Fréttablaðið - 01.12.2007, Side 126
90 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. rúma 6. hljóm 8. röð 9. draup 11.
tveir eins 12. mont 14. kenna 16. átt
17. landspilda 18. tæfa 20. skóli 21.
truflun.
LÓÐRÉTT
1. fita 3. bogi 4. blóm 5. kraftur 7.
naggrís 10. í hálsi 13. bæli 15. megin
16. arinn 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hýsa, 6. óm, 8. róf, 9. lak,
11. ll, 12. grobb, 14. skóla, 16. sv, 17.
lóð, 18. tík, 20. ma, 21. ónáð.
LÓÐRÉTT: 1. tólg, 3. ýr, 4. sólblóm,
5. afl, 7. marsvín, 10. kok, 13. ból, 15.
aðal, 16. stó, 19. ká.
„Pólverjar eru stærsti hópur inn-
flytjenda á Íslandi. Mér fannst bara
sjálfsagt að leggja mitt af mörkum
til að bjóða þá velkomna og leyfa
þeim að vera með,“ segir Jón Gúst-
afsson kvikmyndagerðarmaður en
hin margverðlaunaða heimildar-
mynd hans Reiði guðanna kom út á
DVD á fimmtudag.
Hægt er að velja um enskan,
íslenskan eða pólskan texta.
„Myndin sýnir ekki þessa
venjulegu póstkortaímynd
af Íslandi heldur sýnir hún
landið í verstu stormunum
sem hér verða. Þeir geta þá
farið með myndina til Pól-
lands um jólin eða gefið
ættingjum sínum til þess að
gera þeim grein fyrir því í hvers
konar vindrassgati þeir búa,“ segir
Jón og hlær en eins og margir vita
fjallar myndin um þær raunir sem
kvikmyndalið Bjólfskviðu rataði í
þegar tökur á myndinni fóru fram
hér á landi – ekki síst baráttu þeirra
við veðurguðina.
Jón segist ekki vita til þess að
íslenskar myndir hafi áður komið
út með pólskum texta. „Meðfram-
leiðandi myndarinnar, Karolina
Lewicka, er hálfpólsk og það
var því hægur leikur að fá
hana til að snara textanum yfir á
pólsku.“ Myndin var sýnd í Sjón-
varpinu fyrir skemmstu en Jón
telur það ekki koma að sök við sölu
myndarinnar. „Hér er stöðugur
straumur ferðamanna í gegn. Þeir
sem eru þegar búnir að kaupa
„bjútímyndböndin“ af Íslandi gætu
vel haft áhuga á því að kaupa svona
mynd. Svo er þetta tilvalin jólagjöf
handa erlendum vinum og Íslend-
ingum í útlöndum. Auk þess verður
myndin auglýst sem jólagjöf
drukkna hestamannsins,“ segir Jón
og hlær. - sók
Reiði guðanna með pólskum texta
REIÐI GUÐANNA Á DVD Jón Gústafsson
býður innflytjendur velkomna og setti
pólskan texta á Reiði guðanna.
„Ég er bara kominn aftur á klak-
ann,“ segir Kristján Jóhannsson,
óperusöngvari með meiru, en hann
hefur verið meira eða minna á
Ítalíu undanfarin ár þar sem hann
hefur verið að kenna og syngja.
Tenórinn skildi hins vegar kenn-
araprikið ekki eftir heima heldur
ætlar að kenna gömlum og nýjum
nemendum öll trixin í bókinni í
Bústaðakirkju næstu daga.
„Frændi minn, séra Pálmi Matthí-
asson, var svo góður að láta okkur
í té afdrep í safnaðarheimili
Bústaðakirkju og þar verð ég
næstu daga,“ segir Kristján en
nokkrir nemendur hans frá Ítalíu
eru fluttir heim og eru þegar farn-
ir að láta mikið að sér kveða í
óperuheiminum. Þeir eru meðal
annars áberandi í uppfærslum
Íslensku óperunnar.
Kristján hyggst vera með
kennslu fram til 16. desember en
síðan tekur við smá óvissa. Hann
er nefnilega ekki búinn að gera það
upp við sig hvort hann haldi til
Ítalíu og haldi jólin hátíðlega þar
eða fái fjölskylduna alla heim til
Íslands. „Ég held nú að síðari kost-
urinn verði ofan á og að við höldum
jólin hérna. Verðum þá í Reykjavík
yfir jólin en förum norður yfir ára-
mótin,“ segir Kristján en þetta yrði
þá í fyrsta skipti í fjögur eða fimm
ár sem Kristján og fjölskyldan
yrðu hér yfir hátíðirnar.
Kristján fylgist vel með nem-
endum sínum og fór á tónleika í
Langholtskirkju þar sem Beet-
hoven-messan í C-dúr var flutt og
þar sýndu nokkrir lærlingar hans
listir sínar. „Ég verð að viður-
kenna að það féllu nokkur tár
þegar ég heyrði þau syngja og
mér leið bara eins og pabba
þeirra,“ segir Kristján sem útilok-
ar ekki að hann muni sjálfur þenja
raddböndin þótt ekkert slíkt hafi
verið skipulagt. Aðspurður hvort
hann yrði ekki bara leynigestur
hjá annaðhvort Bubba eða Bó
sagði Kristján að maður ætti
aldrei að útiloka neitt. „Við skul-
um bara sjá hvursu vænt þeim
þykir um mig,“ sagði Kristján af
sinni alkunnu stríðni.
freyrgigja@frettabladid.is
KRISTJÁN JÓHANNSSON: KENNIR ÓPERUSÖNG Í BÚSTAÐAKIRKJU
Kristján langar að
eyða jólunum heima
Í GÓÐUM HÓPI Kristján ásamt nemendum sínum, þeim Valdimar Hilmarssyni (t.h),
Erlendi Elvarssyni og Jónu Fanneyju Svavarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sextíu ára aldursmunur er á söngvaranum Ragga
Bjarna og Árna Þór Lárussyni sem syngja dúett á
plötunni Gleðileg jól með Ragga Bjarna. „Okkur lang-
aði til að hafa strák sem væri á þessum aldri til að
sýna að það væri ekkert kynslóðarbil á plötunni,“
segir Raggi, sem segist ekkert hafa skipt sér af
honum við upptökurnar. „Aðalfídusinn var að vera
ekkert að skipta sér af. Það þurfti líka ekkert því það
kom í ljós að hann er alveg frábær og syngur eins og
engill.“
Raggi og Árni Þór árituðu plötuna í síðustu viku og
tóku lagið fyrir gesti og gangandi við góðar undirtekt-
ir. Á plötunni syngur Raggi einnig dúett með Diddú,
Huldu Björk Garðarsdóttur og dúettnum Þú og ég
sem er sem fyrr skipaður Helgu Möller og Jóhanni
Helgasyni. Gleðileg jól með Ragga Bjarna er fyrsta
jólaplata hans síðan platan Þegar líða fer að jólum
kom út árið 1981. Þar söng Helga einmitt með honum
titillagið sem hefur allar götur síðan yljað fólki um
hjartarætur í jólaösinni.
Á nýju plötunni, sem er sú fjórða frá Ragga á þrem-
ur árum, eru þrettán glæný jólalög, ellefu eftir Gunn-
ar Þórðarson og tvö eftir Ragga sjálfan. Textarnir eru
eftir kunna kappa á borð við Kristján Hreinsson,
Hjálmar Jónsson, Ómar Ragnarsson og Þorstein Egg-
ertsson. „Við ákváðum að taka sénsinn og gera plötu
með alveg nýrri íslenskri músík,“ segir Raggi, alveg í
skýjunum yfir árangrinum. - fb
Sextíu ár milli Ragga Bjarna og Árna
ÓVENJULEGUR DÚETT Sextíu ára aldursmunur er á Ragga Bjarna
og Árna Þór Lárussyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
STURLA GUNNARSSON
Leikstjóri Bjólfskviðu rataði
í ýmsar ógöngur við gerð
myndarinnar og um það
fjallar Reiði guðanna.
Eins og kemur fram hér framar í
blaðinu er Jóhanna Vala Jónsdóttir,
fegurðardrottning Íslands, nú í
Kína þar sem hún reynir að koma
með kórónuna aftur heim eftir
tveggja ára fjarveru. Heimasíða
keppninnar, missworld.com, er
nokkuð fróðleg en þar má nálgast
upplýsingar um hvað hinar
og þessar fegurðar-
drottningar aðhafast
núna. Merkilegt nokk
ratast vefnum nokkuð
satt á munn hvað
íslensku stúlkurnar
varðar en þannig
er Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir
sögð vera stjarna á
Íslandi og að hún
hljóti svipaða athygli og rokk- og
íþróttastjörnur.
Og aðeins meira af fegurðardrottn-
ingum og íþróttastjörnum því eins
og komið hefur fram í fjölmiðlum
gekk landsliðsmaðurinn Grétar
Rafn Steinsson á dögunum að
eiga unnustu sína, Manúelu Ósk
Harðardóttur, eftir þriggja
mánaða samband. Brúð-
kaupið hefur fengið mikla
athygli í Hollandi þar sem
Grétar leikur með AZ
Alkmar og hefur einn
gesturinn meðal
annars sett inn
hugljúfa og hjart-
næma mynda-
syrpu úr brúð-
kaupinu. Ef marka má myndirnar
verður ekki annað séð en að ástin
blómstri milli hinna nýgiftu.
Og strákasveitin Luxor virðist eiga
sér dyggan aðdáendahóp sem
lætur sér fátt um finnast þótt fyrsta
platan hafi fengið fremur slæma
dóma. Því nú er nefnilega komið í
ljós að fyrsta upplagið af plötunni
er uppselt hjá útgefanda. Einar
Bárðarson hefur verið
ansi brattur með
kynningarherferð
sína á strákunum og
virðist enn og aftur
hafa gert sér
grein fyrir því
hvað þjóð-
ina vantaði í
geislaspilar-
ann sinn. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sigurður Ingi-
mundarson
Aldur: 41 árs
Fjölskylda:
Giftur Halldísi
Jónsdóttur. Á
þrjú börn, tvo
stráka og eina
stúlku.
Foreldrar:
Steinunn
Snjólfsdóttir,
húsmóðir, og Ingimundur Jónsson.
Búseta: Í Reykjanesbæ.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Sigurður er þjálfari Keflavíkur og
íslenska landsliðsins. Hann var í
gær valinn besti þjálfari umferða
1-8 í Iceland Express-deild karla í
körfubolta.
Fæst í Bónus
Kisu nammi
(harðfisktöflur)
Kisu bitafiskur
Íslensk framleiðsla
úr úrvals hráefni.
Góður kisi
á gott skilið
Auglýsingasími
– Mest lesið