Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 92
56 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Nú er tími áramóta-
uppgjöranna og allir
tónlistarmiðlar að
fyllast af úttektum
og listum yfir það
sem stóð upp úr á
árinu 2007. Listi yfir
bestu plötur ársins,
valinn af nokkuð
fjölmennum hópi
tónlistarspekúlanta
verður birtur hér í
Fréttablaðinu fyrir
árslok. Það er hins
vegar líka gaman að
velta fyrir sér hvaða
lög stóðu upp úr á
árinu.
Nokkur innlend
lög koma strax upp í
hugann. Bæði Verum
í sambandi og
Glúmur með
Sprengjuhöllinni
settu sterkan svip á
árið og það gerðu
líka Waiting To
Happen og Hold Me
Closer með Motion
Boys, Story of a Star
með Ultra Mega Technobandinu Stefán og Goodbye July / Margt að
ugga með Hjaltalín. Eins mætti nefna Skítapakk með Dr. Spock, Við og
við með Ólöfu Arnalds, Moving Like A Tiger með Bloodgroup, Cynthia
með FM Belfast og Verðbólgin augu með Nýdönsk sem er eðal popps-
mellur... Tja. Þetta eru a.m.k. lögin sem koma fyrst upp í hugann.
Í erlendu deildinni koma mér strax í hug lög eins og North American
Scum með LCD Soundsystem, Atlas með Battles og You Know I‘m No
Good með Amy Winehouse. Byrjunin á því lagi er algjör killer.
Bresku blöðin hafa flest þegar birt sína árslista. NME valdi Golden
Skans með Klaxons (og reyndar plötuna þeirra Myths of the Near
Future bestu plötu ársins líka). Mojo og Uncut eru bæði með lög með
LCD Soundsystem, Mojo velur All My Friends, en Uncut North
American Scum. Q velur hins vegar sumarsmellinn Umbrella með
Rhiönnu, en það lag er víða hátt á listum.
Maður ársins í smáskífudeildinni er samt án efa Mika. Erlendu
miðlarnir keppast við að finna upp nýjar kategóríur til að níða hann
niður. Hann er „Þöngulhaus ársins“ í Clash Magazine og á öll fjögur
lögin á „Fjögur verstu smáskífulög ársins“ listanum í Uncut... Hvað
vinsældir og spilun varðar er hann samt án efa sigurvegarinn. Grace
Kelly mun lifa!
Hver eru lög ársins 2007?
MIKA Hetja eða þöngulhaus?
Einn sérstæðasti tónlistar-
maður samtímans, Burial,
er nýbúinn að senda frá sér
nýja breiðskífu. Steinþór
Helgi Arnsteinsson rýndi
í leyndardóminn á bak við
þennan mikla huldumann.
Drum‘n bass-stefnan hefur svo
sannarlega aldrei lagst í dvala
síðan hún kom fyrst fram á sjón-
arsviðið, eins og ég hef reyndar
áður skrifað um hér á tónlistar-
síðum Fréttablaðsins. Ég viður-
kenni samt alveg að stefnan er
ekki nærri eins spennandi og hún
var í árdögum sínum. Undirstefna
drum ‘n bass, hin svokallað
dub step-stefna, hefur hins vegar
rækilega beint kastljósinu í átt að
þessum geira.
Þá staðreynd má þakka að
mörgu leyti tónlistarmanninum
Burial. Frumburður hans leit
dagsins ljós í fyrra og valdi Wire,
framsæknasta tónlistarblað Bret-
lands, plötuna þá bestu á árinu
2006 (náði einnig inn á topplista
Almost Cool, Mixmag og Dusted).
Hver er eiginlega Burial?
Frumburðurinn, samnefnd lista-
manninum, fór eins og eldur um
sinu milli tónlistarnörda. Hið und-
arlega andrúmsloft plötunnar og
heillandi hljóðheimur virtist gefa
tónlistarpressunni einn „god
morgen“ og hún átti vart til orð.
Nánast ógerningur er líka að lýsa
tónlist Burial og þyrfti ég líklega
að nota tvöfalt það pláss sem vana-
lega færi í grein sem þessa ein-
vörðungu í slíka lýsingu. Ég ætla
hins vegar að hlífa ykkur og hvet
ykkur í staðinn til að hlusta á
kappann knáa.
Reyndar er ekkert endilega
vitað að Burial sé kappi knár. „Einu
sagði sagði einhver við mig: „Já,
Burial er stelpa.“ „Ég veit um einn
sem hefur hitt hana“, útskýrði
Burial í nýlegu viðtali við The
Guardian. Þessi óvissa um auð-
kenni Burial er líka annar þáttur
sem gefur tónlist hans svo mikla
sérstöðu enda fullyrti Burial í
þessu sama viðtali að eingöngu
fimm manns utan fjölskyldu hans
vissu hver hann væri í raun og
veru.
Heyrnartólatónlist
Burial spilar heldur aldrei á tón-
leikum, og gefur afar sjaldan við-
töl, líklegast ná þau vart yfir tug-
inn. Reyndar geta tónar Burial
vart talist þess eðlis að þeir séu
spilaðir á þessum týpísku drum ‘n
bass klúbbakvöldum. Þeir virðast
töluvert betur til þess fallnir að
óma í góðum heyrnartólum en ógn-
arstórum hátalarastæðum. „Þetta
snýst meira um það þegar þú ert
að snúa heim eftir að hafa verið úti
einhvers staðar; í leigubíl eða næt-
urstrætó, eða með einhverjum, eða
labbandi um London á leiðinni
heim, dreymandi, og þú ert ein-
hvern veginn einn með tónlistina
enn bergmálandi innra með þér, í
æðunum, og hið daglega amstur
reynir að koma í veg fyrir það.“
Besta plata ársins?
Fyrsta platan tók um sex ár í fram-
leiðslu og þess vegna kemur nokk-
uð á óvart að plata númer tvö skuli
fylgja svo fast á eftir. Sjálfur lýsir
Burial plötunni eins og óæskileg-
um getnaði. „Stefin urðu til nokkuð
hratt um miðja nótt og þurftu að
berjast fyrir lífi sínu.“
Viðbrögðin hafa heldur ekki
látið á sér standa og gagnrýnendur
virðast gapandi yfir gæðum nýju
plötunnar, Untrue. Sem dæmi má
nefna að á Metacritic.com, sem
safnar saman og býr til meðaltal
helstu dóma, er Untrue í efsta sæti
yfir plötur ársins 2007 með 91 af
100 í meðaltal. Gerið því fastlega
ráð fyrir að sjá Untrue með Burial
á topplistum hér og þar þegar árið
2007 verður gert upp.
Huldumaðurinn aftur á kreik
BURIAL Örfáir vita hver tónlistarmaðurinn Burial í raun og veru er. Myndin hér að
ofan er ein af örfáum myndum sem til eru af honum og ekki verður sagt að hún gefi
mikið upp um auðkenni tónlistarmannsins. MYND: DRUMZ OF THE SOUTH/GEORGINA COOK
„Við erum búnir að vera nett í þunglyndi og með
magakveisur yfir þessu,“ segir Birgir Nielsen,
trommari Lands og sona, sem
hefur beðið í tvær vikur
eftir því að nýr mynd-
diskur hljómsveitarinn-
ar komi til landsins.
Diskurinn, sem
nefnist Lífið er
yndislegt, hefur að
geyma upptökur
frá tíu ára afmælis-
tónleikum sveitar-
innar í Íslensku
óperunni í haust
og var þar vandað
mikið til verka.
„Tónleikarnir
voru áttunda nóvember. Þeir tókust rosalega vel
og eftirvinnslan líka en svo byrjaði ballið úti í
Austurríki hjá Sony,“ segir Birgir. „Það er voða-
lega leiðinlegt að þurfa að draga einhvern einn út
en það verður að segjast eins og er að tempóið sem
fólk er að vinna á í öðrum löndum en hérna heima
er bara allt annað. Þetta er skelfilegt mál því við
vorum búnir að bóka okkur í áritanir og annað.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íslenskir diskar
tefjast í framleiðslu erlendis, því Páll Óskar, Raggi
Bjarna, Sigga Beinteins og Einar Ágúst lentu öll í
því sama fyrir jólin.
Að sögn Birgis hefur mikið verið beðið um
diskinn, enda á Land og synir stóran aðdáendahóp
hérlendis. Um „dual“-disk er að ræða, eða geisla-
disk öðrum megin og mynddisk hinum megin.
„DVD-diskurinn er svo hlaðinn að það hefði ekki
verið hægt að koma einni kynningu frá Hemma
Gunn í viðbót. Hann er í gríðarlega miklum
gæðum enda var ekki neitt til sparað og sándið á
honum gefur mörgum erlendum DVD-diskum lítið
eftir.“
Um leið og diskurinn kemur út, sem verður
líklega í dag, ætla Land og synir að fylgja honum
vel á eftir, bæði með áritunum og með tónleika-
haldi víðs vegar um landið eftir áramót. - fb
Afmælisdiskur veldur ólgu
BIÐSTAÐA Hljómsveitin
Land og synir hefur
beðið í tvær vikur eftir
nýjum mynddiski
sínum. Birgir Nielsen
hefur þjáðst af
magakveisu vegna
tafanna.
> Í SPILARANUM
Rivers Cuomo - Alone: the Home Recordings of
Rivers Cuomo
Iron & Wine - The Shepherd’s Dog
Björgvin Halldórsson & gestir - Jólagestir Björgvins 4
South River Band - Allar stúlkurnar
Led Zeppelin - Mothership
RIVERS CUOMO LED ZEPPELIN
> Plata vikunnar
Akron/Family - Love is Simple
★★★★
„Kæruleysisleg glaðværð skín
af plötunni þar sem meðlimir
Akron/Family leika lausum
hala á leikvelli ástarinnar.“
SHA
„Ég vil taka það fram að
Hermigervill er alls ekki
hættur. Hann er að undirbúa
nýja plötu og er bíða eftir
„inspiration“ fyrir hana,“
segir danstónlistarmaðurinn
Sveinbjörn Thorarensen, sem
hefur gefið út tvær plötur
undir nafninu Hermigervill.
Sveinbjörn kom fram undir
nýju nafni, SvenBit, á tónleik-
um í Liverpool fyrir skömmu
og vakti þar athygli fyrir
hæfileika sína. „Ég er ekki
búinn að kynnast honum nógu
vel en hann er miklu meiri elektrógaur en
Hermigervill,“ segir hann um SvenBit.
Sveinbjörn stundar nám í hljóðupptöku-
list í Hollandi og líkar lífið vel. Hann er
þó ekkert alltof hrifinn af hollenskri dans-
tónlist. „Tónlistarsenan hérna
er hálfglötuð. Það er eiginlega
miklu meira skemmtilegt að
gerast á Íslandi í þessum
raftónlistarbransa. Hérna
hlusta allir á eitthvað leiðinda
trans.“
Undanfarið hefur hann verið
upptekinn við að koma upp
hljóðveri heima hjá sér auk
þess sem ný kassetta frá Sven
Bit er væntanleg. „Það hlustar
enginn á geisladiska lengur.
Það breytir engu hvort maður
gefur út geisladiska eða
kassettur, fólk „dánlódar“ öllu hvort sem
er,“ segir Sveinbjörn, sem tekur fram að
með kassettunni fylgi slóð þar sem hægt
er að hlaða niður tónlistinni.
- fb
Hermigervill ekki hættur
SVEINBJÖRN THORARENSEN
Sven Bit spilaði í Liverpool á
dögunum. MYND/JOSEPH HUGHES