Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 32

Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 32
32 1. desember 2007 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Þennan desemberdag fyrir 89 árum varð Ís- land fullvalda ríki. Virðuleg athöfn var haldin við Stjórnarráðshúsið en hún var bæði stutt og ein- föld vegna spænsku veikinnar sem hafði geisað aðeins tveimur mánuðum fyrr og var enn ekki að fullu gengin yfir. Dimmt var yfir Reykjavík þennan fyrsta desem- berdag ársins 1918, snjólaust og hrímkalt. Tals- verður hópur manna mætti til athafnarinnar þar sem lúðraflokkur lék Eldgamla Ísafold og allir tóku ofan. Jón Magnússon forsætisráðherra var staddur í Danmörku svo Sigurður Eggerz fjármálaráðherra flutti ræðu þar sem hann bar sambandslögin upp til staðfestingar við konung og sagði að nú byrjaði ný saga; saga hins fullvalda íslenska ríkis. Eftir ræðu Sigurðar var ríkisfáni Íslands dreginn að hún í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni og um leið skutu nokkrir hermenn út byssum sínum upp í loftið á sama tíma og heyra mátti fallbyssu- drunur frá varðskipinu Islands Falk. Eftir fleiri ræður var leikinn þjóðsöngur Dana, Det er et yndigt land, og hrópað húrra fyrir Dan- mörku, en í lok athafnar var íslenski þjóðsöng- urinn leikinn og hrópað húrra fyrir Íslandi. Til var orðið íslenskt ríki. Fullveldisdagurinn 1. desember var almennur hátíðisdagur á Íslandi fram til ársins 1944. ÞETTA GERÐIST: 1. DESEMBER 1918 Ísland verður fullvalda ríki WOODY ALLEN KVIKMYNDALEIK- STJÓRI ER 72 ÁRA Í DAG „Mín eina eftirsjá í lífinu er að vera ekki annar en ég er. Ég hræðist ekki að deyja... ég vil bara ekki vera á staðnum þegar það gerist.“ Woody Allen gerir oftast kvik- myndir um taugaveiklaða New York-búa og leikur sjálfur aðal- hlutverkið. MERKISATBURÐIR 1804 Napóleon Bonaparte kvænist Jósefínu af Mart- inique. 1835 H.C. Andersen gefur út fyrstu ævintýrabókina. 1878 Reykjanesviti, fyrsti vitinn á Íslandi, tekinn í notkun. 1887 Sherlock Holmes birtist fyrst á prenti. 1901 Ísfélag Vestmannaeyja stofnað. 1929 Edwin S. Lowe finnur upp bingó. 1930 Togarinn Apríl frá Reykja- vík ferst úti af Suðaustur- landi með átján mönn- um. 1932 Sjálfvirkar símstöðvar teknar í notkun í Reykja- vík og Hafnarfirði. 1982 Michael Jackson gefur út Thriller. Um þessar mundir er hálf öld síðan Júdó- deild Ármanns var stofnuð í Reykjavík, en tilefnið spratt út frá lagasetningu á Alþingi sem bannaði hnefaleika á ís- lenskri grund. „Menn þurftu eftir sem áður útrás og þegar mönnum var bannað að boxa var júdódeildinni komið á laggirnar,“ segir Jón Gunnar Björgvinsson, flugmaður og talsmaður júdódeildar Ármanns. „Frumkvöðull júdós á Íslandi var Sigurður Jóhannsson sem fór utan til að afla sér þekkingar, en Ragnar Jónsson var fyrstur Íslendinga til að fá svarta beltið í júdói. Á þessum tíma var júdó í mikilli upp- sveiflu í heiminum. Fyrsti júdóskólinn, Kodokan, var stofnaður af prófessor Jigaro Kano í Japan 1882, en júdó þró- aðist upp úr jujitsú. Heimamenn höfðu litla trú á þessari nýju bardagaíþrótt þar sem grófustu fantabrögðin höfðu verið tekin út, en sex árum síðar þögn- uðu efasemdaraddirnar þegar júdó- og jujitsúmenn tókust á og júdómenn gjör- sigruðu í keppninni. Þá sá fólk hversu öflug þessi íþrótt var og í kjölfarið fór hún sigurför um heiminn,“ segir Jón Gunnar, en þess má geta að júdó var lengst af eina bardagaíþróttin sem leyfð var á Ólympíuleikunum. „Það sem gerir júdó frábrugðið flest- um öðrum bardagaíþróttum er að menn geta tekið á af fullum krafti og beitt öllu sínu afli í að kljást við andstæðinginn án þess að eiga á hættu að slasast eða slasa aðra. Sama hver brögðin eru ganga þau ekki út á að slá og skaða, heldur kasta mönnum eða halda föstum þannig að fullnaðarsigur náist,“ segir Jón Gunnar um júdó sem er með stærstu íþrótta- samböndum veraldar. „Júdó hefur alltaf verið vinsælt á Íslandi og er í miklum vexti einmitt núna. Við erum nýbúnir að flytja í stór- glæsilegan, sérhæfðan bardagasal í Laugardalnum, sem er sá stærsti og fullkomnasti á Norðurlöndunum. Bæði kynin sækja í júdó, þótt karlmenn séu þar í miklum meirihluta, en júdó hent- ar kvenþjóðinni ekki síður og við eigum mjög góða keppendur í kvennaflokki, og viljum fá fleiri,“ segir Jón Gunnar ákveðinn, en íslenskir júdómenn hafa verið með eindæmum sigursælir á al- þjóðavettvangi. „Við höfum ekki átt keppnismann á síðustu tveimur Ólympíuleikum, en ein af þremur Ólympíumedalíum Íslend- inga er bronsmedalía sem Ármenn- ingurinn Bjarni Friðriksson vann árið 1984,“ segir Jón Gunnar sem hlakkar til að taka júdóglímu ásamt fleiri Ármenn- ingum í afmælisveislunni í dag. „Hátíðahöldin byrja í Laugabóli í íþróttahúsi Ármanns og Þróttar í Laug- ardal klukkan 13 með veglegri sýningu, keppnisglímum, úrslitaglímum, viður- kenningum til frumkvöðla júdós á Ís- landi og fleiri skemmtilegum uppákom- um með júdóiðkendum á öllum aldri.“ thordis@frettabladid.is JÚDÓDEILD ÁRMANNS: BÝÐUR TIL VEISLU Í DAG Í TILEFNI 50 ÁRA AFMÆLISINS Kraftarnir þurftu að fá útrás FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA JÚDÓGLÍMA Hér takast þeir á feðgarnir Jón Gunnar Björg- vinsson og sonur hans Sindri Freyr, fjögurra ára, en mikið er um að tveir ættliðir æfi júdó hjá Júdódeild Ármanns. Elskulegur faðir minn, Garðar Sigurðsson Krummahólum 8, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram 11. desember frá Fossvogskapellu kl. 13.00. Leifur L. Garðarsson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Sigurbergs Sigurðssonar Hamragerði 17, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri fyrir góða umönnun. Hrafnhildur Frímannsdóttir Jónína Sigurbergsdóttir Þröstur Agnarsson Sigurður Sigurbergsson Kristbjörg Eiðsdóttir Halldór Sigurbergsson Hildur Andrésdóttir og afabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Brynjólfur Magnússon Hjúkrunarheimilinu Víðinesi, áður til heimilis að Bergþórugötu 45, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi þriðjudaginn 27. nóv- ember. Hann verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 7. desember kl. 13.00. Ólína M. Brynjólfsdóttir Bjarni Gunnarsson Sigríður Brynjólfsdóttir Ólafur H. Ólafsson Lilja Brynjólfsdóttir Fannberg E. Stefánsson Ástrós Brynjólfsdóttir Kristinn Björnsson Jóel Brynjólfsson Sonja E. Ágústsdóttir Guðrún Brynjólfsdóttir Hendrik S. Hreggviðsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegt þakklæti til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts Karls Ragnarssonar Garðabraut 16, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness. Erna Benediktsdóttir Magnús B. Karlsson Guðfinna Óskarsdóttir Ragnheiður Karlsdóttir Guðm. Pálmi Kristinsson Sigrún Karlsdóttir Eugeniusz Michon Karl Örn Karlsson Guðrún Garðarsdóttir Lúðvík Karlsson Heiðrún Hámundardóttir Kristleifur S. Brandsson og afabörn. Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er í dag en kjörörð hans er forysta í ár. Það vísar til starfsins sem ríkisstjórnir, heil- brigðisyfirvöld og félagasamtök eiga fyrir höndum í bar- áttunni gegn alnæmi og er jafnframt hugsað sem hvatn- ingarorð til almennings þar sem vandinn er mestur. Áætlað er að milli 30 og 40 milljónir manna séu smitað- ar af veirunni og fleiri munu þjást vegna hennar. Meðal annars 4,6 milljónir munaðarleysingja í sunnanverðri Afríku, sem misst hafa foreldra sína í faraldrinum. Stjórn Rauða kross Íslands samþykkti ályktun 16. nóv- ember síðastliðinn. Þar segist félagið ætla að styðja starf sjálfboðaliða og starfsfólk sitt í Malaví, Mósambík og Suður-Afríku, sem aðstoðar alnæmissjúklinga og vinnur að því að fyrirbyggja frekari útbreiðslu sjúkdómsins. Rauði kross Íslands hvetur íslensk stjórnvöld einnig til vinna að framgangi þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um að bæta heilsufar fólks í fátækustu ríkj- um heims. Meðal annars með því að snúa við útbreiðslu alnæmis fyrir 2015 og veita fátækum þjóðum aðgang að mikilvægum lyfjum. Ungmennafélag Íslands mun því í dag selja rauð alnæmismerki í Smáralind milli klukkan 14 og 16. Merk- in eru búin til af fólki sem tekur þátt í sjálfshjálparhópi smitaðra á vegum Rauða krossins í Malaví og rennur ágóðinn til hópsins. - rve Aðstoð til fátækra landa AFRÍKA Áætlað er að 4,6 börn hafi misst foreldra sína í alnæmisfaraldr- inum í sunnan- verðri Afríku.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.