Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 96
60 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
MÆLISTIKAN
■ Á uppleið
Þykkir sokkar og hælaskór. Hver
sagði að það væri ekki hægt að vera
glæsilegur á veturna?
Dimmar
stjörnubjart-
ar nætur.
Rómantík og
heitar stundir í
skammdeginu.
Eggjapúns.
Frábært að bjóða vinum upp á þetta
eftir langa útiveru. Egg,
mjólk, rjómi, sykur,
múskat og viskí
hressir alla við!
Hattar. Karl-
menn eru svo
virðulegir með
höfuðföt og
svo auðvitað
mjög nytsamlegir
í kuldanum.
Fallega hönnuð svefnherberg-
isleikföng. Nú þurfa konur ekki að
fá hrylling yfir neonlituðu plastdóti
heldur heim- sækja Systur
á Laugavegi í
staðinn.
■ Á niðurleið
Hollur matur og salöt. Sorrí, nú
viljum við bara flatkökur með hangi-
kjöti, síld og laufabrauð.
Undarlegir
slúðurdálkar.
Við bara skiljum
þig alls ekki, Ellý,
því miður.
Skærir litir.
Við vitum að
þeir verða í tísku
næsta vor en í
desember eigum við að vera dökk og
dramatísk.
Uppajólahald. Eini tími ársins sem
fólk þarf ekki að sýnast. Burt með
þemalituð jólatré og kristalshurðar-
kransa.
Jólaskrautið í miðbænum. Kom-
inn tími til að fríska upp á eitthvað af
því. Burt með glannalegar halastjörn-
ur og diskóljós og inn með klassískar
perur.
Í hvernig fötum líður þér best?
„Þæjó“-buxur (annað orð yfir
náttbuxur á mínu heimili) og
hlýrabolur verða oft fyrir valinu
en annars er ég gjarnan í kokka-
galla sem er líka þægilegur.
Ef ég fengi að velja mínu hinstu
máltíð, yrði hún … … heima í kós-
íheitunum með Óla kærastanum
mínum og hann myndi elda. Alveg
sama hvað það væri. Það eru
bestu stundirnar og ég fæ alltof
fáar þannig stundir.
Hvaða kæki ertu með? Ég er
ekki með neina líkamlega kæki
sem ég veit um en ég segi „vá!“
örugglega í öðru hverju orði.
Því eldri sem ég verð því … …
vitrari verð ég.
Hvaða frasa ofnotar þú? „Þú
uppskerð eins og þú sáir“ og „illu
er best af lokið“ er mjög vinsælt
hjá mér þessa dagana í eldhús-
inu.
Eftirlætisbragð? Þetta er erfið
spurning fyrir kokk. Það breytist
örugglega á hverjum degi. En
ætli ég verði ekki að segja að
ananas sé í miklu uppáhaldi hjá
mér, bæði í fljótandi og föstu
formi.
Hvaða hlutir á heimili þínu eru
í rauðum lit? Haha, en fyndið!
Rauður er nefnilega aðalliturinn í
eldhúsinu á mínu heimili. Á rauð-
an ísskáp, rauða cappuchino-vél
og svo eru rauðir speglar hang-
andi á veggnum.
Ef þú ættir að velja þér haus
einhverrar frægrar manneskju
til að setja á búkinn þinn – hvaða
haus yrði fyrir valinu? Án efa
Chuck Norris. Það væri ógeðs-
lega fyndið að sjá alskeggjaðan
karlmannshaus á 158 sentímetra
kvenmannslíkama.
Hvernig heilsarðu? Ég segi
„hæ!“ hátt og snjallt og læt stórt
bros fylgja.
Hvaða sjö hluti leggurðu til í
góða sumarbústaðarferð? Tré-
drumb í arininn, bjarnarfeld til
að liggja á, i-pod með góðri tón-
list, kaffi, mjólk, bikiní fyrir heita
pottinn og bakkelsi til að borða í
morgunmat.
Hverju tekurðu fyrst eftir í
fari fólks? Ég spái ekki mikið í
ytra útlit fólks þannig að ég verð
að segja að það sé útgeislun mann-
eskjunnar sem ég tek fyrst eftir.
Hvort hún sé ánægð, hress og í
góðu skapi. Leitast frekar eftir
þannig félagsskap.
Ef þú yrðir að eyða 20.000 krón-
um næsta hálftímann – hvernig
myndirðu eyða peningnum? Ég
myndi kaupa mér geggjaða skó.
Er eins og flestar konur – með
skófíkn – og það eru alveg tveir
mánuðir síðan ég keypti síðast
skó. Komin með fráhvarfsein-
kenni.
Nýr strumpur bætist við í
strumpafjölskylduna – hvað kall-
arðu hann? Strympi.
Hvað ætti Grýla grænmetisæta
að gera við óþekku börnin? Er
Grýla orðin grænmetisæta?
Hvaða lag geturðu hlustað á
aftur og aftur? Þessa stundina
get ég hlustað endalaust á
Streemline með Pendulum. Ann-
ars er það minn stíll að hlusta
endalaust á eitt lag í viku þar til
allir eru komnir með ógeð í kring-
um mig.
Ef þú uppgötvaðir nýja plánetu
í sólkerfi okkar – hvað myndirðu
nefna hana? Hrefnu Rósu án efa.
Það væri geggjað ef heil pláneta
héti eftir mér.
Hver er frægasti ættinginn
þinn? Við erum öll svo ótrúlega
fræg í minni fjölskyldu en fyrst
ég þarf að velja bara einn þá dett-
ur mér svona fyrst í hug Jón
Sætran heitinn sem var afabróðir
minn og skólastjóri Iðnskólans í
Reykjavík í eldgamladaga.
Þú færð þér karakter úr kvik-
mynd til að búa með – hvaða per-
sóna verður fyrir valinu? Það yrði
Brodie (Jason Lee) úr Mallrats.
Hann er svo mega fyndinn og nær
að búa til skemmtilega umræðu
úr ómerkilegustu hlutum. Yrði
örugglega aldrei vandræðaleg
þögn.
Hvað þarf gott veitingahús að
hafa? Mikilvægast er að hafa
gott og ánægt starfsfólk. Það
skilar sér í matnum og þjónust-
unni.
Og að lokum – eftirlætisfisk-
réttur og af hverju? Það eru fiski-
bollur í öllu sínu veldi. Hefur allt-
af verið uppáhalds maturinn minn
alveg frá því ég man eftir mér. Ég
er auðvitað innan um mjög flottan
mat alla daga og þess vegna finnst
mér örugglega enn þá gaman að fá
hversdagslegu fiskibollurnar.
Segir hæ! hátt og snjallt
Hrefna Rósa Sætran hefur verið áberandi í matarmenningu okkar Íslendinga upp á síðkastið en auk
þess að vera meðlimur í landsliði íslenskra kokka opnaði hún nýlega Fiskimarkaðinn þar sem hún er
yfirkokkur. Hrefna Rósa var tekin í yfirheyrslu helgarinnar.
RAUTT LANDSLIÐSELDHÚS Í eldhúsi Hrefnu Bjarkar Sætran, landsliðskokks og
eiganda Fiskimarkaðarins, er varla þverfótað fyrir rauðum hlutum, svo sem ísskáp,
kaffivél og speglum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Hrefna Rósa
Jóhannsdóttir Sætran
FÆÐINGARÁR: 1980, sama ár
og Vigdís Finnbogadóttir var
kjörin forseti Íslands.
Á HUNDAVAÐI: Vann á Land-
spítalanum frá 1995-2000. Fór
þá að læra kokkinn á Apótek-
inu og kláraði það árið 2004.
Færði sig yfir í Sjávarkjallarann
og vann þar sem yfirkokkur þar
til hún opnaði Fiskimarkaðinn í
september 2007.