Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 104

Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 104
68 1. desember 2007 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Efnt verður til hátíðarsam- komu undir yfirskriftinni „Bessastaðaskóli – vagga íslenskrar menningar“ í Íþróttahúsi Álftaness í dag og stendur hún frá kl. 14- 16. Skipuleggjendur sam- komunnar eru SÁUM, Samtök áhugafólks um menningarhús á Álftanesi, sem vilja með þessum hætti minna á Bessastaða- skóla og vekja athygli á því hve stóran þátt skólinn átti í þróun og eflingu íslenskrar menn- ingar. Á samkomunni verður blandað saman fræðum og listflutningi sem tengist umfjöllunarefninu. Meðal þeirra sem koma fram verða Anna Ólafsdóttir Björnsson sem fjallar um áhrif skólans á mann- líf á Álftanesi, Hjalti Hugason sem fjallar um prestsmenntunina sem þar fór fram og Sveinn Yngvi Egilsson sem fjall- ar um skólaár Jónasar Hallgrímssonar og Fjöln- ismanna. Enn fremur flytja þau Bára Gríms- dóttir og Chris Forster tvísöngsstemmu og kynna leik skólapilta. Boðið verður upp á kaffiveiting- ar og safnað skráningum í áhuga- hóp um Bessastaðaskóla, en í fram- tíðinni er ætlunin að minnast skólahaldsins ár hvert á hefðbundn- um skólasetningardegi hans, 1. okt- óber, og safna saman til útgáfu efni sem tengist honum. - pbb Bessastaðaskóla minnst í dag FRÆGASTI NEMANDI BESSASTAÐASKÓLA Kl. 15.30 Rithöfundurinn Þórdís Björnsdóttir les upp úr nýútkominni skáldsögu sinni Saga af bláu sumri á opnun listsýningarinnar Meter á Korpúlfsstöðum í dag kl. 15.30. Sýningin Falinn fjársjóður verður opnuð á Kjarvalsstöðum á sunnudag kl. 14. Á sýningunni má sjá verk sem Landsbankinn festi kaup á í tilefni af 120 ára afmæli sínu í fyrra. Sýningin býður upp á mörg merkileg verk úr íslenskri listasögu, en fárra er væntanlega beðið með jafn mikilli eftirvæntingu og verksins Hvítasunnudagur eftir Jóhannes S. Kjarval sem hann málaði á árunum 1917-1919. Verkið Hvítasunnudagur kom í leitirnar í febrúar á þessu ári og fékk fundurinn gríðarlega umfjöllun í íslenskum fjölmiðl- um enda um að ræða einstakt verk eftir Kjarval sem hafði verið leitað lengi. Kjarval málaði Hvítasunnudag þegar hann hafði nýlokið listnámi við Konunglegu dönsku listakademíuna árið 1917, en verkið er í kúbískum stíl og skipar mikilvægan sess í sögu listar Kjarvals. Verkið var selt á uppboði síðar á árinu en þar sem leynd hvíldi yfir kaupanda þess gat þjóðin ekki annað en vonað að verkið hefði ratað til Íslands. Landsbankinn reyndist vera kaupandinn og hefur þar með lagt sitt af mörkum til þess að varðveita þennan mikilvæga hluta menningararfs þjóðarinn- ar. Bankinn bauð Listasafni Reykjavíkur að taka verkið til sýningar almenningi í húsa- kynnum sínum og þótti að sjálfsögðu við hæfi að verkið yrði sýnt á Kjarvalsstöðum þar sem byggingin er tileinkuð sjálfum listamanninum. Á sýningunni má jafnframt sjá kolateikningar eftir Kjarval sem fundust á háalofti gamla Stýrimannaskólans í Reykjavík árið 1994 og verk eftir listamenn á borð við Finn Jónsson, Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason og Nínu Tryggvadóttur. Sýningarstjórinn Aðalsteinn Ingólfsson verður með leiðsögn um sýninguna kl. 16 á opnunardaginn. - vþ Falinn fjársjóður afhjúpaður > Ekki missa af … Myndlistarsýningunni „Maðurinn er alltaf egg“ sem stendur nú yfir í Galleríi Dvergi, Grundarstíg 21. Á sýningunni er blandað saman hljóð- og myndbandsverkum listamannanna Frímanns Kjerúlf, Gunnars Theodórs Eggertssonar, Helgu Bjargar Gylfadóttur og Rakelar Jónsdóttur. Sýningunni lýkur á morgun og því fer hver að verða síðastur að berja hana augum. Gallerí Dvergur er opið frá 17-20 í dag og á morgun. Rithöfundurinn Doris Lessing, sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár, getur ekki ferðast til Stokkhólms til að taka við verðlaununum vegna eymsla í baki. Læknar hafa ráðið Lessing að hafa hægt um sig og forðast ferðalög. Af þeirri ástæðu verða henni afhent verðlaunin við litla athöfn í heimaborg hennar, London. Nóbelsverðlaun fyrir greinarnar bókmenntir, efnafræði, eðlisfræði, læknisfræði og hagfræði eru afhent við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi hinn 10. desember ár hvert. Sama dag eru frið- arverðlaun Nóbels afhent í Ósló. Dagurinn markar dánarafmæli Alfreds Nobel, upphafsmanns verð- launanna, en hann lést 10. desember árið 1896. Hefð er fyrir því að vinningshafar haldi erindi í Stokkhólmi áður en þeir fá verðlaunin afhent. Stefnt er að því að taka erindi Lessing upp á myndband og sýna við athöfn í Stokkhólmi áður en sjálf verðlauna- hátíðin fer fram. Lessing er þriðji handhafi bók- menntaverðlaunanna á aðeins fjórum árum sem ekki getur verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna. Árið 2005 þurfti Harold Pinter að taka við verð- laununum í Bretlandi þar sem hann gat ekki ferðast af heilsufarsástæðum. Árið 2004 afþakkaði Austurríkismaðurinn Elfriede Jelinek boðið á hátíðina þar sem hún sagðist ekki vera í nægilega góðu andlegu jafnvægi til að þola svo mikla viðhöfn. Aðeins einn handhafi verðlaunanna hefur afþakkað þau með öllu, en það var franski heim- spekingurinn og rithöfundurinn Jean-Paul Sartre sem var útnefndur vinningshafi árið 1964. - vþ Lessing fer ekki til Svíþjóðar HVÍTASUNNUDAGUR Verkið kemur loks fyrir sjónir almennings á sunnudag. DORIS LESSING Doris er of bakveik til að ferðast. Aðventusýningin Leitin að jólunum Eftir Þorvald Þorsteinsson með tónlist eftir Árna Egilsson Leikstjóri Þórhallur Sigurðsson Barnasýning ársins 2006 Í dag 1/12 kl. 13.00 og 14.30 uppselt 2/12 kl. 11 uppselt 8/12 kl. 13.30 og 14.30 uppselt 9/12 kl. 11 uppselt 15/12 kl. 13.30 og 14.30 örfá sæti laus 16/12 kl. 13.30 og 14.30 uppselt 22/12 kl. 13.30 og 14.30 örfá sæti laus 23/12 kl. 13.30 og 14.30 Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.