Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 48
BLS. 6 | sirkus | 14. DESEMBER 2007
K ærustuparið Anna Clausen og Bjarni Einarsson reka saman verslunina Belleville á
Laugaveginum. Verslunin Belleville sérhæfir
sig í hönnunarvörum fyrir karlmenn, með
áherslu á fatnað og skó auk þess sem
þau selja bækur, tímarit og
japanska popplist. Anna og
Bjarni vekja eftirtekt hvar
sem þau koma fyrir
skemmtilegan og
frumlegan klæðaburð.
„Ég er undir margvís-
legum áhrifum þessa
stundina. Ég er
heilluð af
nýaldarpönki og
jaðarmenningu
sem ég túlka á
minn hátt í
fatavali en
Bjarni er afar
vestrænn í
klæðaburði,“ upplýsir
Anna um fatastíl
þeirra sem getur oft
og tíðum verið afar
framúrstefnuleg-
ur. Bjarni bætir
því þó við að
stíll hans sé
einhvers
konar arfleifð
stúdentauppreisnar-
innar. Anna er frá
Kaupmannahöfn og
starfar sem stílisti og listrænn stjórnandi á alþjóð-
legum vettvangi auk þess sem hún kennir
fatahönnun við Listaháskóla Íslands en Bjarni er
kvikmyndagerðarmaður og ljósmyndari. Það er
því fleira en ástin sem bindur parið órjúfanlegum
böndum. „Við kynntumst í kringum
áramótin 2001-2002. Anna kom þá til
Íslands í fyrsta skipti og við höfum
verið saman síðan,“ segir
Bjarni um kynni sín og
Önnu en hún fluttist
til Íslands árið
2004. Parið er
afar samhent
og vinna
mikið
saman. „Við bíðum full eftirvæntingar
eftir útkomu tímaritsins Lodown frá Berlín,
en blaðið kemur út í næstu viku. Í blaðinu birtist
myndaþáttur sem við Anna og Ásdís Sif Gunnars-
dóttir myndlistarmaður unnum í sameiningu og
við munum halda gott partí í verslun okkar af því
tilefni,“ segir Bjarni en Ásdís Sif sýnir list sína í
versluninni um þessar mundir. Bjarni og Anna
eru mikið smekkfólk og eiga mikið af fallegum
fötum í fataskápnum. Sirkus lék forvitni á að vita
hver væru bestu kaup parsins. Anna er ekki lengi
að hugsa sig um og segir að íbúðin þeirra sé besta
fjárfestingin. „Bestu kaupin mín er atvinnu-
mannahjólabretti sem ég sannfærði móður mína
um að kaupa handa mér árið 1988,“ segir Bjarni,
en hann er skeitari fram í fingurgóma. Bjarni
hefur þó gert nokkur innkaupaslysin í gegnum
tíðina. „Á tímabili keypti ég mikið af „second
hand“ skóm, það var á þeim tíma þegar maður
gat fundið sjaldgæfa notaða skó á hverju strái. Ég
hef samt aldrei fengið mig til að nota þetta
skósafn mitt enda eru fótasveppir og annarra
manna táfýla ekki málið,“ segir Bjarni að lokum
en Anna fullyrðir að hún geri aldrei slæm kaup
enda er hún annáluð fyrir smekkvísi sína.
Bergthora@frettabladid.is
BJARNI EINARS OG ANNA CLAUSEN. Teknó-jólaglugginn í baksýn er samstarfsverkefni Belleville og Ásdísar
Sifjar Gunnarsdóttur myndlistarmanns.
Þau leiðinlegu mistök urðu í síðasta
blaði Sirkuss að óleiðrétt viðtal við
Eddu Björgu Eyjólfsdóttur leikkonu
birtist í blaðinu. Þessa dagana sýnir
Edda Björg verkið Konan áður en ekki
Konan ein í hópi valinkunnra leikara,
auk þess sem hún er á fullu við
æfingar á verkinu Vígaguðinn en ekki
Vígakonur eins og fram kom í Sirkus,
en Vígaguðinn verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu í janúar. Edda Björg velti
fyrir sér þeim möguleika að söðla
algerlega um á síðasta leikári og hefja
nám í arkitektúr en ekki á síðasta árinu
í Leiklistarskólanum eins og misritaðist
í viðtalinu. Verkið eftir Eggert
Pétursson myndlistarmann er mynd af
brönugrasi en ekki lúpínu eins og fram
kom. Við biðjum Eddu Björgu
velvirðingar á þessum leiðinlegu
mistökum.
Leiðrétting á viðtali við Eddu
Björgu Eyjólfsdóttur
EDDA BJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR
ANNA CLAUSEN OG BJARNI EINARSSON Í
BELLEVILLE
BJARNI EINARS OG ANNA CLAUSEN. Silfurmen Önnu
frá Atelier 11.
Bjarni
■ Uppáhalds-
búðin:
Belleville
■ Nauðsyn-
legt í
fataskápinn:
Eitthvað eftir
fatahönnuðinn
Raf Simons.
■ Eftirlætis
flíkin í
fataskápnum:
Núna er það
allt sem er
prjónað í þungavigtarprjón, Maharishi
peysujakkinn minn er því í miklu uppáhaldi.
■ Veikastur fyrir: Ég er alltaf veikur.
■ Uppáhalds hönnuðurnir: Bernhard
Willhelm, Patrik Söderstam, Supreme, Raf
Simons og Maharishi.
Anna
■ Uppáhalds-
búðin:
Belleville að
sjálfsögðu.
■ Nauðsyn-
legt í
fataskápinn:
Eitthvað
svart.
■ Eftirlætis
flíkin í
fataskápnum:
Pelican
Avenue
kjóllinn minn.
■ Veikust fyrir: „Sexy stuffi.“
■ Uppáhalds hönnuðurnir: Raf Simons,
Nicholas Ghesquiere at Balenciaga, Martin
Margiela. Hlín Reykdal og Katrín Pétursdóttir.
GERA HELST EKKI
SLÆM KAUP
BJARNI
EINARS
OG ANNA
CLASSEN.
Maharishi
peysujakki Bjarna.
Jólagjöfi n hans
fæst í
Gallerí Kefl avík
Opið til 22 öll
kvöld fram að jólum.