Fréttablaðið - 17.11.2007, Síða 8
17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
PÓLLAND, AP Ný ríkisstjórn sór
embættiseið í Póllandi í gær.
Fyrir henni fara fyrrverandi
andófsmenn gegn kommúnista-
stjórninni sem ríkti í landinu til
ársins 1989, en þeir vilja beita sér
fyrir markaðshyggjuumbótum á
efnahagskerfinu.
Lech Kaczynski, forseti Póllands,
tók embættiseiðinn af nýja
forsætisráðherranum Donald Tusk,
flokksleiðtoga Borgaravettvangs,
og öðrum ráðherrum í ríkisstjórn-
inni við athöfn í forsetahöllinni í
Varsjá. Hún markar upphafið að
stjórnartíð samsteypustjórnar
Borgaravettvangs og Pólska
bændaflokksins, sem er búist við
að muni leggja sig fram um að bæta
tengslin við grannríki Póllands og
Evrópusambandið sem höfðu liðið
undan harkalegri þjóðernisstefnu
fyrri stjórnar síðastliðin tvö ár, en
fyrir henni fór Jaroslaw Kaczynski,
eineggja tvíburabróðir forsetans.
Með Tusk við stjórnvölinn er
þess vænst að ýmsum umbótum í
anda frjálshyggju í efnahagsmálum
verði hrint í framkvæmd, svo sem
aukinni einkavæðingu, afnámi
hafta og að evran verði með hraði
tekin upp sem gjaldmiðill í stað
pólska zlotýsins.
Meðal ráðherra í nýju stjórninni
er Radek Sikorski, sem var varnar-
málaráðherra í fyrri stjórn en
tekur nú við utanríkismálunum.
- aa
Ný ríkisstjórn sór embættiseið í Póllandi í gær:
Tusk hyggur á kerfisumbætur
SÓR EIÐ Lech Kaczynski forseti og nýi
forsætisráðherrann Donald Tusk við
athöfnina í forsetahöllinni í Varsjá í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hörður Torfason tónlistarmaður og
Þjóðleikhúsið hafa náð sátt í skaðabótamáli sem
Hörður höfðaði á hendur leikhúsinu eftir að
tónleikaröð hans í Þjóðleikhúskjallaranum var
aflýst.
Haustið 2005 samdi Þjóðleikhúsið við Hörð um að
halda sjö tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum þá um
veturinn. Fyrstu tónleikarnir fóru fram í október en
vegna dræmrar mætingar ákvað Þjóðleikhúsið að
ekki yrði framhald á tónleikaröðinni með Herði.
„Það mættu kannski einn eða tveir gestir, enda
voru tónleikarnir ekkert auglýstir og markaðssetn-
ingin í kringum þá glötuð,“ segir Hörður, sem aflýsti
árlegri tónleikaferð sinni um Austurland til að spila
á tónleikaröð Þjóðleikhúskjallarans og kveðst hafa
orðið fyrir fjárhagslegu tjóni af völdum þess.
Í kjölfarið stefndi Hörður Þjóðleikhúsinu fyrir
samningsbrot, en það neitaði að borga honum fyrir
tónleikana sex sem eftir voru.
Aðalmeðferð málsins átti að hefjast í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, en eftir að Tinna Gunnlaugsdótt-
ir Þjóðleikhússtjóri og Örn Árnason leikari, sem
hafði milligöngu vegna samningsins, höfðu gefið
skýrslu fyrir dómi, náðist sátt í málinu. Hún felst í
því að Þjóðleikhúsið greiðir Herði bætur fyrir
tónleikaröð sem aldrei varð. Hörður neitaði að tjá
sig um upphæðina en sagði hana vera einhver
hundruð þúsunda. Hann sagði upphæðina þó minni
en um var samið í fyrstu.
„Ég er voða lítið fyrir málaferli og eitthvert vesen
og gekk að sáttinni því mér var ráðlagt að gera það,
ég kaus það frekar en að standa í einhverju stappi,“
segir Hörður Torfason. - æþe
Þjóðleikhúsið bætir tekjutap vegna aflýstrar tónleikaraðar í Þjóðleikhúskjallaranum:
Herði Torfa bættur skaðinn
HÖRÐUR TORFASON
TÓNLISTARMAÐUR
Stefndi Þjóðleikhúsinu
fyrir samningsbrot,
en leikhúsið aflýsti
tónleikaröð hans. Hann
þáði sátt frekar en að
standa í málaferlum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FÉLAGSMÁL „Það er mjög mikill
uggur í fólki vegna þessarar ákvörð-
unar,“ segir Gylfi Baldursson,
heyrnarfræðingur og íbúi í húsnæði
Sjálfsbjargar í Hátúni 12, um þá
ákvörðun samtakanna að hætta
rekstri húsnæðisins.
Um 70 manns búa í Hátúni 12 en
þar er rekið heimili fyrir hreyfi-
hamlaða og hjúkrunarheimili. Ragn-
ar Gunnar Þórhallsson, formaður
Sjálfsbjargar, hefur greint frá því
að reksturinn sé orðinn of þungur,
ekki sé við hæfi að frjáls félagasam-
tök reki úrræði fyrir velferðarkerf-
ið auk þess sem það sé ekki í takt við
hugmyndafræði nútímans að láta
fatlaða búa í sérstökum blokkum.
Svipaðar hugmyndir eru einnig uppi
hjá Öryrkjabandalagi Íslands, sem
áformar að leigja ófötluðu fólki
íbúðir á húsnæði bandalagsins í
Hátúni 10 til að blanda byggðina.
Gylfi segir hugmyndir sérfræð-
inga og yfirvalda um blöndun
hljóma fallega en um leið lykta af
forræðishyggju gagnvart minni-
hlutahópum. „Ég óttast að úr þessu
verði sýndarblöndun. Fólki verði
tvístrað tvist og bast um borg og bý,
væntanlega ekki í dýrustu svæðin
heldur í úthverfin þar sem langt
getur verið í þá þjónustu sem það
þarfnast,“ segir Gylfi.
„Ég veit að það er mikið af fólki
hér sem þekkir varla annan veru-
leika en þann sem hér er. Miklar
líkur eru á að þetta fólk kunni að
einangrast enn meira ef það þarf að
búa eitt og langt frá nauðsynlegri
þjónustu. Ég hef heyrt að margir
sem hér búa myndu hreinlega leggja
upp laupana ef þeir misstu félags-
skap sinn hér,“ segir hann.
Gylfi segir áformin úr takt við
kröfur 21. aldarinnar. Stjórnvöld
hafi þó ekki treyst sér til að leggja
fram mikið fé til rekstursins sem
þar fer fram og hann geti ekki
ímyndað sér að skyndilega verði til
peningar til að reka þjónustuna úti
um allan bæ.
Gylfi segir að suma verði ekki
hægt að steypa í sama mót og fjöld-
ann. „Ég lamaðist níu ára gamall
eftir að hafa fengið lömunarveik-
ina. Það var allt gert til að gera mig
að eðlilegum strák aftur og kostað
til fjölda aðgerða, kílóum af
spelkum og leðri. Nítján ára gat ég
gengið örfáa metra með erfiðis-
munum og hækjum. Það var ekki
fyrr en þá sem danskur læknir
spurði mig hvernig mér liði best.
Ég sagði honum að mér liði best í
hjólastól. Stýrikerfið hafði verið
sett í gang en strákurinn var aldrei
spurður,“ segir Gylfi og bætir við
að svipað hafi gerst þegar sérstofn-
anir fyrir heyrnarlausa hafi verið
leystar upp án þess að úrræði væru
til staðar í samfélaginu. Hann
gruni að það sama gerist í þeim
breytingum sem eru í bígerð gagn-
vart búsetuúrræðum öryrkja.
karen@frettabladid.is
Óttast að um sýndar-
blöndun sé að ræða
Gylfi Baldursson heyrnarfræðingur óttast að hugmyndir yfirvalda um svokall-
aða blöndun öryrkja verði ekki til góðs. Hugmyndirnar hljómi fallega en lykti
af forræðishyggju gagnvart minnihlutahópum. Íbúar Hátúns séu mjög uggandi.
SÝNDARBLÖNDUN Gylfi Baldursson heyrnarfræðingur segir stýrikerfi oft sett í gang til
að steypa allt fólk í sama mót. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Eina blaðið á sunnudegi
Allt sem þú þarft – alla daga
“Ísland gæti verið fyr-
irmyndarland í innfl ytjendamál-
um.” Paul Nikolov, fyrsti inn-
fl ytjandinn á Alþingi.
Magga Stína og Gísli Einars-
son: “Það sem gerir mig hálf-
þunglyndan er að það er enda-
laust otað að manni einhverjum
stinningarlyfjum og hvað heit-
ir það? “Penis enlargement”.
Fleygustu orð Íslendinga.
Skrautlegir eigendur í enska
boltanum.
Sport
Eina blaðið með allt um
íþróttir laugardagsins.
Menning
Týnd verk frá stríðsárunum
eftir Þorvald Skúlason komin í
leitirnar.