Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 50
[ ]
Óðinn Sigurðsson lásasmiður
hittir oft önuga viðskiptavini
í blábítið eða um hánætur.
Lundin léttist þegar viðskiptin
hafa gengið yfir.
„Fólk er mikið að læsa lykla sína
inni í bílum og týna þeim líka, en
það er líka alltaf að versna að opna
bíla án rétta lykilsins,“ segir Óðinn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Neyðarþjónustunnar við Lauga-
veg, en þar starfa fimm lásasmið-
ir á vöktum við að aðstoða gleymna
bíleigendur.
„Á eldri bílum og hluta nýrri
bíla er enn tiltölulega auðvelt að
opna með okkar verkfærum, en
oftast eru öryggiskerfi í nýjum
bílum svo öflug að upplýsingar
þarf frá umboði eða framleiðanda
erlendis til að smíða nýjan lykil og
opna,“ segir Óðinn sem finnur til
með bíleigendum þegar öryggis-
þáttur bílsins er orðinn til trafala.
„Oftast fylgja tveir lyklar með
nýjum bílum og þegar báðir týnast
getur reikningur fyrir nýjan lykil
hljóðað upp á nokkur hundruð þús-
und þegar verst lætur. Í þeim til-
fellum þarf að skipta um tölvu og
allar læsingar í bílnum, en algengt
verð fyrir nýjan lykil án svo
mikilla vandræða er á bilinu 50 til
100 þúsund krónur frá framleið-
endum,“ segir Óðinn sem á næstu
dögum tekur í notkun galdratæki
sem lásasmiðir um allan heim hafa
beðið eftir og greiða mun úr vanda
bíleigenda með flókinn öryggis-
búnað.
„Með þessu nýja tæki eigum við
að geta forritað og smíðað lykla í
flestar tegundir bíla, meira að segja
þótt umboðið geti ekki orðið að liði
og allir lyklar séu týndir til að smíða
eftir. Þetta verður mikil búbót fyrir
bíleigendur því svona gleymska og
óheppni verður sífellt dýrari,“ segir
Óðinn, en útkall lásasmiðs til bíl-
eigenda sem standa úti við læstan
bíl sinn kostar 5.000 krónur á daginn
og 8.000 á nóttunni.
„Þetta er virkilega algengt og
gerist allan daginn, en tindarnir
eru síðdegis frá fjögur til sex og á
milli sjö og níu á morgnana þegar
mestu frostin eru. Þá opnast
læsingin ekki alveg vegna kulda-
tregðu en fólk kemst inn í bíla til að
ræsa þá og ná í sköfuna. Síðan
hrekkur hurðin til baka og læsist,“
segir Óðinn og viðurkennir að
skapið sé ekki alltaf upp á það
besta hjá bíleigendum þegar starfs-
menn Neyðarþjónustunnar mæta
til hjálpar.
„Fólk er gramt út í sjálft sig og
tekur reiðina út á okkur. Maður
tekur því bara rólega. Oftast léttist
brúnin þegar búið er að opna, en
maður hittir mikið af pirruðu fólki
í þessari vinnu. Það er mikið sama
fólkið sem læsir sig úti og týnir
lyklum, en líka fullt af fólki sem
hefur aldrei áður læst sig úti en
gerir það svo kannski í þrígang
áður en óheppnin hættir að elta
það.“ thordis@frettabladid.is
Óheppnin eltir í þrígang
Bílsæti þurfa að vera þægileg hjá þeim sem keyra langar
leiðir. Þar má nefna vörubílstjóra, rútubílstjóra og aðra sem
vinna við akstur og eyða löngum stundum í bílsætinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Óðinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Neyðarþjónustunnar við Laugaveg, bíður
spenntur eftir nýjum búnaði sem lækka mun mikið kostnað bíleigenda þegar lyklar
nýrra bifreiða með flókinn öryggisbúnað týnast.
www.us.is
EIGENDASKIPTI
ÖKUTÆKJA Á VEFNUM
Umferðarstofa, í samstarfi við Glitni og Kaupþing,
býður nú þann möguleika að tilkynna eigenda-
skipti og ganga frá skráningu meðeigenda og
umráðamanna bifreiða með rafrænum hætti á
vef Umferðarstofu.
Kynntu þér þessa einföldu og þægilegu
nýjung á www.us.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
8
4
1
Jeppadekk
Alorka • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Heilsársdekk
31" kr. 12.900
(31x10.50R15)
33" kr. 15.900
(33x12.50R15)
Úrval annarra stærða upp í 38".
Felgustærð 15", 16" 17" og 18".
Sendum frítt um land allt!
Við mælum með míkróskurði
P
IPA
R
• S
ÍA
• 70
622
Nánar á jeppadekk.is
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000