Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 10
 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR Jólaóskir EF ÞÚ GETUR BORIÐ HANN PAKKINN 600 KR. VEÐUR Víða varð tjón í óveðrinu sem gekk yfir landið vestanvert í aðfaranótt fimmtudags. Á höfuðborgarsvæðinu fuku þakplötur, ruslatunnur og annað lauslegt og tilkynnt var um tjón á fjölmörgum bifreiðum. Á Reykjavíkurflugvelli aðstoðuðu björgunarsveitarmenn við að binda niður flugvélar og víða þurfti að aðstoða borgara við að setja krossviðarplötur fyrir brotna glugga. Alls óskuðu á annað hundrað borgarar eftir aðstoð á höfuðborgarsvæðinu vegna veðursins. Björgunarsveitir á Suðurnesjum höfðu einnig í nógu að snúast og kerra fauk á farþegaþotu á Keflavíkurflugvelli. Þá fauk uppsláttur að einbýl- ishúsi við Þjórsárver í Flóa og þakplötur losnuðu af húsi Barnaskólans á Eyrarbakka. Á Akranesi fauk söluskúr ÍA á Jaðarsbökkum og skömmu síðar tókst 300 fermetra skemma sem geymd var á vinnusvæði við Vesturgötu á loft. Talsvert tjón varð einnig í Borgarnesi, til dæmis fauk sendiferðabíll á hliðina á Egilsgötu og rúður brotnuðu í Sparisjóði Mýrasýslu. Síðla nætur tók að hvessa á Vestfjörðum og þar voru nær allar björgunarsveitir ræstar. Á hafnar- svæðinu á Ísafirði losnuðu tengivagnar aftar úr tveimur flutningabílum. Annar þeirra fauk um 600 metra leið og sópaði niður ljósastaur í látunum. Þá voru björgunarsveitir sendar upp á Steingríms- fjarðarheiði til að aðstoða fólk sem hafði fest bifreið sína í ófærð. Þrátt fyrir veðurhaminn virðast ekki hafa orðið slys á fólki. Jón Trausti Guðjónsson, starfsmaður í tjónadeild Vátryggingafélagsins, segir að margir hafi haft samband vegna tjóna af völdum veðurs. Hann segir ekki algengt að húseigendur séu dregnir til ábyrgðar verði tjón af völdum þakplatna eða annars sem fjúki af húsum þeirra. „Þegar vind- hraði er kominn upp fyrir viðmiðunarmörk, sem eru rúmir 28 metrar á sekúndu, er fólk ekki bótaskylt nema skaðann sé hægt að rekja til vanrækslu,“ segir Jón. thorgunnur@frettabladid.is Víða mikið tjón en engin slys á fólki Björgunarsvetir á Suðvesturlandi og Vesturlandi sinntu meira en 300 hjálpar- beiðnum vegna óveðurs í fyrrinótt. Bensíndælur fuku um koll, tré rifnuðu upp með rótum og vinnuskúrar tókust á loft. Búist er við stormi aftur í dag. Vindhraði fór víða upp fyrir fjörutíu metra á sekúndu í óveðrinu í fyrrinótt. Mestur var vindhraðinn á Skálafelli við Esju en þar náði mesta vindhviðan 64 metra hraða á sekúndu. Næstmesta hviðan, 60,2 metrar á sekúndu, mældis á sjálfvirkri veðurathugunarstöð undir Hafnar- fjalli í Borgarfirði. GRÍÐARHVASST Í MESTU HVIÐUNUM SKEMMA TÓK FLUGIÐ Á Akranesi tókst 300 fermetra stál- grindarskemma á loft og fauk tuttugu metra uns hún lenti á hvolfi. Á leið sinni skemmdi hún horn á annarri skemmu og eyðilagði nýjan salernisgám sem sést fremst á myndinni. Eins og sjá má er skemman sjálf einnig gjörónýt. MYND/SKESSUHORN HVASST Á ÁRTÚNSHÖFÐA Þrjár bensíndælur á bensínstöð Atlantsolíu á Ártúnshöfða gáfust upp fyrir vindinum og lögðust á hliðina. Þær voru komnar í gagnið á ný strax og birti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÓVEÐUR „Hún siglir ekki aftur þessi, það er alveg ljóst,“ segir Stígur Berg Sophusson, einn þriggja eig- enda lystiskútunnar Lipurtáar sem gjöreyðilagðist í óveðrinu á Ísafirði aðfaranótt fimmtudags. Skútan hafði nýlega verið tekin á land og var bundin á kerru við Sundahöfn. Þegar hafnarstarfs- menn komu til vinnu í gærmorgun var kerran á sínum stað en skútan var horfin og hafði skilið kjölinn eftir í kerrunni. Skútan sjálf fannst ekki fyrr en birti og reyndist þá sokkin. „Mér sýnist á öllu að hún hafi fokið upp og runnið um 300 metra á stjórnborðssíðunni eftir fjörunni uns hún hafnaði í sjónum. Þar flaut hún um kílómetra leið áður en hún sökk,“ segir Stígur. Skútan, sem er 26 feta, var nýuppgerð og öll tæki um borð voru af nýjustu gerð. Stígur segir að tjónið nemi að minnsta kosti tveim- ur milljónum en sem betur fer var hafi skútan verið vel tryggð. „Til- finningatjónið verður hins vegar ekki bætt. Það var ansi sárt að sjá björgunarsveitarmennina draga flakið á land,“ segir Stígur, sem keypti sinn hlut í skútunni í september. - þo Skútan Lipurtá er gjörónýt eftir óveðrið sem gekk yfir landið í fyrrinótt: Kjölurinn rifnaði af í látunum ÓVEÐUR „Það liggur við að maður gefi bílinn bara í jólagjöf, það er búið að pakka honum svo fínt inn,“ segir Jakob Rúnar Jónsson, for- stjóri byggingafélagsins Jónsson og Briem ehf., en þakklæðning af Austurbæjarskóla vafðist utan um bíl fyrirtækisins í óveðrinu í fyrri- nótt. „Þau fjúka ekki svona þökin sem við byggjum,“ segir Jakob glettinn og bætir því við að bíllinn hafi verið eins og risavaxinn kop- arskúlptúr þegar að var komið. Stórtækar vinnuvélar voru fengnar til að ná brakinu af bílnum, sem Jakob segir að sé ónýtur. Guðmundur Sighvatsson, skóla- stjóri Austurbæjarskóla, var ræstur eldsnemma í gærmorgun en þá var klæðningin farin að flettast af þaki skólans. Fjórir þakgluggar eyðilögðust og um 300 fermetrar af þakklæðningunni eru á bak og burt. Guðmundur segir að tjón innandyra sé lítið og skólahald hafi hafist á tilsettum tíma í gær. - þo Þakklæðning á Austurbæjarskóla fauk í óveðri og skemmdi fjölda bíla: Bíllinn eins og koparskúlptúr MIKLAR SKEMMDIR Margir bílar skemmdust þegar þakklæðning fauk af Austurbæjar- skóla, þó enginn eins illa og bíll fyrirtækisins Jónsson og Briem ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.