Fréttablaðið - 17.11.2007, Qupperneq 70
38 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
■ Á uppleið
„Twenties“-klippingin. Stutt,
smart og töffaralegt.
Að snobba niður á við. Kaupa
borðstofuna í Góða hirðinum og
keyra á sjö ára gömlum Subaru.
Vænlegt hösl á börunum. Verð-
bréfasalar grátandi í hverju horni yfir
slæmu gengi markaðarins.
Skipulag. Nú fara jólin að nálgast og
hver helgi þarf að vera niðurnjörvuð.
Ekki gleyma að panta hreindýrið og
jólaklippinguna.
Að flytja til útlanda. Húsnæðis-
verð … leiguverð … matvöruverð. Allt
að fara til fjandans á Íslandi.
■ Á niðurleið
Brasilískt vax fyrir karlmenn.
Hvað varð um hinn sanna íslenska
víking? Gilzenegger er svoooo 2004.
Þulur.
Algjörlega
úrelt starf
sem þjónar
engum
tilgangi nema
augnapunti
fyrir karl-
menn. En
þeim finnast
þær ekki einu sinni töff.
Reykingar í bílum. Síðasta vígið
þarf að falla. Það er gersamlega við-
bjóðslegt að sitja í níkótínstybbu og
ýtir líka undir bílveiki.
Glamúr-gallabuxur. Allt sem er
með einhverjum áföstum hringjum,
sylgjum, steinum eða dótaríi er gífur-
lega púkó.
Egill Helgason. Verður forpokaðri
með viku hverri og á
heima á steinöld
þegar karl-
menn drógu
kvenfólk inn í
hellinn sinn á
hárinu.
Hver voru morgunverkin?
Sættast við alheiminn á ný, fara
svo á klósettið og því næst að lesa
upp í Menntaskólanum við Sund.
Eftirlætismánuður ársins og af
hverju?
September. Kannski vegna þess
að ég á afmæli í lok ágúst. En það
er eitthvað við það að náttúran í
kring er að deyja eða leggjast í
dvala sem fyllir mig orku. Svo er
líka hið stórgóða Kurt Weill-lag
September Song til að minna
mann á að tíminn líður, en það
gleymist stundum.
Ef þú yrðir að vera einhver fræg
manneskja í einn dag, hver mynd-
irðu vilja vera og af hverju?
Jón Ásgeir. Ætli ég myndi ekki
byrja á því að lækka matvöru-
verðið. Og fara síðan að eyða eitt-
hvað af þessum peningum.
Hver er þín syndsamlegasta
nautn?
Nautnir eru aldrei syndsamlegar.
Sumar er bara erfiðari að nálgast
en aðrar.
Ef þú yrðir sendur í tímavél eitt-
hvert og látinn dúsa þar í viku,
hvaða tíma myndirðu velja þér?
Helst vildi ég fara sem víðast. En
þar sem ég er nýbúinn að vera að
skrifa mikið um Finnland og Sví-
þjóð á 6. öld myndi ég vilja fara í
blótpartí í Uppsalahofi á þeim
tíma. Og síðan líklega koma heim
og henda bókinni.
Hvaða freistingu áttu bágt með að
standast?
Þær allar. En sumar láta ganga á
eftir sér.
Þú festist í lyftu í sólarhring:
Hvaða fimm hluti viltu hafa með
þér?
Biblíu til að lesa, klámblað til að
skoða, vasaljós, pakka af sígarett-
um, kveikjara.
Hvað gerirðu þegar þú ert and-
vaka?
Það sama og annars. Mér finnst
alltaf eins og ég sé að reyna að
sofna eða reyna að vakna.
Þú ert að fara á grímuball og mátt
fara í hvaða búningi sem er. Í
hverju ferðu?
Hef aðeins einu sinni farið á
grímuball og þá sem John Tra-
volta í Saturday Night Fever. Það
er langt síðan. Ætli ég myndi ekki
frekar líta út eins og Elvis gerði
síðustu árin, ef ég færi í sömu
fötum í dag.
Frægasti ættingi þinn?
Enginn í nánustu fjölskyldu.
Reikna með að Jón Arason biskup
hafi verið forfaðir minn eins og
annarra.
Ef þú yrðir að fylla heimilið af
einhverri dýrategund (allavega
20 stykki), hvaða dýr myndirðu
velja þér að búa með?
Sniglum. Ég hef mikla samkennd
með sniglum. Alltaf á leiðinni
eitthvað með allt sitt hafurtask,
en komast í raun aldrei neitt. Þeir
myndu líka vera fyrirferðarlitlir,
og ef ég yrði leiður á þeim væri
alltaf hægt að steikja þá upp úr
hvítlauk.
Ef ég fengi klukkustund með
Halldóri Laxness myndi ég …
Líklega reyna að koma honum
aftur undir mold áður en hann
færi að lykta. Myndi þó skála
fyrir honum fyrst.
Ef þú værir persóna í Harry
Potter-bók, hver myndirðu vera?
Hef satt að segja aldrei lesið
Harry Potter-bók. Reikna þó með
að ég myndi frekar vilja vera per-
sóna í Harry Potter-bók en í
íslenskum krimma.
Hver er staða íslensku skáldsög-
unnar í dag?
Hún tórir enn. Ætli skáldsagan
deyi ekki endanlega daginn sem
ég klára meistaraverk mitt, sem
verður því ekki lesið af neinum.
Hvað gerir þig þunglyndan?
Þunglyndi er hið eðlilega ástand.
Það er hins vegar ýmislegt sem
gerir mig glaðan.
Hver er eftirlætisrithöfundurinn
þinn?
Prédikarinn í Gamla testament-
inu. „Allt er hégómi.“
Hver er besta minning síðasta
árs?
Síðasta ár fór í súginn. Vona að
það næsta verði betra.
Hvaða kæki ertu með?
Setja uppvafin eiturefni í munn-
inn á mér og kveikja í þeim.
Poka af hverju gætirðu borðað án
þess að blása úr nös?
Harðfisk. Myndi þó blása úr nös
yfir kostnaðinum.
Hvað ættirðu í raun að vera að
gera núna?
Drekka í mig kjark fyrir kvöldið.
Hvaða leikara myndir þú fá til að
leika í ævisögulegri kvikmynd um
þig? Hver yrði lokasetning kvik-
myndarinnar?
Mér var sagt á Næsta bar í gær
að ég liti nákvæmlega út eins og
Jói fiskur. Ég veit ekki hvaða
maður það er, en ég myndi treysta
honum til að leika mig í bíómynd.
Ætli lokasetningin yrði ekki: „Ég
sagði ykkur að þetta myndi fara
svona.“
Hvaða frasa ofnotar þú?
„Vei, vei, vei þeim sem á jörðu
búa.“
Hef mikla samkennd
með sniglum
Valur Gunnarsson er nýbúinn að senda frá sér sitt fyrsta skáldverk sem fjallar um þunglyndan, feitan,
drykkfelldan og einmana Finna sem lendir svo í æsispennandi atburðarás árþúsundanna á milli. Anna
Margrét Björnsson tók Val í þriðju gráðu yfirheyrslu.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Valur Gunnarsson
FÆÐINGARÁR:1976, árið sem
Maó dó og Sex Pistols gáfu út
smáskífuna Anarchy in the UK.
Á HUNDAVAÐI: Vann í Ikea
í Noregi, í vodkaverksmiðju
í Finnlandi og sem bréfberi í
Reykjavík. BA í sagnfræði og
MA í ritlist. Fyrrverandi ritstjóri
Reykjavík Grapevine og blaða-
maður hjá ýmsum íslenskum
miðlum.
VALUR GUNNARSSON RITHÖFUNDUR Getur borðað heilan poka af harðfisk án þess að blása úr nös.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MÆLISTIKAN