Fréttablaðið - 01.12.2007, Side 4
4 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUMÁL Þrír karlar og ein
kona voru handtekin af lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu í
Kópavogi síðdegis í fyrradag
eftir að ætluð fíkniefni fundust
við íbúðarhús í bænum.
Þar innandyra fannst einnig
talsvert af ætluðum fíkniefnum,
lyfjum sem og hnífum. Í húsinu
fundust jafnframt munir sem
talið er að séu þýfi. Fólkið er
allt á þrítugsaldri.
Þá fundust sömuleiðis ætluð
fíkniefni við húsleit, sem
lögregla gerði að fengnum
úrskurði, í íbúð í Breiðholti í
fyrrakvöld.
- jss
Fernt handtekið í Kópavogi:
Með fíkniefni,
hnífa og lyf
ISIG kerti Ø7, H15 cm
gyllt/silfurlitað
195,- GRENIBÚNT215,-
Opið til 22:00
fram að jólum
FÓLK Sævar Arnfjörð og Ólína
Ragnheiður Gunnarsdóttir sem
búa í tjaldi í Laugardal hafa feng-
ið fjölda gjafa frá því Fréttablað-
ið greindi frá hag þeirra.
„Fólk hefur komið með haug af
mat,“ sagði Sævar þegar blaða-
mann bar að garði. Þá hafði hjón-
unum einnig borist nokkuð af
áfengi.
„Einhver skildi eftir poka með
flatkökum, pylsum og svo lét
hann heila flösku af rússneskum
vodka fylgja með. Það er ekki nóg
með það heldur kom annar fær-
andi hendi með koníakspela og í
öðrum matarpoka voru þrír litlir
sprittbrúsar,“ sagði Sævar og hló
við. Þá hafa hjónin einnig fengið
klæðnað, fat og nokkurn pening.
Fyrrinótt var erfið hjá þeim í
tjaldinu sem þó stóð af sér allan
vind í hvassviðrinu. Ekkert gas
var til á prímusnum til að halda á
þeim hita. „Það var því ansi kalt
svo brjóstbirtan kom sér vel,“
sagði Sævar kankvís.
Sævar og Ólína Ragnheiður eru
afar þakklát sínu velgjörðarfólki.
Sævar orti meira að segja vísu
sem hann vildi tileinka því.
Björk Vilhelmsdóttir, formað-
ur velferðarráðs Reykjavíkur-
borgar, segir að þau hjón geti
bæði fengið að búa í Gistiskýl-
inu. Í Fréttablaðinu í fyrradag
sögðust þau ekki vilja þiggja
aðstoð borgarinnar þar sem þau
yrðu þá skilin að. Aðspurð hvort
þau myndu ekki leita á náðir
borgaryfirvalda sögðust þau
hjón vera orðin þreytt á að
standa í öllu slíku. Björk segir
borgaryfirvöld ekki geta haft
afskipti af þeim hjónum sé þess
ekki óskað. „Það er kannski
skrýtið að tala um val í þessu
samhengi en þau hafa þetta val
og ekki fer borgin að rífa upp
tjöldin þeirra þó þau vilji ekki
vera í Gistiskýlinu. En svo erum
við að fara að opna færanleg ein-
býli sem eru sérstaklega hugsuð
fyrir heimilislausa, hugsanlega
munu þau henta þeim.“
Sex slík einbýli verða tekin í
notkun innan skamms og mun
mánaðarleiga vera á bilinu 25 til
35 þúsund. Sævar og Ólína Ragn-
heiður fá hvort um sig hundrað
þúsund krónur í örorkubætur á
mánuði. jse@frettabladid.is
Gáfu útilegufólkinu
flatkökur og áfengi
Tjaldbúarnir í Laugardal fengu í gær og fyrradag mikið af áfengi og mat. For-
maður velferðarráðs segir þau geta verið saman í Gistiskýlinu. Borgin mun
fljótlega setja á fót færanleg einbýli sem hentað gætu þeim hjónum.
ÓLÍNA RAGNHEIÐUR OG SÆVAR Fyrrinótt var erfið hjá þeim hjónum því ekkert gas
var til upphitunar en tjaldið stóð af sér veður og vind. Þau voru því þakklát fyrir
brjóstbirtuna sem fólk hefur fært þeim.
TYRKLAND, AP Allir 57 farþegar og áhafnarmeðlimir
flugvélar tyrkneska flugfélagsins Atlasjet létust
eftir að hún brotlenti í grýttri fjallshlíð í suðvestur-
hluta Tyrklands aðfaranótt föstudags, skömmu
fyrir lendingu.
Brak úr flugvélinni og eigur farþega dreifðust
um stórt svæði í fjallshlíðinni. „Sætin höfðu losnað
og voru úti um allt svæðið. Í nokkrum tilvikum
voru sætisbeltin ennþá utan um líkin,“ sagði
Mustafa Dagci, læknir sem var einn þeirra fyrstu á
vettvang. „Sum líkin voru ósködduð meðan önnur
voru í mörgum hlutum.“
Flugvélin fór á loft klukkan eitt aðfaranótt
föstudags frá Istanbúl á leið til Isparta.
Flugvélin hvarf af ratsjám rétt áður en hún átti
að lenda eftir klukkutíma flug. Björgunarþyrla
komst að brakinu klukkan sjö. Veður og flugskilyrði
voru góð. - sdg
Orsök brotlendingar flugvélar í Tyrklandi sem varð 57 að bana er enn óljós:
Enginn lifði af brotlendingu
BRAK Á VÍÐ OG DREIF Flugvélin tættist í sundur þegar hún
brotlenti í fjallshlíð og fórust allir um borð. NORDICPHOTOS/AFP
Ólafur, hefurðu engar agaleg-
ar áhyggjur?
„Nei, strákarnir haga sér reglulega
vel.“
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari í
fótbolta lætur sögusagnir um agaleysi í
íslenska landsliðinu ekki trufla sig.
ÞAKKARSTAKA SÆVARS
Maður, ég vil þér vel
um alla framtíð bjarta.
Þú átt eitt sem allir þrá,
gott og göfugt hjarta.
TÆKNI MSN-netspjall í gegnum farsíma og tónlist
sem kemur í stað biðsóns þegar hringt er var meðal
þeirra nýjunga sem fjarskiptafyrirtækið Nova
kynnti á blaðamannafundi í gær. Verslun fyrirtækis-
ins að Lágmúla 9 verður opnuð klukkan 11 í dag, og
vefurinn nova.is var opnaður á miðnætti í gær.
Fyrirtækið er hið fjórða á farsímamarkaðnum á
Íslandi, en þar eru fyrir Síminn, Vodafone og Sko.
Vodafone og Sko eru þó í eigu sama fyrirtækis. Nova
hyggst einbeita sér að þriðju kynslóðar farsímaþjón-
ustu (3G) á borð við internet í farsímann, auk
venjulegrar farsímaþjónustu. Síminn opnaði fyrir
sína 3G-þjónustu í byrjun september, og 3G-
þjónusta Vodafone hefst eftir helgi.
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova,
segir ætlunina að gera þriðju kynslóðar farsíma-
tækni notendahæfa fyrir fólk. „Við viljum setja
fókusinn á farsímann, gera þriðju kynslóðina
einfalda svo hún virki. Að því leyti mun fólk finna
muninn þegar við komum á markaðinn.“
Nova býður farsímasamband um allt land, en 3G
háhraðanet fyrirtækisins nær yfir höfuðborgar-
svæðið og á Reykjanesi. Ætlunin er að á næsta ári
muni fyrirtækið ná til áttatíu prósenta landsmanna á
3G-kerfi sínu. - sþs
Nova, fjórða fjarskiptafyrirtækið á íslenskum markaði, hefur þjónustu sína í dag:
MSN í farsímann og vinatónar
TÆKNIN KYNNT Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova,
kynnti þriðju kynslóðar tækni fyrirtækisins á blaðamannafundi
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
VEÐUR Hellisheiði var lokað í
gærmorgun vegna hálku og
hvassviðris. Nokkrir bílar fóru út
af veginum en enginn ökumaður
slasaðist. Vegurinn var opnaður
aftur upp úr hádegi í gær, en þá
hafði veðrið mikið til gengið
niður.
Hvassviðrið olli vandræðum
víða um landið í gær. Björgunar-
sveitarmenn í Hornafirði þurftu
að binda báta sem farnir voru að
losna, og fuku hlöðudyr upp á
tveimur bæjum við Höfn.
Flutningabíll fauk á hliðina í
Öræfum, en ökumaður hans
slasaðist ekki alvarlega. - sþs
Hvassviðri olli vandræðum:
Hellisheiði lokað
í hálku og roki
KOFI FAUK Mikið hvassviðri var í Vest-
mannaeyjum í gær og endaði þessi kofi
á hliðinni eftir eina hviðuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
SAMGÖNGUR Byggðaráð Bláskóga-
byggðar segist enn vilja nýjan veg
um Lyngdalsheiði sem liggi
norður fyrir Þingvallavatn og
þaðan til Reykjavíkur. Landvernd
vill að fremur verði hugað að vegi
suður fyrir Þingvallavatn.
Byggðaráðið vísar til úrskurðar
Skipulagsstofnunar um suðurleið-
ina þar sem fram komi að þá þurfi
jarðgöng í gegnum Dyrafjöll en að
jarðfræði Hengilssvæðisins sé lítt
fýsileg til jarðgangagerðar. Einnig
verði heildarvegalengd nýs vegar
þannig minnst helmingi lengri og
leiðin leysi ekki þörf fyrir nýjan
veg milli Þingvalla og Laugar-
vatns. - gar
Byggðaráð Bláskógabyggðar:
Hafna göngum
um Dyrafjöll
ELDSVOÐI Á BLÖNDUÓSI Stórtjón varð í
bruna í lok september 2004.
ÖRYGGISMÁL Ekki hefur verið virkt
eldvarnareftirlit í Austur Húna-
vatnssýslu frá árinu 2004. Það ár
varð stórbruni á Blönduósi.
Á aðalfundi Brunavarna A-
Húnavatnssýslu í síðustu viku
kom hins vegar fram að Andrés I.
Leifsson slökkviliðsstjóri hefur nú
fengið réttindi til að sinna
eldvarnareftirliti eftir að hafa sótt
námskeið.
Einnig kom fram á aðalfundin-
um að rætt hefði verið við
Skagstrendinga um sameiningu
slökkviliðanna en að þeir hafi ekki
haft áhuga á því. - gar
Austur-Húnavatnssýsla:
Óvirkt eftirlit
með eldvörnum
SVÍÞJÓÐ, AP Svíar virðast tilbúnir
til að faðma hvern sem er nema
yfirmanninn samkvæmt könnun
sem Rauði krossinn í Svíþjóð
kynnti í gær.
Níu af hverjum tíu Svíum faðma
einhvern að minnsta kosti einu
sinni í viku. 70 prósent sögðust
hafa faðmað maka sinn undan-
farna viku og 59 prósent höfðu
faðmað vin eða kunningja. Aðeins
fjögur prósent höfðu faðmað
yfirmann sinn. 55 prósent sögðust
myndu faðma ókunnugan sem
hefði fundið veskið þeirra. - sdg
Könnun á faðmlögum Svía:
Faðma alla
nema yfirmenn
SPURNING DAGSINS