Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 17. nóvember 2007
EGG Verk eftir Magneu Ásmundsdóttur.
Magnea Ásmundsdóttir myndlistarmaður opnar
einkasýningu sína, Á ferð, í Gallerí Ágústi,
Baldursgötu 12, í dag kl. 16.
Magnea notar ólíka miðla í verkum sínum á
sýningunni, að hætti „konsept“-listamanna. Hún
sýnir til dæmis ljósmyndir, myndbandsverk,
brotið postulín, púsluspil, egg og leikfangabíla
sem hún setur í frásagnarsamhengi og leiðir
þannig áhorfandann í ferðalag.
Verk Magneu virðast við fyrstu sýn léttvæg og
leikandi, en undir yfirborðinu býr alvaran.
Magnea varpar fram spurningum um lífið og
dauðann, valdabaráttu og lífshlaupið í heild.
Magnea hefur mikið unnið með „konsept“-list,
bæði í stórum verkefnum og þeim minni.
Magnea menntaði sig í Myndlista- og handíða-
skóla Íslands og bætti við sig menntun í Noregi og
Þýskalandi. Síðan námi lauk hefur Magnea haldið
einkasýningar í Reykjavík og tekið þátt í fjölda
samsýninga víða í Evrópu.
Myndlist hennar er oft huglæg og á stundum
ekki mjög efnismikil, en hún nálgast viðfangsefni
sín af næmi og ljáir þeim dýpt og þunga. - vþ
Blönduð tækni í Ágústi
LIST Á LANDSBYGGÐINNI Sýningin Salon
stendur fram að áramótum.
Sýning á myndverkum seyð-
firskra listamanna, leikinna og
lærðra, verður opnuð á Vestur-
vegg Skaftfells, Austurvegi 42 á
Seyðisfirði, í dag kl. 16. Sýningin
nefnist Salon.
Gallerí Vesturveggur er á
jarðhæð Skaftfells, í Bístrói
menningarmiðstöðvarinnar á
Seyðisfirði. Markmið Vestur-
veggsins er að gefa ungum
myndlistarmönnum tækifæri til
að sýna verk sín á opinberum
vettvangi og að gefa fólki
tækifæri til að kynna sér þá
grósku sem er í myndlist á
Íslandi. Jafnframt er Vestur-
veggurinn gott innlegg í menn-
ingarlíf Austurlands og gefur
þannig Skaftfelli, miðstöð
myndlistar í fjórðungnum,
tækifæri á að auka sérstöðu sína
enn frekar.
Öllum er hjartanlega velkomið
að mæta á opnunina í dag og
fagna með listamönnunum.
Sýningin stendur fram að
áramótum. - vþ
List fyrir
austan
FIM. 15. NÓV. KL. 20 -
FRESTAÐ
TÓNLEIKAR MANNAKORNA
LAUG. 17. NÓV. KL. 17
TÍBRÁ: FÍFILBREKKA GRÓIN
GRUND
JÓNAS 100 ÁRA
Miðaverð 2000/1600 kr.
SUN. 18. NÓV. KL. 20
LEONE TINGANELLI
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Miðaverð 2000 kr.
MIÐV. 21. NÓV. KL. 20
TÍBRÁ: LIENE CIRCENE
PÍANÓTÓNLEIKAR
Miðaverð 2000/1600 kr.
Stórtónleikar í Íþróttahöllinni á Akureyri
fimmtudagskvöldið 22. nóvember kl. 21:00
Guðrún
og Friðrik
koma fram ásamt Ólafi Gauk
og stórhljómsveit og flytja lög
af öllum plötunum sínum.
Miðasala í Eymundsson Glerártorgi
og í síma 540 2170.
Miðaverð aðeins 2.900.-::