Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 85
LAUGARDAGUR 1. desember 2007 49
samkvæmt tölfræði Krýsuvíkur-
samtakanna. Sú staðreynd sýnir
vel hve baráttan við fíknina reyn-
ist fólki erfið, jafnvel þó að staður-
inn þyki veita fíklum fram-
úrskarandi aðstoð.
Dánartilkynningar og fegurð
„Það skyldi enginn ætla að veran
hér sé auðveld,“ segir þungbúinn
maður skyndilega eftir að aðrir
vistmenn hafa hrósað starfi sam-
takanna. Maðurinn heitir Jakob
Oddsson, er 44 ára gamall, og
segist hafa verið í neyslu í 32 ár.
„Í síðustu viku sá ég dánartil-
kynningar um þrjá félaga mína í
blöðunum. Mér telst svo til að á
þessu ári hafi átján manns sem ég
þekki látið lífið af völdum fíknar,“
segir Jakob. Við þessi orð brosir
Sævar, sem situr við hlið hans
beisklega og segir: „Svo skilur fólk
ekki hvers vegna við hættum
þessum ekki áður en illa fer, ef það
væri nú svo auðvelt.“
„Þetta er erfið barátta en þessi
staður er sá eini sem getur hjálpað
mér,“ bætir Jakob við. „Það sama
segi ég,“ segir piltur sem situr
gengt honum. Hann er langyngstur
af því fólki sem þarna situr. Segist
heita Ómar Kárason og vera
sautján ára gamall. Blaðamaður
furðar sig á því hvað svo ung mann-
eskja er að gera í langtímameðferð
en Ómar segir ákveðinn að hans
fíkn sé sú sama og þeirra sem hafa
lengi glímt við hana. „Ég skoðaði
marga möguleika í stöðunni en
fannst þessi staður henta mér best.
Hér fær maður tíma og allt er mjög
einstaklingsmiðað,“ útskýrir hann.
Út um gluggann á reykherberg-
inu blasir við kuldaleg en fögur
náttúra Krýsuvíkur. Ómar lítur út
um gluggann og segir: „Auðvitað
dauðbrá mér samt fyrst þegar ég
kom hingað en maður lærir fljótt
að meta þennan stað.“
„Og svo uppgötvar maður fljótt
hvað maður fær frábært endórfín-
kikk við að ganga upp á fjall,“
skýtur Sævar inn í og hlær. En í
Krýsuvík er mikið gengið um
nágrenni og segja sumir vistmann-
anna að þeim finnist það uppgötva
fegurðina aftur á göngu um
nágrennið.
Fjölskyldur og fíkn
Margir af vistmönnum staðarins
koma úr fjölskyldum þar sem
áfengis- og fíkniefnaneysla hefur
verið mikið vandamál. Eigingirni,
sjálfsvorkunn og afneitun fylgja
fíkn og því fer barnauppeldi
sjaldnast vel með því vandamáli.
Ingimar Þór Richter, 27 ára gam-
all, er einn þeirra sem koma úr
slíkri fjölskyldu. Ólíkt flestöllum í
hópnum segist hann ekki hafa
verið í fíkniefnaneyslu en notað
áfengi í miklu óhófi. „Ég kem úr
„fucked up“ fjölskyldu og var tólf
ára gamall orðinn kvíðasjúklingur.
Ég stundaði samt íþróttir og reyndi
að gera flest það sem aðrir krakkar
gerðu,“ segir Ingimar en bætir
strax við: „Ég kenni ekki fjöl-
skyldu minni um mín vandamál.
Vil samt sjálfur ekki vera fjöl-
skyldufaðir sem drekkur.“ Ingi-
mar er í sinni þriðju meðferð, hann
hefur verið í um þrjár vikur í
Krýsuvík. „Ef ég væri ekki hér
væri ég róni,“ segir Ingimar og
brosir hreinskilnislega. Segist
mikið hafa verið á hrakhólum í
gegnum tíðina og þótt sjálfsagt að
hanga með því fólki sem í almennu
tali er kallað rónar. „Ég leit alltaf
upp til rónanna þegar ég var yngri,
ég veit að það er heimskulegt en
mér fannst þeir eina fólkið sem
var raunverulega frjálst,“ segir
hann.
Við hlið blaðamanns situr ung
kona. Eins og gjarnan er fer minna
fyrir konunum heldur en körlunum.
Hún heitir Ásta Huld Iðunnardóttir
og er 26 ára og er nú í sinni fjórðu
meðferð. Eins og margir sem
dvelja á Krýsuvík á hún barn sem
hún vill reynast vel. Það kemur
blik í augu hennar þegar hún minn-
ist á það. „Stelpan mín er sjö ára
og er núna hjá afa sínum og ömmu
en ég hitti hana eins mikið og ég
get, það er samt svo rosalega erfitt
að kveðja hana,“ segir Ásta. Hún
segist samt staðráðin í að ljúka
meðferðinni og geta veitt dóttur
sinni örugga framtíð, án vímu-
gjafa. „Þessi staður er svo miklu
betri en ég bjóst við. Ég held að
það verði miklu auðveldara að tak-
ast á við lífið eftir að hafa verið
hér. Hérna er svo mikil jákvæð
orka sem veitir manni styrk í bar-
áttunni,“ segir hún að lokum.
Mér telst svo til að á
þessu ári hafi átján
manns sem ég þekki
látið lífið af völdum
fíknar
JAKOB ODDSSON
Á hverju ári leita á milli sextíu og sjötíu manns meðferðar í Krýsuvík.
Jack D. I ves
Skaf tafel l í Öræfum
Þúsund ára saga
Falleg og fróðleg bók um fj öllin og jöklana í
Öræfum og sögu þjóðgarðsins í Skaft afelli og
fólksins þar í þúsund ár.
Höfundur fór fyrir rannsókna-
leiðöngrum enskra námsmanna á
jöklana um miðja síðustu öld.
Tveir leiðangursmanna týndust og
hafa aldrei komið fram. Í bókinni
er áhrifamikil frásögn af þessum
atburðum.
Jack segir frá horfnum búskapar-
háttum í Öræfum og selveiðum á
Skeiðarársandi sem hann tók sjálfur
þátt í.
Fjölmargar ljósmyndir, gamlar og
nýjar, prýða útgáfuna.
Skýringarkort sýna þau býli, sem
þraukað hafa í meira en þúsund
ár, ásamt mörgum þeirra bæja og
kirkna sem jöklagangur og eldvirkni
hafa þurrkað út.
Bókin kemur einnig út á ensku.
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
Ránargötu 20 • 101 Reykjavík • sími 561 0055 • www.ormstunga.is
Dr. Jack D. Ives er alþjóðlega virtur fj allavist fræðingur
og hefur verið tíður gestur í Öræfasveit í meira en
hálfa öld. Hann tengdist Ragnari Stefánssyni bónda í
Skaft afelli og fj ölskyldu hans sterkum böndum. Bókin
er því öðrum þræði saga Ragnars, forfeðra hans og
afk omenda.
FRAMHALD
Á SÍÐU 50