Fréttablaðið - 17.11.2007, Page 68
36 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
Páll Óskar hefur verið ein skær-
asta poppstjarna landsins síðustu
fimmtán árin. Það segir sitt um
stöðugildi íslenskra stjarna að
þegar ég hitti Pál er hann sjálfur á
fullu við að ganga frá upplagi nýju
plötunnar sinnar, Allt fyrir ástina.
Austurríska geisladiskaverk-
smiðjan klikkaði um tvær vikur
svo Palli brá á það ráð að láta
framleiða fyrstu 1.700 eintökin á
Íslandi. Nú situr hann í kjallaran-
um heima hjá hörpuleikaranum
Moniku Abendroth og föndrar.
Þetta er eins og á síldarplani. Palli
og vinir hans eru í akkorði við að
koma plötunni saman. ,,Þetta er
limited edition,“ segir Palli
galvaskur, ,,handmade by me“.
Nýju plötuna gefur Palli út sjálf-
ur með áðurnefndri Moniku.
Saman reka þau Pop ehf. Vöru-
lagerinn er heima hjá Moniku og
hún keyrir út diskinn. Það ætti að
verða brjálað að gera hjá henni
næstu vikurnar.
Palla líður best þegar hann
hefur alla þræði í hendi sér.
,,Smekkleysa gaf út Stuð-plötuna,
en ég endaði með að borga helm-
inginn fyrir hana,“ segir hann.
,,Eftir þá reynslu yppti ég bara
öxlum og spurði sjálfan mig: af
hverju geri ég þetta ekki bara
sjálfur? Palla-platan 1995 er því
fyrsta platan undir merkjum Pop
og ég hef gefið allt út sjálfur síðan,
nema eina jólaplötu sem Skífan
gaf út. Eftir þá reynslu ákvað ég
bara að halda áfram að gera þetta
sjálfur. Það er meiri vinna en líka
meiri ávinningur. Allt sem ég hef
gefið út hefur gengið mjög vel
fyrir utan Deep Inside sem flopp-
aði 1999. Það er líka eina floppið.
Ef plöturnar ganga illa þá vil ég
taka ábyrgð og borga tapið sjálfur,
en ef þær ganga vel vil ég líka
njóta uppskerunnar.“
Ekki á leið í rokkið
Myndirðu segja að þetta langa hlé
á milli teknóplatna, átta ár, sé til-
komið vegna þess að Deep Inside
floppaði á sínum tíma?
,,Það er partur af því, já. Budd-
an mín leyfði ekki að ég færi í
svona stórt verkefni aftur. Á þess-
um árum hefur buddan lést og
þyngst til skiptis, en ég náði að
verða skuldlaus í júní 2005. Frá og
með þeim degi bjó ég til diskó-
sparigrís og fór að leggja fyrir
fyrir þessari plötu. Hún er unnin
án þess að taka eitt einasta lán. Ég
er í þeirri öfundsverðu aðstöðu að
skulda engum, hvorki manneskju
né stofnun.“
Þú ert þá eini skuldlausi maður-
inn á landinu …
,,Nei, ég er líka skuldlaus,“ segir
Monika. ,,Ég hef þýska genið í
mér.“
Allt fyrir ástina er stuðplata,
ekki rétt – engar ballöður?
,,Jú, það er ein Gazebo-ballaða í
endann. Platan er hugsuð eins og
dj-gigg. Ég byrja þau alltaf í med-
ium tempói, keyri svo upp í tryllta
hittara, lendi þeim aðeins um mið-
bikið til að geta keyrt þau aftur
upp í klímaxið. Og enda svo á
vangadansi. Þannig er platan.“
Nú hefurðu fengist við alls konar
tónlist á ferlinum. Er einhver tón-
listartegund sem þig langar að
taka fyrir en hefur ekki gert enn
þá?
,,Neibb, það held ég ekki,“ segir
Palli eftir stutta umhugsun. ,,Ég
er til dæmis búinn að komast að
því að ég er enginn rokkari. Ég
nýt þess ekki að hlusta á rokk af
plötum en fæ rosa kikk út úr rokki
ef það er spilað á tónleikum beint í
eyrun á mér. Bestu tónleikar sem
ég hef farið á eru tónleikarnir með
Rammstein og Ham. En ég hef
ekki heyrt þessa orku fangaða á
plötum.“
Ástin og Guð
Nýja platan er hálfgerð konsept-
plata þar sem ástin er rauði þráð-
urinn. Hvað kom til?
,,Hugmyndin kviknaði þegar ég
var að horfa á músikvídeó í sjón-
varpinu. Svo gífurlegt ójafnvægi í
samskiptum kynjanna blasti við.
Ég hugsaði með mér: Djísús, hvað
ég er orðinn þreyttur á að horfa
upp á stelpur á bikiníi einum fata
og háum hælum á meðan strák-
arnir við hliðina á þeim eru kapp-
klæddir með húfu, trefil og vett-
linga. Textarnir ganga allir út á
það að ástarsambönd séu einskis
virði nema viðkomandi sé að
sturlast úr ást og helst í sjálfs-
morðshugleiðingum eða sé tilbú-
inn til að gefa sér viðkomandi
algjörlega á vald. Ég vil ekki að
popptónlist komist upp með þetta
bull gagnrýnislaust og ákvað að
búa til plötu þar sem ástin er skoð-
uð frá öllum hliðum. Það eru
textar þarna sem eru sjúkir og
óheilbrigðir og líka þar sem ástin
er búin að ná jafnvægi.“
Hvað er þá ást – þú færð sex
orð.
,,Samband milli tveggja jafningja
í jafnvægi.“
Öll þessi ást og þú bara sóló.
Hvenær bjóstu síðast með ein-
hverjum?
,,Guð minn almáttugur … var það
ekki frostaveturinn mikla? Ég fíla
sjálfan mig í botn og þarf engan
karlmann inn í líf mitt til að gera
mig hamingjusaman. Ég er ham-
ingjusamur.“
Hvað með að ættleiða barn – er
það eitthvað sem þig langar til að
gera?
,,Ég að ættleiða?! Nei, það er nú
ekki á dagskránni.“
En langar þið ekki til að koma
sæði þínu einhvern veginn á fram-
færi …
,,Æ kommon! Ég er alveg til í að
skoða svona en fyrst verð ég að
vera kominn í samband. Ég er ekki
að fara að ala upp barn einn,
sko!“
Hvað finnst þér um tregðu þjóð-
kirkjunnar við að leyfa samkyn-
hneigðum að ganga í hjónaband?
Skiptir það þig einhverju máli?
,,Við Monika erum búin að koma
fram í hundruðum brúðkaupa,
bæði í „straight“ og „gay“-brúð-
kaupum, og við sjáum engan mun
á þessari athöfn svo fremi sem
kærleikur og ást er forsendan
fyrir henni. Það eru prestar sem
eru pro-gay og mér finnst að það
eigi að leyfa það að gifta samkyn-
hneigða. Hinir, sem vilja ekki gifta
samkynhneigða, gott og blessað,
þeir hafa þann rétt, en þeir eiga þá
ekki að þiggja laun frá þessu sama
fólki.“
Þú trúir á Guð …
,,Já, ég trúi því að Guð hafi skapað
mig og fíli mig í botn og ég fíla
hann líka í botn.“
En ef Guð er í rauninni jafn for-
pokaður og sá í gömlu Biblíunni –
Viltu þá samt trúa á hann?
,,Ég kaupi ekki þann Guð. Þessi
refsiglaði Guð í Biblíunni er auð-
sjáanlega skrásettur af mönnum
sem vildu nota hann sem stjórn-
tæki. Ég trúi því að Guð búi í hjart-
anu á mér en ekki í kirkjunni. Mín
upplifun af Guði er einstaklings-
bundin og persónuleg.“
Mögnuðustu giggin eru jarðarfarir
Það verða 15 ár á næsta ári
síðan þú hellti þér óskiptur út í
poppbransann. Á þessum tíma
hefur samfélagið gjörbreyst,
skarpari skil orðin á milli ríkra og
fátækra. Færðu stundum djobb
hjá ríka fólkinu – og eru það best
borguðu giggin?
,,Nei, ekkert endilega. Ég hef orðið
þeirrar gæfu aðnjótandi á ferlinum
að fá að syngja fyrir allt litrófið.
Ég hef sungið fyrir æðstu ráða-
menn þjóðarinnar og mjög ríkt
fólk. Ég hef líka fengið að syngja
fyrir deyjandi fólk á sjúkrahús-
um, börn á barnaheimilum, á
menntaskólaböllum, í mötuneyt-
um hjá verkafólki og líka í beinni
útsendingu fyrir framan 300
Ég stend og fell
með diskóinu
Páll Óskar er mættur með látum. Ný plata og útgáfutónleikar á Nasa í
kvöld. Palli setur í gang nákvæmlega klukkan ellefu og stendur sína plikt til
klukkan sex. Ég hitti hann á síldarplani á Seltjarnesi.
GÓÐAN DAGINN
Dr. Gunni tekur viðtal