Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 118
82 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Hinn tvítugi Sigurbergur Sveinsson hefur
leikið vel í vetur með toppliði Hauka í N1
deild karla í handbolta. Sigurbergur var fyrir
vikið valinn í landsliðshóp Alfreðs Gísla-
sonar sem lék nýverið tvo æfingaleiki gegn
Ungverjalandi.
„Það var frábært að fá tækifæri til þess
að spila með landsliðinu og finna svona
smjörþefinn af þessu öllu. Þessi reynsla var
klárlega eitthvað sem eflir mann til þess að
leggja enn harðar að sér við æfingar,“ sagði
Sigurbergur og kvaðst ánægður með sína
eigin spilamennsku og Haukaliðsins í heild í
N1 deildinni.
„Á persónulegum nótum er ég ágætlega
sáttur með spilamennsku mína á tímabilinu
en lykillinn að fínni byrjun bæði hjá mér og
Haukaliðinu er sterk liðsheild. Leikmennirnir
eru að vinna vel saman og það auðveldar
hlutina til muna,“ sagði Sigurbergur og hrós-
aði Aroni Kristjánssyni þjálfara liðsins.
„Aron kom strax með nýjar áherslur
inn í liðið þegar hann tók við því
síðasta vor og hefur náð að skapa
góða stemningu og liðsheild.
Þrátt fyrir að tímabilið í fyrra
hafi verið mikil vonbrigði þá
voru markmiðin skýr með
þetta tímabil og við stefnd-
um á að berjast við toppinn.“
Haukar eru stórlið í handboltan-
um og það er alltaf stefnt hátt
á þeim bænum og tímabilið
í ár er þar engin undan-
tekning. Sigurbergur þykir
einnig liðtækur kylfingur og
keppti ekki alls fyrir löngu
í keppni um högglengsta
kylfing landsins.
„Ásamt því að vera í handboltanum þá
var ég mikið í golfinu á mínum yngri
árum og var kominn í unglingalands-
liðið, en svo kom að því að velja
á milli og þá tók ég handbolt-
ann fram yfir. Ég keppi samt
annað slagið í golfi og um
daginn tók ég þátt í keppni
í högglengd á móti sem
kallast kylfingur landsins.
Ég náði að bomba kúlunni
ágætlega og lenti í þriðja
sæti, en þar sem pabbi
minn týndi skorkortinu
þá fékk ég víst ekki
verðlaunapening í þetta
skiptið,“ sagði Sigurberg-
ur á léttum nótum.
SIGURBERGUR SVEINSSON, HAUKUM: ÁKVAÐ Á SÍNUM TÍMA AÐ VELJA HANDBOLTANN FRAM YFIR GOLFIÐ
Skotfastur í handbolta og högglangur í golfinu
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta vann annan risa-
sigur í röð í undankeppni EM en
undanriðill Íslands fer fram í Lit-
háen. Stelpurnar fylgdu eftir 17
marka sigri á Ísrael með því að
vinna þrettán marka sigur á
Grikklandi, 40-27. Framundan er
því úrslitaleikur um þriðja sætið
og sæti í næstu umferð gegn
Bosníu í dag. Berglind Íris Hans-
dóttir átti frábæran leik í íslenska
markinu í leiknum á móti Grikkj-
um en hún varði 24 skot á 42 mín-
útum og skoraði að auki eitt
mark.
Íslenska liðið lenti undir í byrj-
un en tók síðan öll völd á vellin-
um. Íslensku stelpurnar voru 18-9
yfir í hálfleik og náðu mest fimmt-
án marka forystu í seinni hálf-
leik.
„Þetta er með betri leikjum sem
stelpurnar hafa spilað í vetur,“
sagði Júlíus Jónasson landsliðs-
þjálfari sem var mjög ánægður
með sínar stelpur eftir leikinn.
„Liðið spilaði vörnina mjög vel en
við spiluðum 5 + 1 vörn á einn
leikmanninn hjá Grikkjum og við
fengum mikið af hraðaupphlaup-
um,“ sagði Júlíus.
„Þetta gekk eiginlega eftir eins
og við lögðum þetta upp. Ég náði
að rúlla á öllu liðinu í seinni hálf-
leik sem ætti að reynast gott vega-
nesti fyrir næstu leiki,“ sagði Júlí-
us en Ísland mætir Bosníu í dag og
Hvíta-Rússlandi á sunnudaginn.
Júlíus var sérstaklega ánægður
með vörnina og markvörsluna en
markverðirnir vörðu samtals 32
bolta. Berglind tók 24 og Íris Björk
Símonardóttir varði 8 á þeim 18
mínútum sem hún spilaði.
Leikurinn í gær mátti alls ekki
tapast. „Við hefðum spilað okkur
út úr þessu móti ef við hefðum
ekki unnið þennan leik á móti
Grikkjum. Litháen og Hvíta-Rúss-
land eru með sterkustu liðin en
við erum að berjast um þriðja
sætið við Bosníu og því verður
þetta bara hreinn úrslitaleikur við
Bosníu á morgun [í dag]. Þetta er
bara úrslitaleikur um hvort við
náum að tryggja okkur áfram,“
segir Júlíus en leikurinn við Bosn-
íu hefst klukkan 13.00 að íslensk-
um tíma. - óój
Frábær frammistaða í gær
Íslenska kvennalandsliðið hefur unnið tvo síðustu leiki með 30 marka mun en
stelpurnar spila úrslitaleik um sæti í næstu umferð við Bosníu í dag.
MÖGNUÐ Í MARKINU Berglind Íris Hansdóttir varði frábærlega gegn Grikkjum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Finnski bakvörður-
inn Roni Leimu er kominn aftur
til landsins og hefur gert samn-
ing við Hamar í Iceland Express
deild karla.
Þetta er mikill liðsstyrkur
fyrir Hamarsliðið sem er sem
stendur í neðsta sæti deildarinn-
ar með aðeins einn sigur í átta
leikjum. Leimu mun spila sinn
fyrsta leik á sunnudagskvöldið
þegar Hamar tekur á móti
Íslandsmeisturum KR í Hvera-
gerði. Leimu er búinn að fá sig
lausan frá Finnlandi og er komin
með leikheimild.
Ágúst Björgvinsson er nýtek-
inn við Hamarsliðinu og hann
fagnar því að fá Finnann til
Hveragerðis.
„Ég er mjög ánægður með að
fá Roni í Hamar. Hann er leik-
maður sem ég þekki mjög vel og
fylgdist vel með honum þegar
hann spilaði með Haukum í
fyrra. Ég þekki hann bæði vel
sem leikmann og sem persónu,“
segir Ágúst Björgvinsson, þjálf-
ari Hamars sem fær Roni til
þess að fylla skarðið sem Raed
Mostafa skildi eftir sig. Mostafa
var með 12 stig og 4 fráköst að
meðaltali í leik en þegar Leimu
lék með Haukum í fyrra þá skor-
aði hann 19,6 stig og gaf 3,7 stoð-
sendingar að meðaltali í leik.
„Roni er leikmaður sem getur
skorað mikið og getur búið til
hluti fyrir sjálfan sig og aðra.
Hann gerir sitt lítið af öllu og er
búinn að sýna það á æfingum að
hann er mjög góður skotmaður.
Hann sýndi það líka með Hauk-
um að hann getur farið mjög
sterkt á körfuna, segir Ágúst um
nýja leikmanninn sem tók 129
víti með Haukum í fyrra en
aðeins tveir leikmenn í deildinni
tóku fleiri víti.
„Hann þrífst líka vel í hröðum
leik og ég er er hægt og bítandi
að reyna að auka hraðann á
okkur og Roni getur hjálpað
okkur í því,“ segir Ágúst.
Ágúst segir samband sitt við
Roni hafa mikið að segja um að
hann komi í Hamar.
„Ég er búinn að vera lengi í
sambandi við Roni. Hann var
látinn fara frá liðinu sínu í Finn-
landi eftir deilur við þjálfarann.
Samingurinn sem hann var með
þar var óuppsegjanlegur og því
gátum við fengið hann á góðu
verði þar sem að hann fær enn
borguð laun frá liðinu úti í Finn-
landi,“ segir Ágúst og peninga-
mál Finnans skiptu Hvergerð-
inga miklu máli.
„Það hentaði okkur mjög vel
því þetta er ekki ódýr leikmaður
sem við erum að fá á mjög
góðum kjörum,“ segir Ágúst en
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins þá voru fleiri íslensk lið
á eftir þessum snjalla Finna en
hann valdi það frekar að spila
fyrir Ágúst en að stökkva á betri
samning hjá öðrum félagi.
Hamarsliðið hefur tapað síð-
ustu fimm deildarleikjum sínum
og er sem stendur í neðsta sæti
Iceland Express-deildarinnar.
- óój
Botnlið Iceland Express-deildarinnar hefur fengið mikinn liðstyrk frá Finnlandi:
Roni vildi spila fyrir Ágúst
STERKUR LEIKMAÐUR Roni Leimu lék
vel með Haukum síðasta vetur. Hér er
hann í leik gegn ÍR-ingum í Seljaskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> Fleiri útlendingar á leiðinni
Liðin í Iceland Express deildinni í körfubolta hafa
verið dugleg að fá til sín og senda heima erlenda
leikmenn í vetur og það virðist ekki ætla að
verða lát á því. Hamarsmenn voru að styrkja
sig í gær, Stjarnan og ÍR eru nýbúin að
skipta um Kana í annað skiptið í vetur og
ÍR-ingar eru auk þess að leita sér að stór-
um bosman-manni alveg eins og Tinda-
stólsmenn. Nýjasta fréttin kemur síðan
úr Borgarnesi en samkvæmt heimildum
Fréttblaðsins þá eru Skallagrímsmenn
að leita að fjórða erlenda leikmannin-
um til að bregðast við þeim meiðslum
sem liðið glímir við. Einn þeirra sem er
meiddur hjá liðinu er Axel Kárason.
FÓTBOLTI Roy Hodgson hefur sagt
starfi sínu sem landsliðsþjálfari
Finna lausu í kjölfar þess að
Finnum mistókst að vinna sér
sæti í lokakeppni EM.
Undir stjórn Hodgson komu
Finnar geysilega á óvart og voru
hársbreidd frá því að komast inn
á EM. Þegar er byrjað að orða
Hodgson við landsliðsþjálfara-
stöðurnar hjá Englandi, Skotlandi
og Írlandi.
Hodgson á glæstan feril að baki
en hann kom Sviss á HM 1994 og
hefur þess utan þjálfað Inter,
Udinese og Blackburn. Hann
hefur verið óhræddur við að
prófa eitthvað framandi á sínum
ferli. - hbg
Breytingar hjá Finnum:
Hodgson hætt-
ur með Finna
ROY HODGSON Hvað gerir hann næst?
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Framarar skrifuðu í gær
undir tveggja ára samning við
skoska miðjumanninn Paul
McShane sem hefur leikið með
Grindvíkingum undanfarin ár við
góðan orðstír.
McShane var samningslaus og
kostar Fram því ekki krónu.
Grindvíkingar vildu ólmir halda
Skotanum en hann ákvað að söðla
um og semja við Fram.
Brotthvarf hans er mikið áfall
fyrir Grindavík enda McShane
verið einn af burðarásum liðsins.
Grindavík er þar með búið að
missa tvo lykilleikmenn á skömm-
um tíma en Óli Stefán Flóvents-
son samdi við Fjölni á dögunum.
Það er ljóst að Grindvíkingar
munu leita út fyrir landsteinana
að arftaka þessara manna en eins
og fram kom hér á dögunum
stefna Grindvíkingar á að bæta
við sig fjórum til fimm mönnum
fyrir næsta sumar. - hbg
Skotinn Paul McShane:
Frá Grindavík
til Fram
GÓÐUR Í SUMAR Paul McShane lék vel
með Grindavík í 1. deildinni í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Milljón lög
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Ótrúlegt úrval íslenskra og erlendra
laga sem þú getur halað niður í
símann þinn