Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 24
24 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál-
efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn orð. Ein göngu
er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari
leið bein ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi
eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
GUÐMUNDUR INGI
MARKÚSSON
UMRÆÐAN
Trúmál
Það er vel að menntamálayfir-völd setja trú og skólastarf
loksins á dagskrá. Eins og bent
hefur verið á undanfarna daga er
íslenskt samfélag að taka breyt-
ingum og því tímabært að bregð-
ast við.
Biskup fór mikinn í fréttum
RÚV á fimmtudaginn og sparaði
ekki stóru orðin, ekki frekar en
þegar kirkjunnar menn verja rétt
sinn til þess að stýra trúaruppeldi
barna þessa lands. Biskup talaði
um að kirkjan væri undir harðri
atlögu, gaf í skyn að reynt væri að
þurrka kristnina út og
að fámennur þrýstihóp-
ur væri einfaldlega að
reyna að gera trúna
brottræka með öllu úr
skólum landsins. Gekk
hann svo langt að
hvetja kristna foreldra
til að bíta í skjaldar-
rendur og láta í sér
heyra.
Undirrituðum finnst
þessi málflutningur
meira en lítið skrítinn.
Æðsti maður kirkjunnar talar eins
og kirkja og kristni séu ekki til
utan skólakerfisins – ef kristin
fræði, heimsóknir presta í skóla
og kirkjuferðir skólabarna yrðu
aflögð leggist kristni
einfaldlega af.
Biskup og aðrir sem
tala máli kirkjunnar
virðast gleyma að öfl-
ugt æskulýðsstarf fer
fram í kirkjum lands-
ins. Ekki þarf að
leggja á sig miklar
svaðilfarir innan
bæjar marka kauptúna
landsins áður en
maður rekst á kirkju-
byggingu þar sem er
starfræktur sunnudagaskóli,
haldnar barnamessur, poppmess-
ur, biblíumaraþon, og svo mætti
lengi telja. Einnig mætti nefna
Ríkisútvarpið þar sem kristileg
dagskrárgerð er þó nokkur.
Staðreyndin er sú að kirkjan
þarf ekki á skólunum að halda til
þess að hafa áhrif á trúaruppeldi í
landsmanna. Kristin fræði ættu að
vera á framfæri kirkjunnar sjálfr-
ar í tengslum við sunnudagaskóla
og annað æskulýðsstarf. Það á
ekki að vera hlutverk opinberra
fræðslustofnana að annast trúar-
uppeldi að foreldrum forspurðum.
Og gildir einu að meirihluti barna
sé í þjóðkirkjunni og að flestir for-
eldrar séu málinu hlynntir. Skól-
inn tilheyrir öllum börnum, líka
þeim sem eiga foreldra sem
aðhyllast aðrar lífskoðanir en
kristni. Það er okkur ekki samboð-
ið að bjóða aðstandendum sem til-
heyra minnihlutahópum að taka
börn sín út úr hópnum. Ekki er
börnunum gerður greiði með því.
Ef vilji meirihlutans er svona skýr
er einsýnt að aðsókn í sunnudaga-
skóla myndi stóraukast væru
kristin fræði færð í umsjá kirkj-
unnar sjálfrar.
Ég hvet kirkjunnar fólk til að
horfast í augu við styrk eigin
stofnunar og þá góðu aðstöðu sem
kristin trú og kirkja býr við hér á
landi, svo ekki sé talað um forrétt-
indi. Grunnurinn að öflugri kristn-
inni fræðslu utan skólans hefur
þegar verið lagður, af ykkur sjálf-
um. Hvernig væri að horfa í eigin
barm, rétta út sáttarhönd, hætta
að tala niður til þeirra sem hafa
aðrar lífsskoðanir og leysa „krist-
infræðivandann“ í eitt skipti fyrir
öll. Horfið í kringum ykkur!
Lausnin liggur ljós fyrir í kirkjum
landsins.
Höfundur er trúarbragðafræðing-
ur.
Eru skólarnir síðasta vígi kirkjunnar?
UMRÆÐAN
Jafnréttismál og dagskrárgerð
Það var skelfilega raunalegt að horfa á Kastljós Sjónvarpsins í vikunni.
Þar sakfelldi Drífa Snædal þáttastjórn-
andann Egil Helgason fyrir að gefa
konum ekki nægileg tækifæri í þætti
sínum Silfri Egils.
Þetta er þreyttur málflutningur. Þetta
er grátkór. Boðskapurinn byggir á
misskilningi, tommustokksaðferðinni
svokölluðu, sem fundin var upp í
Háskóla Íslands fyrir margt löngu. Hún
felst í því að mæla hlutfall karla og kvenna í
þáttum og fréttum og reikna út frá því óréttlæti
heimsins.
Þetta vita þeir sem vinna við frétta- og dagskrár-
gerð, á blöðum, útvarpi og sjónvarpi, að er ekki
raunin. Efnið ræður. Efnistökin ráðast af fag-
mennsku, virðingu fyrir að aðilar málsins fái að tjá
sig, konur og karlar. Á þeim stasjónum sem ég hef
unnið á hefur þess verið vandlega gætt að jafnræði
ríki í vali á viðmælendum, enda sjálfsagt mál. Ég
hef hins vegar fundið fyrir því að vera karlmaður í
þessu fagi. Hér er eitt dæmi: Svandís Svavarsdótt-
ir notaði lokaorð sín í kappræðum um borgarmálin
í síðustu kosningum á Hótel Borg, til að gagnrýna
fréttastjórann Sigmund Erni fyrir að velja bara
karlmenn til að stjórna umræðunum. Hann svaraði
því til að hann hefði valið sitt besta fólk til
verksins, mig og Egil Helgason. Það var ekki tekið
gilt, og inni á stasjóninni braust út megn óánægja
með að engin kona skyldi hafa verið í hópnum. Það
gilti sem sagt einu hvort efnið var gott og vel
unnið, það vantaði bara konu.
Nú veit ég ekki af hverju í ósköpunum Egill
Helgason er tekinn fyrir sérstaklega í
þessari umræðu rétt eina ferðina. Ég
gat ekki heyrt að Drífa hlustaði á nein
rök í umræðunni í Kastljósinu; að það
væri fullt af konum reglulega á
mælendaskrá í Silfrinu, að fleiri
karlmenn væru í stjórnkerfinu og stór
hluti jólabókahöfunda væru karlmenn.
Mér sýnist að þessi kvennahópur hafi
horfið aftur til fortíðar, sé fastur í
hugmyndum og kreddum sem ég man
eftir á áttunda áratug síðustu aldar.
Kjarnann í kvennabaráttunni og
hugmyndir um jafnan rétt karla og
kvenna á öllum sviðum, kann þjóðin
betur en trúarjátninguna. Sem betur fer. Í þessu
einsog öðru í heiminum gengur einfaldlega misvel
að láta allt heila klabbið ganga upp. Ég þekki þetta
vel sjálfur, er sonur einstæðrar móður og sem fékk
ekki sömu laun fyrir sömu vinnu og karlmennirnir
sem hún vann með. Það var óréttlæti. Það segir
hins vegar ekkert um réttlæti eða jafnrétti, þótt
barómetið sýni að færri konur en karlar hafi komið
fram í spjallþætti. Á að fá Kvennakórinn einu sinni
í mánuði til að jafna hlutföllin?
Þetta er undarleg krossferð, boðskapurinn
gamaldags, svolítið einsog útvarpstöð sem hefur
villst af FM-tíðninni og lent á gömlu langbylgjunni,
eða jafnvel tilbrigði við bændaferðina sem var
farinn til að mótmæla símanum. Mér finnst Drífa
og fleiri gera lítið úr því fagfólki sem vinnur við
fjölmiðla, konum og körlum, með því að gefa sér,
út frá talnaleik, að karlleg viðhorf eða viðmið ráði
ferðinni.
Þetta á ekkert skylt við jafnréttisbaráttu. Þetta
er bara klár vitleysa. Kerlingavæl.
Höfundur er dagskrárgerðarmaður.
Kerlingavæl
UMRÆÐAN
Neytendamál
Vegna kæru Neytendasamtak-anna á vörusvikum varðandi
sölu á rauðu ginsengi vilja
Eðalvörur taka eftirfarandi fram:
Eðalvörur hafa í yfir 20 ár haft
með höndum innflutning og sölu á
rauðu eðal-ginsengi frá Kóreu og
verða því að teljast meðal
brautryðjenda á þessu sviði.
Allan þennan tíma hefur varan
notið einstakrar velvildar tryggra
neytenda og vilja Eðalvörur nota
þetta tækifæri til að þakka það.
En ósvikið rautt ginseng í hæsta
gæðaflokki er dýrt og því má, því
miður, alltaf búast við því að
óprúttnir aðilar reyni að næla sér
í skjótfenginn gróða með svikinni
vöru. Upphaf þessa máls má
rekja til þess að gamalgróin
heildsala lét hanna umbúðir með
rautt eðal-ginseng sem fyrirmynd
og afritaði nánast innihaldslýs-
ingu vörunnar þótt vara sú sem
hún hugðist selja væri annars
eðlis, þ.e. hvítt ginseng í hylkjum.
Þetta endaði 27. mars sl. með
því að fyrirtækinu var bannað af
Neytendastofu að líkja eftir
umbúðum rauðs eðal-ginsengs,
sjá: http://www.neytendastofa.is.
Þar sem úrskurðinum var ekki
áfrýjað breytti heildsalan umbúð-
unum en hélt áfram með inni-
haldslýsingu sem að mestu var
fengin að láni af umbúðum rauðs
eðal-ginsengs. Ekkert eftirlit er
með innihaldi fæðubótarefna á
Íslandi að öðru leyti en því að lesa
á umbúðir og treysta á heiðarleik
framleiðenda og innflytjenda enda
yrði annað óviðráðanlegt fjárhags-
lega. Eðalvörur fagna lofsverðu
frumkvæði Neytendasamtakanna,
http://www.ns.is/ .Ljóst er að frjáls
félagasamtök hafa ekki bolmagn
til að halda uppi virku eftirliti en í
svona aðgerð felst fælingarmátt-
ur sem ekki var til staðar. Eðalvör-
ur vilja að lokum hvetja fyrirtæki
og neytendur til að efla Neytenda-
samtökin til að þau geti staðið vörð
um heilbrigða viðskiptahætti.
Fyrir hönd Eðalvara ehf.
Sigurður Þórðarson
Yfirlýsing frá Eðalvörum
ÞORSTEINN J.
VILHJÁLMSSON