Fréttablaðið - 17.11.2007, Page 44
● hús&heimili
Við hittumst á haustsíðdegi og
fangaði Unnur strax athygli mína
þar sem ég mætti henni hárri og
glæsilegri með snjóhvíta hund-
inn Karra. Umhverfis hús Unnar
er mikið landsvæði og gróður og
liggur það stutt frá hinu fallega
Elliðavatni. Þegar inn er komið
fyllist maður þeirri tilfinningu að
hér sé gott að vera og vill helst
ekki fara aftur. Unnur segir að
heimili hennar sé eins og nokk-
urs konar safn þar sem finna má
hluti sem hún hefur viðað að sér
um árin.
„Ég bjó í tólf ár erlendis. Þar af
bjó ég í fimm ár á skútunni Kríu
og sigldi um heiminn. Það var lítið
pláss þar og því bara hafðir með-
ferðis nauðsynlegustu hlutir. Ég
kann því vel að meta það núna
að eiga heimili þar sem ég get
haft allt í kringum mig sem safn-
ast hefur saman á ævinni,“ segir
Unnur einlæg enda eyðir hún
drjúgum tíma heima við. „Stund-
um vinn ég heima. Síðustu sjö árin
hef ég unnið eingöngu við ritstörf
en síðasta vetur leigði ég vinnu-
stofu í Reykjavíkurakademíunni
og fannst mér mjög gott að fara
líka aðeins að heiman og í vinn-
una,“ útskýrir Unnur.
Unnur hefur búið á Lynghóli í
tæp tíu ár og er ekkert á leiðinni
í burtu. En hvað kom til að hún
valdi þennan sérstaka stað til að
búa á? „Ég var að leita mér að stað
aðeins fyrir utan borgina og þegar
ég var að klára menntaskóla hafði
ég unnið á sumrin sem fjárgæslu-
maður borgarinnar og fengið þá
lánaðan lítinn kofa sem var á land-
inu við hliðina á þessu húsi. Ég bjó
þar með hestana mína í kringum
mig og svo var ég að reka kindur
út úr Reykjavík þannig ég var eins
konar smali Reykjavíkur,“ segir
Unnur kímin og heldur áfram:
„Þannig hafði ég skotið rótum hér
á þeim tíma. Svo fyrir um tíu árum
þegar ég er að leita mér að hús-
Leynilundur í fögrum skógi
● Í Heiðmörk er fallegt um að litast og fyllist maður mikilli kyrrð í hjarta þegar ekið er þrönga vegarslóðana. Þó svo borgin sé steinsnar hinum megin við
vatnið þá raskar það ekki þeirri ró og friði sem einkennir svæðið. Unnur Jökulsdóttir, rithöfundur með meiru, er það lánsöm að búa á þessum töfrastað en
þar hefur hún skapað sér yndislegt heimili fullt af fögrum munum og andagift.
Í ævintýra-
garðinum
gróð-
ursæla
er lítill
kofi fyrir
heimasæt-
una.
Flísarnar á baðher-
berginu eru innfluttar
frá Mexíkó en Unnur
sagði að flísaleggj-
arinn hefði í fyrstu
fengið áfall þegar
hann sá hve skakkar
þær voru en sættist
smám saman á þær
þegar þær röðuðust
saman. Könnurnar
í glugganum keypti
faðir Unnar í Istanbúl.
Unnur
er mikill
nátt-
úruunn-
nandi. Í
garðin-
um henn-
ar vaxa
tré sem
eru ævin-
týraleg
á að
líta þar
sem þau
teygja
anga sína
út og
suður.
Eldiviður úr skóginum
tilbúin til notkunar í
kamínuna.
Vaskurinn
er upp-
runalegur
og hefur
alltaf verið
í húsinu.
Hundurinn Karri í ástarhorninu svokallaða sem tekur mið af feng-shui fræðum.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
Ö
LU
N
D
U
R
17. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR4