Fréttablaðið - 17.11.2007, Qupperneq 90
58 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Undankeppni Evrópu-
mótsins í fótbolta fer fram í dag,
en flestra augu munu annars
vegar beinast að B-riðli þar sem
Frakkar, Ítalir og Skotar berjast
um tvö efstu sætin og svo hins
vegar að E-riðli þar sem Englend-
ingar standa í ströngu gegn
Króötum og Rússum.
Úrslit B-riðils geta ráðist í dag
þegar heimsmeistarar Ítala leika
gegn Skotum á Hampden Park í
Glasgow. Frakkar eru sem stend-
ur efstir í riðlinum og eiga einn
leik eftir, Skotar eru einu stigi á
eftir Frökkum og eiga aðeins leik-
inn gegn Ítölum eftir og Ítalir eru
einu stigi á eftir
Skotum en eiga tvo leiki eftir.
Fari svo að Skotar vinni eru þeir
búnir að tryggja sér farseðilinn til
Sviss og Austurríkis á næsta ári,
en tapi þeir fara Frakkar og Ítalir
áfram. Ef liðin gera hins vegar
jafntefli þurfa Skotar að treysta á
að Frakkland tapi gegn Úkraínu á
útivelli eða að Ítalía tapi gegn
Færeyjum á heimavelli næst-
komandi miðvikudag.
Alex McLeish, þjálfari Skot-
lands, er þó hvergi banginn fyrir
leikinn og telur möguleika liðs
síns ágæta.
„Ítalir eru ekki ósigrandi og við
getum vel unnið leikinn, það er
ekki spurning,“ sagði McLeish í
viðtali við BBC en Skotar hafa
unnið fimm af sjö leikjum sínum
undir hans stjórn og þar á meðal
er sigur gegn Frökkum í París.
Roberto Donadoni, þjálfari
Ítalíu, er í einkennilegri stöðu þar
sem allt annað en sigur gæti
kostað hann starfið, en hann
ítrekaði þó að Ítalir væru ekki
smeykir fyrir leikinn.
„Við erum ákveðnir og það er
ekki til hræðsla í okkar herbúðum,
það eru þeir sem ættu að vera
hræddir,“ sagði Donadoni í viðtali
við La Gazzetta dello Sport en
Ítalir unnu fyrri leik liðana 2-0
með tveimur mörkum frá Luca
Toni.
Englendingar verða í sviðsljósinu
í dag þrátt fyrir að vera ekki að
spila, því ef Króatía vinnur Make-
dóníu á útivelli og Rússland vinnur
Ísrael á útivelli í dag eru mögu-
leikar Englendinga á að komast
áfram orðnir að nánast engu.
Englendingar þyrftu þá að vinna
Króatíu og treysta á að Andorra
myndi vinna fáheyrðan sigur á
Rússlandi næstkomandi miðviku-
dag.
Steve McClaren, þjálfari Eng-
lendinga, var þó merkilega
bjartsýnn yfir möguleikum þeirra
í viðtali við útvarpsstöðina BBC 5
Live.
„Það er enn löng leið eftir og
mikið af möguleikum í stöðunni og
ég trúi því enn fyllilega að við
eigum eftir að komast áfram.“ - óþ
Ítalir og Skotar mætast í stórleik B-riðils og Englendingar fylgjast máttvana með gengi Rússa og Króata í dag:
Vonir Englendinga gætu orðið að engu
BJARTSÝNI Steve McClaren heldur enn í
veika von Englendinga um að komast á
lokakeppni EM. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Samsæriskenningar hafa
verið á vörum manna undanfarið
fyrir þýðingarmikinn leik
Rússlands og Ísraels í E-riðli
undankeppni EM sem fer fram í
dag, vegna sterkra tengsla
rússneska auðjöfursins Roman
Abramovich við Tel Aviv og
ísraelskan fótbolta. Því vilja
sumir meina að Ísrael eigi eftir
að tapa viljandi gegn Rússlandi,
en Dror Kashtan, þjálfari
ísraelska liðsins, neitar þessum
ásökunum harðlega.
„Við erum flestir fæddir í
Ísrael og erum afar stoltir af
okkar þjóðerni. Þessar sögusagnir
eru bara aum leið til þess að
reyna að skapa eitthvert andrúms-
loft og óróa fyrir leikinn gegn
Rússum. Við ætlum okkur sigur í
leiknum eins og alltaf og munum
gera okkar besta til þess í níutíu
mínútur,“ sagði Kashtan ákveðinn
í viðtali við dagblaðið The Times.
- óþ
Undankeppni EM:
Samsæriskenn-
ingar á lofti
SAMSÆRI Kenningar eru á lofti um að
Roman Abramovich ætli að nota tengsl
sín við Ísrael til að kaupa sigur Rússa.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Það var aldrei spurning
hvernig rimma Íslandsmeistara
KR og bikarmeistara ÍR myndi fara
í gær. KR-ingar voru mikið mun
betra liðið allan leikinn og vann
ákaflega auðveldan og fyrirhafnar-
lítinn sigur á lélegu ÍR-liði. Munur-
inn í lokin var 32 stig, 92-60, en KR
hefði hæglega getað unnið stærri
sigur hefði það viljað.
Íslandsmeistararnir tóku strax
frumkvæðið í leiknum. Jovan
Zdravevski var óvenju sprækur og
sýndi sín bestu tilþrif það sem af er
vetri. Með hann, Helga Má, Fogel
og Helm í fínu formi náði KR fljót-
lega góðri forystu. Munurinn var 9
stig eftir fyrsta leikhluta, 23-14.
ÍR-ingar voru í talsverðum vand-
ræðum með sinn leik á báðum
endum vallarins og ekki bætti úr
skák að Kaninn þeirra var gjörsam-
lega meðvitundarlaus og hafði
ekkert fram að færa. Staða KR var
vænleg í leikhléi, 44-29.
Þriðji hálfleikur var algjörlega
eign KR-inga. Þeir hreinlega léku
sér að arfaslökum ÍR-ingum og
gengu auðveldlega í gegnum grát-
lega lélega vörn þeirra. Breið-
hyltingar áttu nákvæmlega ekkert
svar og nánast lögðust niður og
buðu KR-ingum að ganga yfir sig
sem og þeir gerðu. Munurinn var
29 stig eftir þriðja leikhluta, 73-44,
og ballið búið.
Lokaleikhlutinn var þar af
leiðandi algjört formsatriði. KR
tók sér það bessaleyfi að hvíla alla
sína lykilmenn og yngri og óreynd-
ari menn fengu tækifæri til að láta
ljós sitt skína.
„Þessi niðurstaða kemur mér
ekkert rosalega á óvart. Við erum
að spila sama varnarleik og gegn
Stjörnunni um daginn og erum að
halda ÍR í 60 stigum. Ég var
reyndar að gæla við að halda þeim
undir 60 stigum,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR, en
hann var einnig mjög sáttur við
sóknarleikinn hjá sínu liði.
„Við kláruðum skotin okkar
mikið mun betur en síðast. Það
eina sem vantar hjá okkur er að
skotin fyrir utan fari að detta
niður. Þá fer ég að verða sáttur.
Annars er ég ánægður með
hvernig liðið er farið að virka hjá
mér. Það er kominn stöðugleiki í
varnarleikinn. Þegar skotin að
utan fara svo að detta þá verðum
við illviðráðanlegir.“
henry@frettabladid.is
Eins og auðveld æfing
Íslandsmeistarar KR hreinlega niðurlægðu bikarmeistara ÍR á heimavelli sínum
vestur í bæ í gær. KR vann leikinn með 32 stiga mun, 92-60, og virtist hafa ákaf-
lega lítið fyrir því. Leikurinn var í raun eins og létt æfing fyrir KR-inga.
LOK, LOK OG LÆS KR-ingurinn Joshua Helm sést hér varna því að ÍR-ingurinn Ómar
Örn Sævarsson komist að körfu KR-inga. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Iceland Express-deild karla:
KR-ÍR 92-60 (44-29)
Stig KR: Joshua Helm 18, Avi Fogel 18,
Helgi Már Magnússon 16, Jovan Zdravevski
15, Brynjar Þór Björnsson 9, Pálmi Freyr
Sigurgeirsson 8, Skarphéðinn Ingason 4, Páll
Fannar Helgason 2, Eldur Ólafsson 2.
Stig ÍR: Ómar Örn Sævarsson 14, Sveinbjörn
Claessen 13, Steinar Arason 9, Hreggviður
Magnússon 7, Eiríkur Önundarson 5, Davíð
Þór Fritzson 4, Þorsteinn Húnfjörð 4, Ray
Cunningham 4.
Skallagrímur-Snæfell 81-80
Stig Skallagríms: Milojica Zekovic 21, Allan
Fall 19, Darrell Flake 12 (8 fráköst), Hafþór
Gunnarsson 12, Axel Kárason 8, Pétur Sig-
urðsson 6, Pálmi Sævarsson 3.
Stig Snæfells: Justin Shouse 31, Sigurður
Þorvaldsson 17, Slobodan Subasic 12, Hlynur
Bæringsson 10 (17 fráköst), Anders Katholm
6, Atli Hreinsson 4.
Vináttulandsleikur U-21 árs:
Þýskaland-Ísland 3-0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI England og Austurríki
mættust í vináttulandsleik í
Austurríki í gær.
Það verður seint sagt að
leikurinn hafi verið einhver
flugeldasýning. Peter Crouch
skoraði eina mark leiksins rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks með
skalla eftir hornspyrnu Davids
Beckham sem var í byrjunarliði
Englendinga.
Michael Owen tognaði í
leiknum og varð að fara af velli.
- hbg
Vináttulandsleikur:
England lagði
Austurríki
FAGNAÐ David Beckham og Peter
Crouch fagna hér marki Englendinga í
gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES