Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 72
● hús&heimili
Á sýningunni BRUM sem haldin
var í Laugardalshöll í haust sýndi
myndlistarmaðurinn og trésmið-
urinn Daníel Magnússon nýjan
koll sem nefnist Hex og er eins
konar afsprengi fyrri kolla og
stóla Daníels.
„Þetta er tilbrigði við sama
stef. Lítill kollur með uppskrúf-
aðri setu sem hægt er að hækka
og lækka og hugsaður sem mubla
inni á heimili, jafnvel við síma.
Hann er handhægur þar sem er
mikið af unglingum vegna þess
hve lítil setan er. Þess vegna nenn-
ir maður ekki að sitja lengi á koll-
inum og símtölin verða styttri.
Þetta er ekki hægindastóll heldur
rétt til að reima skóna í. Ég er með
einn inni í gangi hjá mér,“ útskýr-
ir Daníel.
Hex er eikarstóll með renndri
setu en formið á stólfótunum er að
sögn Daníels hugsað út frá para-
bóluburði. „Það er fullkominn
burður í parabólu og öll þyngdin
miðjusett. Gaman væri að þyngd-
arprófa stólana þar sem burðar-
grindin hefur mikið þyngdarþol
en það er meginhugsunin á bak við
hönnunina.“
Stólfóturinn minnir jafnframt á
aðra stóla eftir Daníel. „Ég hann-
aði þennan kjarna og græjur til
þess að smíða hann svo ég get
raðsmíðað í þetta en sumir hlut-
ir duga á milli stóla. Stólarnir eru
með góða burðargrind og það er
sterkur viður í þeim. Þetta eru
ekki tískuhúsgögn eða merkja-
vara heldur gert til að endast,“
segir Daníel.
„Ég fæ mjög lítið til viðgerðar.
Hafi ég látið einhvern annan vinna
hlutina fyrir mig lendi ég yfirleitt
í veseni. Í dag er ég þó kominn
með góða aðila til að aðstoða mig,“
segir Daníel og nefnir Járnsmiðju
Óðins og Ásgrím bólstrara. „Ég er
með bestu gæjana í vinnu og því
eru húsgögnin dýr. Ég kaupi dýra
og góða fagvinnu og vinn tréverk-
ið sjálfur enda vil ég ekki fá þetta
í hausinn bilað. En þá geri ég líka
við hlutinn,“ segir hann ákafur.
Húsgögn Daníels eru ekki í um-
boðssölu heldur er einungis hægt
að kaupa þau beint frá honum.
„Þannig er ég nánast með enga
álagningu og tek enga söluþóknun
fyrir,“ segir Daníel. Þótt ekki sé
hægt að kaupa húsgögnin í versl-
unum má víða berja þau augum. Í
39 þrepum á Laugavegi eru hús-
gögn og innréttingar sem Daní-
el smíðaði með Gulleik Lövskar,
kennara við Listaháskóla Íslands,
og á Hótel 101 eru barstólar eftir
hann svo dæmi séu tekin. Nánar
á heimasíðu Daníels www.bhs.is/
Hedoplast. - hs
Með endingu að
markmiði
● Daníel Magnússon hefur hannað nýjan koll sem er afsprengi af fyrri verkum hans.
Daníel hefur nóg að gera í myndlist,
húsgagnahönnun og smíðavinnu og
hefur nýverið lokið við að smíða bekk
sem glittir hér í. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
20-60%
AFSLÁTTUR
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
P
IP
A
R
• S
ÍA
•
6
0
8
0
6
1. DESEMBER 2007 LAUGARDAGUR20