Fréttablaðið - 01.12.2007, Side 8
8 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
STJÓRNSÝSLA Tvö bréf frá umboðs-
manni Alþingis þurfti til áður en
stjórnendur Ríkisútvarpsins ohf.
breyttu um stefnu og upplýstu um
laun útvarpsstjóra.
Umboðsmaður Alþingis rekur
samskipti sín við RÚV í bréfi til
fyrirtækisins og til Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra. Segir umboðsmað-
ur ummæli Páls Magnússonar
útvarpsstjóra og Ómars Benedikts-
sonar, stjórnarformanns RÚV, á
visir.is hinn 23. ágúst, hafa orðið til
þess að hann tók til athugunar
hvernig fyrirtækið fylgdi upplýs-
ingalögum.
Fyrsta verk umboðsmanns í mál-
inu var að senda RÚV bréf 18. sept-
ember. Hann spurði meðal annars
hvort það væri rétt haft eftir
stjórnarformanni RÚV á visir.is að
um laun útvarpsstjóra yrði ekki
upplýst fyrr en á næsta aðalfundi
RÚV. Sá fundur verður í maí á
næsta ári. Einnig vildi umboðs-
maður að stjórn RÚV svaraði því
fyrir 2. október hvernig það sam-
rýmdist upplýsingalögum að neita
að gefa upp laun útvarpsstjórans.
Í bréfi til umboðsmanns 1. októb-
er sagði lögmaður RÚV nauðsyn-
legt að ræða málið á stjórnarfundi
sem yrði 15. október. Af þeim
ástæðum vildi hann frest til 18.
október til að svara. Umboðsmaður
sagðist þá ekki sjá að RÚV þyrfti
viðbótartíma. Málið lyti að fram-
kvæmd upplýsingalaga og sam-
kvæmt þeim ætti alltaf að afgreiða
erindi um aðgang að gögnum hjá
stjórnvöldum án tafar. Hann vildi
því fá svör strax frá RÚV.
Þrátt fyrir tilmæli umboðsmanns
tók lögmaður RÚV sér áðurnefndan
frest til 18. október. Sagði hann þá í
bréfi til umboðsmanns að stjórnar-
formaður RÚV hefði upplýst í fjöl-
miðlum tveimur dögum áður að
laun útvarpssjórans væru 1.500
þúsund krónur. Bendir umboðsmað-
ur á að menntamálaráðherra hafi
nokkru síðar, eða 7. nóvember, upp-
lýst á Alþingi að mánaðarlaun
útvarpsstjórans væru hærri, eða
1.530 þúsund krónur.
Umboðsmaður tiltekur að
bæði í athugasemdum með
frumvarpi til upplýsingalaga
á sínum tíma og í úrskurðum
Úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál komi fram að föst laun opin-
berra starfsmanna séu ekki undan-
þegin aðgangi almennings. Hann
bendir stjórn RÚV á að fara að
lögum ef óskað er aðgangs að upp-
lýsingum um laun útvarpsstjóra og
annarra starfsmanna fyrirtækis-
ins.
„Á, að því er útvarpsstjóra og
aðra starfsmenn Ríkisútvarpsins
ohf. varðar, að veita aðgang að
gögnum um það hver séu umsamin
föst laun þeirra og síðan hver séu
önnur starfskjör sem samið hefur
verið um, svo sem bifreiðahlunn-
indi, og þá hver, og föst aukavinna
og þóknanir, til dæmis fyrir frétta-
lestur,“ segir umboðsmaður
Alþingis í bréfi með lokaábending-
um sínum fimmudaginn 22. nóv-
ember.
Ómar Benediktsson, formaður
stjórnar RÚV, og Páll Magnússon
útvarpsstjóri segjast hvorugur
hafa kynnt sér efni bréfs umboðs-
manns. gar@frettabladid.is
Umboðsmaður vill
að RÚV hlíti lögum
Tvö bréf bárust frá umboðsmanni Alþingis áður en stjórnendur RÚV ohf. upp-
lýstu um laun útvarpsstjóra. Umboðsmaður bendir RÚV á að fara að lögum.
STJÓRNSÝSLA Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur
synjað beiðni Óskars Hrafns Þorvaldssonar,
ritstjóra visir.is, um upplýsingar um laun
Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra
sjónvarps og ritstjóra Kastljóss, og laun
Sigrúnar Stefánssdóttur, dagskrárstjóra
útvarps.
Þessi synjun Páls kemur eftir ítrekaðar
ábendingar umboðsmanns Alþingis til stjórn-
enda RÚV ohf. um að upplýsingaskylda nái
til fastra launa allra starfsmanna
fyrirtækisins.
Útvarpsstjóri segir synjunina
byggða á því ákvæði upplýsingalaga
sem undanþiggur gögn upplýsinga-
rétti ef almannahagsmunir skaðist
ella af samkeppnisástæðum.
Páll telur ritstjóra visir.is lúta
öflum utan ritstjórnarinnar:
„Þetta verður nú seint talin
verðlaunaframmistaða í
íslenskri blaðamennsku – og þú þá varla sómi
hennar, sverð og skjöldur. En þú ert ábyggilega
hlýðinn og góður starfsmaður og ég vona að
þér vegni sem best á þessari sérkennilegu
blaðamannsbraut sem þú hefur valið þér,“
segir útvarpsstjóri í svari til ritstjóra Vísis.
Óskar Hrafn kveðst þegar hafa kært
synjun útvarpsstjóra til úrskurðarnefndar
um upplýsingamál. Að gefnu tilefni hafi
umboðsmaður Alþingis einnig fengið
afrit af samskiptum þeirra Páls.
„Ég undrast einbeittan brota-
vilja útvarpsstjóra gagnvart
upplýsingalögum. Það er hreint
með ólíkindum að það þurfi að
toga upplýsingar út úr yfirmanni
ríkisstofnunar með töngum,
upplýsingar sem umboðsmaður
Alþingis hefur ályktað að eigi að
vera opinberar,“ segir ritstjóri
Vísis. - gar
Útvarpsstjóri synjar enn um launagögn gegn áliti umboðsmanns Alþingis:
Neitar áfram að upplýsa laun
Borgarleikhúsið lak
Slökkvilið var kallað út í fyrrinótt
vegna vatnsleka í Borgarleikhús-
inu og í heimahúsi í Hafnarfirði.
Einhverjar skemmdir urðu á hvorum
staðnum fyrir sig en ekki er ljóst
hversu umfangsmiklar þær eru. Sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu
gekk vel að dæla á báðum stöð-
unum, en vatnsveður um nóttina
orsakaði lekana.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Hraðakstur á Sæbrautinni
Hraðakstursbrot 427 ökumanna voru
mynduð á Sæbraut í vikunni, en eftirlit-
ið stóð yfir í um tuttugu klukkustundir.
Á tímabilinu óku rúmlega sex þúsund
ökutæki fram hjá hraðamyndavélum
lögreglu og reyndust um sjö prósent
þeirra aka yfir afskiptahraða. Sá sem
hraðast ók mældist á 99 kílómetra
hraða á klukkustund, en hámarkshraði
á brautinni er sextíu kílómetrar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÁSTRALÍA, AP Kevin Rudd, verðandi
forsætisráðherra Ástralíu, kynnti
ráðherralista sinn á fimmtudag.
Meðal þeirra er fyrsti kven-
varaforsætisráðherrann og í stól
umhverfisráðherra sest fyrrver-
andi rokksöngvari.
Utanríkisráðherra verður
Stephen Smith, lögfræðingur frá
Vestur-Ástralíu sem eins og flestir
hinna nýju ráðherranna er svo til
með öllu óþekktur utan landsteina
Ástralíu. Hin nýja ríkisstjórn
ástralska Verkamannaflokksins
sver embættiseið á mánudag. Þar
með lýkur formlega ellefu ára
valdatíma hægristjórnar, sem John
Howard fór fyrir. - aa
Ný stjórn í Ástralíu:
Rokkstjarna í
umhverfismálin
PERSÓNUVERND Lögreglumenn eiga
að láta það fólk sem kemur í lög-
reglubíla vita af myndbands- og
hljóðupptökum í bílunum. Þetta
segir Persónuvernd.
Fyrirspurnir um heimildir lög-
reglu til þess að beina myndavél-
um að fólki úr lögreglubifreiðum
bárust til Persónuverndar sem ósk-
aði upplýsinga frá ríkislögreglu-
stjóra. Spurt var hvort lögreglan
beindi eftirlitsmyndavélum að
almenningi úr lögreglubifreiðum.
Ef svo væri, hvernig lögbundinni
viðvörunarskyldu væri fullnægt
og hvernig farið væri með mynd-
efni sem þannig safnaðist.
Ríkislögreglustjóri segir að þeim
sem lögreglan hafi afskipti af sé
gerð grein fyrir því að samtöl verði
tekin upp á hljóðband og að
atburðarás hafi verið fest á mynd-
disk. Þeim sé sagt að þessar upp-
tökur séu hafnar og þeim verði
haldið áfram í lögreglubílum.
Í svörum ríkislögreglustjóra til
Persónuverndar segir að í hluta
lögreglubíla séu ratsjártæki með
myndavélum sem notuð séu við
löggæslustörf. Tólf slíkum tækjum
hafi verið komið fyrir í lögreglu-
bílum í fyrra og hittiðfyrra. Á
þessu ári og því næsta eigi að bæta
við átján tækjum. „Tilgangur þessa
búnaðar, sem tekur upp hljóð og
mynd, er að varðveita sönnunar-
gögn um umferðarlagabrot og
önnur afbrot sem sæta afskiptum
lögreglunnar hverju sinni,“ segir
ríkislögreglustjóri. - gar
Persónuvernd ítrekar upplýsingaskyldu lögreglu um mynd- og hljóðupptökur:
Sagt verði frá upptökum í bílum
LÖGREGLAN Ratsjártæki með myndavél-
um eru í hluta lögreglubíla og bifhjóla
og fleiri tæki verða keypt.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÞORGERÐUR KATRÍN
Menntamálaráðherra.
ÓMAR BENEDIKTSSON
Formaður stjórnar RÚV.
PÁLL MAGNÚSSON
Útvarpsstjóri.
ÓSKAR HRAFN
ÞORVALDSSON
Ritstjóri visir.is.
Um ævistarf þessa fjölhæfa frumkvöðuls má segja að hug
hans og höndum hafi verið fátt ofviða sem hann fékk áhuga á.
Ekki var þó mulið undir hann í bernsku og ungur maður fékk
hann berklaveiki og glímdi lengi við hana. Í bók sinni, Sótt á
brattann, segir Ævar frá lífshlaupi sínu og viðfangsefnum svo
að unun er að lesa. Ævar er löngu þjóðkunnur maður en
lúpínuseyði hans hefur
hjálpað fjölda manns til heilsu.
www.skjaldborg.is
Af lífshlaupi frumkvöðuls
Mál og Músík
Diskarnir á tilboði!
Tómas R. og Samúel Jón koma
í dag kl. 16 og spila fyrir okkur.
Ó
!
·
1
0
3
8
8
TEKIST Á UM UPPLÝSINGAR
Umboðsmaður Alþingis segir
að upplýsa eigi um launakjör
starfsfólks Útvarpsins sé eftir
því leitað.
KJÖRKASSINN
Ert þú fylgjandi trúarlegu starfi
presta í leikskólum?
Já 61,8%
Nei 38,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú áhyggjur af bágri
stöðu heimilislausra?
Segðu þína skoðun á visir.is