálagarðinum og
stendur þar enn.
Staðreyndirnar
bak við bullið
Í tilefni dags íslenskrar
tungu í gær brá Berg-
steinn Sigurðsson á leik
í Bakþönkum og hrærði
íslenskum menningararfi
saman við stirðbusalegt
stofnanamál, ambögur
og rök- og staðreynda-
villur. Að gefnu tilefni
er hér skautað yfi r það
helsta:
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Jónas Hallgrímsson á afmæli í dag og hefði orðið 200 ára
hefði hann lifað. Íslendingar eiga
Jónasi margt að þakka. Jónas
fæddist á Hrafnseyri í Arnar-
firði (1) á nítjándu öld. Talið er að
hann hafi átt erfiða æsku, að
minnsta kosti orti hann ekki
mikið um æskustöðvar sínar.
Sumir halda þó að hið dularfulla
kvæði All snjóað (2) sé kannski
um Arnarfjörð enda var þar oft
snjóþungt. Jónas var líka nátt-
úrufræðingur og fyrstur manna
til að rækta kartöflur í Sauð-
lauksdal og skrifaði um það bók-
ina Búnaðarbákn. (3)
JÓNAS gaf til að byrja með út
margar bækur sem vöktu ekki
athygli. Hann sló hins vegar í
gegn með ljóðinu Ferðalag, þar
sem hann yrkir meðal annars
„greiddi ég þér lokka við Grafar-
vog“(4). Þar strax sýndi Jónas
hvað hann var langt á undan sinni
samtíð, með því að yrkja kvæði
um Grafarvog löngu áður en
Grafarvogur varð til. Ég held að
þetta sé í fyrsta sinn sem þetta
kemur fram. Það má því með
sanni segja að Jónas hafi verið
fyrsta Grafarvogsskáldið, langt á
undan Sigmundi Erni. Jónas var
líka í skálda hópnum Fjölni sem
íþróttafélagið í Grafarvogi er
nefnt eftir. (5)
JÓNAS var uppi á tíma þegar
Íslendingar töluðu ekki góða
íslensku. Jónas og Fjölnismenn
voru aðilar að ákvörðunartökunni
um að snúa vörn í sókn. Jónas
hljóp undir bakka (6) með þjóð-
inni og samdi mörg nýyrði, til
dæmis apótek, harmóníka og flat-
skjár. (7) Þannig er Jónas enn í
dag gríðarlega áhrifamikill í
íslensku hvað málbeitingu varð-
ar. Jónas elskaði Ísland og samdi
til dæmis ljóðið Ísland er land þitt
(8) sem frægt lag var samið við
og sumir vilja að verði spilað á
landsleikjum. Íslendingar elska
líka Jónas. Bækur eftir Jónas eru
enn mjög vinsælar á Íslandi, sér-
staklega fyrir fermingar, sérstak-
lega Passíusálmarnir. (9) Jónas
var líka mjög rómantískur eins
og sést á ástarljóðum hans til
Vatnsenda-Rósu. (10)
JÓNAS dó langt fyrir aldur fram
og var ekki ófáum harmdauði
þegar hann varð fyrir sporvagni í
Kaupmannahöfn árið 1924. (11)
Jónas var ekki nema 27 ára þegar
hann dó. (12) Það merkilega við
það er að margt annað frægt fólk
var líka 27 ára þegar það dó.
Jónasar verður alla veganna allt-
af minnst á sama vettvangi og
Janis Joplin, Jim Morrison og
Kurt Cobain. Jónas var sko ekki
verra skáld en þau. Hvernig er
það, verðum við ekki að fara að
reisa styttu af Jónasi? (13)
Jónas minn
Hin árlega tískusýning
nærfatamerkisins Victoria’s
Secret fór fram í Los Angel-
es á fimmtudaginn. Hennar
er yfirleitt beðið með
mikilli eftirvæntingu, enda
koma þar saman helstu
ofurfyrirsætur heimsins og
vinsælir skemmtirkraftar
– svo ekki sé minnst á nær-
fötin góðu.
Aðdráttarafl tískusýningarinnar
er alltaf mikið, og í ár höfðaði
atriði Kryddstúlknanna aukalega
til áhorfenda. Þær fluttu tvö lög á
sýningunni og ýttu þannig endur-
komu sinni úr vör. Þær voru ekki
einu skemmtikraftarnir, því rapp-
arinn Will.I.Am hljóp í skarðið
fyrir Kanye West, sem afboðaði
komu sína vegna fráfalls móður
sinnar í síðustu viku. Þá
söng tónlistarmaðurinn
Seal einnig fyrir gesti ásamt
eiginkonu sinni, Victoria’s
Secret-fyrirsætunni
Heidi Klum.
Klum kom einnig fram
á sýningunni, eins og
aðrar víðfrægar fyrir-
sætur á borð við Adriönu
Lima, Karolinu Kurkovu
og Alessöndru Ambrosio,
sem allar teljast til engla Victor-
ia’s Secret.
Leyndar-
málið
af hjúpað
Tískusýning Victoria‘s Secret var
alveg jafn íburðarmikil í ár og áður,
enda mikið lagt í að gera hana að
skemmtiefni í alla staði. Þó að vænt-
anlega leggi fáar konur í snjókorns-
búninginn eða páfuglsvængina mátti
einnig sjá praktískari
nærföt á sýningar-
pallinum, eins
og hefðbundin
nærfatasett
eða korsel-
ettur.
ÍBURÐARMIKIL SÝNING
LA VIE EN ROSE
S T Ó R B R O T I N S A G A E D I T H P I A F
KV IKMYND EFT I R OL IV I ER DAHAN
MAR ION COT I L LARD
„STÓRKOSTLEGASTA UMBREYTING SEM FEST HEFUR VERIÐ Á FILMU;
MARION COTILLARD UMBREYTIST Á SÁL OG LÍKAMA OG EDITH PIAF BIRTIST OKKUR LJÓSLIFANDI.
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFI NÆSTA ÁRS ER FUNDINN!“
- STEPHEN HOLDEN, NEW YORK TIMES, 28. FEBRÚAR 2007
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Engin truflun3Minna af auglýsingum2Ekkert hlé1
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
FRUMSÝND 15. NÓVEMBER Í REGNBOGANUM