Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 6
6 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL Tomas Malakauskas, einn þriggja manna í
líkfundarmálinu svonefnda í Neskaupstað, var ekki
beðinn um skilríki við tollskoðun þegar hann kom til
Keflavíkur. Hann ferðaðist ekki á fölskum skilríkj-
um, en fór í gegnum Leifsstöð eins og hver annar
komufarþegi, þrátt fyrir að hann væri í tíu ára
endurkomubanni til landsins. Bannið fékk Mala-
kauskas fyrir þátt sinn í að flytja lík landa síns,
úttroðið af fíkniefnum, til Neskaupstaðar og sökkva
því í höfnina þar.
Þetta kom fram í aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins
gegn Malakauskas í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Í Litháen hafði hann tekið upp eftirnafn konu
sinnar, Aralkauskas, og fengið útgefin skilríki með
því nafni hjá yfirvöldum í Litháen. Hann kom hingað
til lands í byrjun september og lék lausum hala í
nokkrar vikur. Hann var ekki handtekinn fyrr en 20.
nóvember, þá með 26 grömm af amfetamíni á sér.
Ástæðuna fyrir breytingunni á eftirnafni sínu sagði
Malakauskas fyrir dómi hafa verið þá að fjölmiðlar
hefðu gert honum lífið leitt í tengslum við líkfundar-
málið. Hann og eiginkona hans ættu von á barni og
hann vildi ekki að barnið bæri nafnið Malakauskas.
Í dómsal kom meðal annars fram að kona Mala-
kauskas hefur verið búsett hér frá árinu 2003. Hún
starfar hér og á von á barninu í febrúar. Hér búa
einnig móðir hennar, fósturfaðir og tvær systur.
Malakauskas sagði að þau hjónin hefðu haft í hyggju
að yfirgefa landið innan tíðar.
Stærstur hluti aðalmeðferðarinnar snerist um
birtingu brottvísunar og endurkomubanns þegar
Malakauskas afplánaði dóm vegna líkfundarmálsins á
Litla-Hrauni.
Malakauskas bar að sér hefði ekki verið kunnugt
um endurkomubannið. Þrír lögreglumenn hefðu
komið til sín með skjal á íslensku, sem hann skildi
ekki. Hann hefði beðið um lögmann og túlk en ekki
fengið. Hann hefði því neitað að kvitta fyrir móttöku
skjalsins. Síðan hefði hann verið fluttur í fylgd
þriggja lögreglumanna í handjárnum úr landi. „Það
var farið með mig eins og dýr,“ sagði hann.
Tveir lögreglumenn sem önnuðust birtinguna
sögðu fyrir dómi að hún hefði verið með hefðbundn-
um hætti og Malakauskas hefði verið meðvitaður um
endurkomubannið. Hann hefði viljað fá samfanga
sinn, Atla Helgason, sér til aðstoðar, en afþakkað
túlk.
DÓMSMÁL Karlmaður var dæmdur
í tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær fyrir líkamsárás, sem
átti sér stað við Austurstræti í
Reykjavík í október.
Maðurinn sló þá mann hnefa-
höggi í andlitið þannig að hann
féll í götuna, með þeim afleiðing-
um að hann hlaut skurð í andliti
og glóðarauga og fjórar tennur í
honum brotnuðu.
Hinum ákærða var gert að
greiða brotaþola rúmar sjö
hundruð þúsund krónur í
miskabætur auk sakarkostnaðar
upp á tæpar tvö hundruð þúsund
krónur. - æþe
Sakfelling í líkamsárásarmáli:
Braut fjórar
tennur í manni
Sagan vinsæla
á bók!
Bráðskemmtileg
saga sem byggir á
hinum ástsæla
söngleik
Abbababb!
ÓVEÐUR Kaldur og hrakinn köttur komst í skjól á
lögreglustöð Vestmannaeyja í fárviðri í gær, þegar
kona nokkur kom honum þangað. Á stöðinni fékk
kötturinn góðar viðtökur.
„Hann situr bara hérna á vaktborðinu og hefur
það gott,“ sagði Pétur Steingrímsson varðstjóri
þegar Fréttablaðið sló á þráðinn í gærmorgun.
„Hann verður hérna hjá okkur í dag enda er ekki
ketti út sigandi eins og er,“ sagði varðstjórinn
þegar vindurinn þaut úti fyrir um 20 metra á
sekúndu. En þó vel færi á með þeim sagðist
varðstjórinn ekki gráta það þegar kötturinn færi
loks í hendur eiganda þegar hann fyndist. „Hann
fer fram á mikla athygli. Hann vælir bara ef maður
hættir að kjassa hann svo þetta verður orðið ágætt
þegar veðrið lægir.“
Nafn kattarins er ekki enn vitað og lögreglumenn
hafa ekki nefnt hann. „Það tekur því ekki að finna
nafn á köttinn því hann er bara í dags starfskynn-
ingu,“ sagði varðstjórinn glettinn. - jse
Lögreglan í Vestmannaeyjum fékk heldur óvenjulegan gest í óveðri :
Köttur vingast við varðstjóra
Í VÖRSLU VARÐSTJÓRA Vel fór á með þeim Pétri varðstjóra og
kettinum sem skotið var skjólshúsi yfir. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
UMHVERFISMÁL Jón Gunnar
Ottósson, forstjóri Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, var í gær
kosinn forseti Bernarsamningsins
á aðildarríkjafundi samningsins í
Strasborg í Frakklandi. Bernar-
samningurinn fjallar um verndun
villtra plantna, dýra og lífsvæða í
Evrópu og er einn af grundvallar-
samningum Evrópu á sviði
umhverfisverndar. Tæplega
fimmtíu ríki Evrópu og Norður-
Afríku eru aðilar að samningnum.
Jón Gunnar var varaforseti
samningsins í þrjú ár en er nú
fyrsti Íslendingurinn sem kosinn
er forseti hans. - shá
Bernarsamningurinn:
Íslendingur for-
seti í fyrsta sinn
BELGÍA, AP Yves Leterme, leiðtogi
kristilegra demókrata í flæmsku-
mælandi hluta Belgíu, varð að
draga í land einu
sinni enn í
stjórnarmyndun-
arumleitunum
sínum á miðviku-
dag, er flokkur
þjóðernissinnaðra
Flæmingja, sem
er í bandalagi við
hans eigin flokk,
neitaði að sættast
á nýjustu
málamiðlunartillögu hans.
Nærri hálft ár er nú liðið frá
þingkosningum í Belgíu en
stjórnarmyndunarviðræður
borgaralegra flokka Flæmingja og
frönskumælandi Vallóna hafa
hingað til strandað á því að
flæmsku flokkarnir vilja færa
meiri völd til landshlutastjórnanna
en Vallónar ekki. - aa
Stjórnarmyndun í Belgíu:
Enn í strandi
eftir 173 daga
YVES LETERME
SJÁVARÚTVEGUR Á fundi Úrskurðar-
nefndar sjómanna og útvegsmanna
30. nóvember
var ákveðið
að hækka
verð á þorski
sem ráðstafað
er til eigin
vinnslu eða
seldur er til
skyldra aðila
um tíu
prósent og
ýsu um fimm
prósent frá og
með 1. desember næstkomandi.
Þessi hækkun skýrist af hækkun á
afurðum á erlendum mörkuðum.
Verð á þorski hefur hækkað
fjórum sinnum á árinu um alls 33
prósent. - shá
Verð á þorski:
Hefur hækkað
um 33 prósent
SÁ GULI Verð á erlend-
um mörkuðum hefur
hækkað í fjórgang á
árinu.
SKIP Olíumenguðum sjó var dælt
úr flutningaskipinu Axel á
Akureyri í gær. Slökkviliðið sá um
að dæla sjónum úr skipinu. Að því
loknu var farið með skipið í slipp.
Axel steytti á skeri við Horna-
fjarðarós á mánudagsmorgun, en
skipið var á leið til Póllands með
fisk. Því var siglt til Fáskrúðs-
fjarðar til skoðunar, og síðar til
Akureyrar. Á leiðinni til Akureyr-
ar þótti ástandið um borð vera
orðið ótryggt, og tók Landhelgis-
gæslan því yfir stjórn skipsins á
leiðinni. - sþs
Slökkvliðið dældi út sjó:
Axel í slipp Malakauskas ekki
krafinn um skilríki
Litháíski líkfundarmaðurinn Malakauskas var ekki beðinn um að sýna skilríki
við komuna til landsins þótt hann væri í tíu ára endurkomubanni. Hann lék
lausum hala í nokkrar vikur áður en hann var handtekinn og settur í gæslu.
Í Fréttablaðinu á fimmtudag var
villandi þýðing á ummælum Jóns
Ólafssonar, athafnamanns og vatnsút-
flytjanda, sem hann lét falla í viðtali
við vefútgáfu Financial Times. Af
því tilefni vill Jón taka fram að það
sé draumur sinn að Iceland Glacial
vatnið verði einn daginn þekktara á
heimsvísu en Icelandair og hann sé
fyllilega meðvitaður um að margt
þurfi að ganga upp svo sá draumur
verði að veruleika.
ÁRÉTTING
VILDI EKKI FARA Mala-
kauskas á leið í dómsal
í gær. Lögregla bar fyrir
dómi að Malakauskas
hefði verið margbúinn
að lýsa því yfir að hann
ætlaði ekki úr landi,
hvorki með góðu né
illu.
Einbeittur brotavilji
„Þarna var ásetningsbrot og einbeittur brotavilji á
ferðinni,“ sagði Daði Kristjánsson saksóknari um brot
Tomasar Malakauskas á endurkomubanni til landsins.
Saksóknari sagði ljóst að Malakauskas hefði verið
fullkunnugt um bannið. Hann minnti á líkfundarmálið
sem hefði vakið óhug í samfélaginu. Malakauskas
hefði fengið reynslulausn þegar 419 dagar voru eftir af
fangelsisvist hans. Saksóknari taldi réttmætt að dæma
Malakaukas fyrir fíkniefnabrotið og brot hans á endur-
komubanni og dæma hann í óskilorðsbundið fangelsi.
Jafnframt ætti hann að sitja af sér eftirstöðvar dómsins
sem hann hlaut árið 2004.
Björgvin Jónsson, verjandi Malakauskas, krafðist
sýknu. Hann sagði alls ekki víst að sakborningur hefði
gert sér grein fyrir því að brottvísun frá landinu fæli í
sér endurkomubann. Björgvin minnti á að Malakau-
skas hefði í engu reynt að villa á sér heimildir við kom-
una til landsins. Það væri ekki hans sök að yfirvöld
... „passi ekki landamærin betur en svo að þeim sé
snúið við sem óheimilt er að koma inn í landið,“ sagði
verjandinn. Ekki náðist í Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóra á Suðurnesjum, við vinnslu fréttarinnar.
GENGIÐ 30.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,6192
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
60,80 61,10
125,78 126,40
89,76 90,26
12,034 12,104
11,056 11,122
9,576 9,632
0,5492 0,5524
96,65 97,23
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR