Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 106
70 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
SENDU SMS JA ACF
Á NÚMERIÐ 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru bíómiðar fyrir tvo, DVD
myndir, varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
JÓLAMYNDIN Í ÁR!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
F R U M S Ý N D 1 4 . D E S E M B E R
FÓTBOLTI Nýjasta útspil Rafaels
Benítez, stjóra Liverpool, í
sálfræðistríðinu fyrir stórleikinn
við Manchester United um
helgina er að segja að félagið hafi
eytt nægilega miklum peningum í
leikmenn til þess að það sé hægt
að ætlast til þess að Liverpool
vinni titilinn á þessu tímabili.
„Manchester United er búið að
eyða 70 milljónum punda á meðan
við erum búnir að eyða rúmlega
40 og höfum fengið 26 milljónir
til baka. Það eru allir að tala um
að við eigum að vinna titilinn af
því að við séum búnir að eyða svo
miklum pening en United,
Chelsea, Newcastle United og
Aston Villa hafa öll eytt miklum
peningi líka,“ segir Spánverjinn
og bætti við.
„Það hafa öll lið eytt fullt af
pening en Chelsea og United eru
bæði með gríðarlega sterkan
kjarna sem þau hafa búið til
undanfarin ár,“ sagði Benítez við
spænska blaðið AS. - óój
Benítez, stjóri Liverpool:
Ekki búnir að
eyða eins og
stóru liðin
TJÁIR SIG UM PENINGAMÁLIN Rafael
Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Leikur Keflavíkur og
Skallagríms í Iceland Express-
deild karla varð aldrei spennandi.
Yfirburðir heimamanna voru ein-
faldlega of miklir og í raun var
þetta átakalaus leikur af þeirra
hálfu. Lokatölur urðu 92-80 en
sigurinn var síst of stór.
Leikur Keflavíkur og Skalla-
gríms byrjaði ansi rólega og liðin
voru ekkert að stressa sig. Borg-
nesingar byrjuðu aðeins betur og
leiddu eftir fyrsta leikhluta með
fjórum stigum, 20-24. Í öðrum
leikhluta brugðu heimamenn á það
ráð að spila spressuvörn og þvílík
varnarsýning fór í gang. Meira að
segja Óskar Ófeigur hefði verið
sveittur að skrá alla töpuðu bolt-
ana hjá Sköllunum, en því miður
fyrir Keflavík þá var sóknarleikur
liðsins ansi dapur. Reyndar voru
Skallagrímsmenn að leika ágætis
vörn en sókn liðsins var skelfileg
og eins voru þeir að velja vonlaus
skot í sókninni. Staðan í hálfleik
var 48-39 fyrir Keflavík.
Keflvíkingar byrjuðu seinni
hálfleikinn ágætlega og voru
komnir með þægilegt forskot
þegar þriðji leikhluti var
hálfnaður. Það hægðist vel á leikn-
um þegar staðan var 60-45 og
þegar leikhlutinn var allur hafði
Keflavík 10 stiga forskot. Fjórði
leikhlutinn fer ekki í sögubækurnar
fyrir gæði og í raun var hann
svitalaus fyrir heimamenn á
meðan gestirnir gáfust heldur
fljótt upp. Því fór það þannig að
Keflvíkingar sigldu öruggum
tveim stigum í hús og urðu loka-
tölur 92-80.
Hafþór Ægir Gunnarsson átti
enga skýringu á slökum leik Skall-
anna. „Í raun var þetta mjög dap-
urt hjá okkur. Við vorum ekki að
spila neina vörn að ráði og þeir
gátu skotið að vild. En það er bara
næsti leikur gegn KR sem er næst
á dagskrá og hann ætlum við að
vinna,“ sagði Hafþór.
Sigurður Ingimundarson var
heldur hressari og hann var á því
að þetta hefði verið frekar rólegur
dagur. „Þetta var svona í rólegri
kantinum. Borganes var í raun að
spila ágætlega en við vorum frek-
ar daprir. Þeir urðu fljótt þreyttir
enda spila þeir á fáum mönnum,“
sagði Sigurður en hans menn hafa
unnið alla tíu leiki sína. - höþ
Topplið Keflavíkur lenti ekki í neinum vandræðum með Skallagrím í Iceland Express-deildinni:
Rólegur dagur hjá Keflavík í Sláturhúsinu
STERKUR Tommy Johnson átti fínan leik fyrir Keflavík í gær og skoraði 19 stig í fyrir-
hafnarlitlum sigri Keflvíkinga. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Iceland Express-deild karla:
ÍR-Snæfell 02-77
Stig ÍR: Sveinbjörn Claessen 21 (24 mín.),
Hreggviður Magnússon 19, Ómar Sævarsson 16
(9 frák.), Ólafur Jónas Sigurðsson 12 (4 stoðs.),
Eiríkur Önundarson 10, Steinar Arason 9, Nate
Brown 8 (10 stoðs., 7 frák.), Ólafur Þórisson 3,
Þorsteinn Húnfjörð 2.
Stig Snæfells: Justin Shouse 20 (10 stoðs.),
Anders Katholm 11 (18 mín.), Hlynur Bæringsson
10 (7 frák., 4 stoðs., 22 mín.), Atli Rafn Hreinsson
9, Sigurður Þorvaldsson 8, Magni Hafsteinsson 8
(16 mín.), Slobodan Subasic 4, Sveinn Davíðsson
3, Gunnlaugur Smárason 2, Guðni Valentínus-
arson 2.
Keflavík-Skallagrímur 92-80
Stig Keflavíkur: BA Walker 22, Tommy Johnson
19, Magnús Þór Gunnarsson 19, Gunnar Einars-
son 12, Arnar Freyr Jónsson 8, Sigurður Þorsteins-
son 5, Antony Susniaria 4, Jón Hafsteinsson 2,
Þröstur Jóhannsson 1
Stig Skallagríms: Milojica Zekovic 22, Darrell
Flake 18, Allan Fall, 13, Hafþór Ingi Gunnarsson
13, Pétur Sigurðsson 8, Óðinn Guðmundsson 3,
Áskell Jónsson 3
KR-Tindastóll 97-91
Stig KR: Avi Fogel 22, Jovan Zdravevski 21,
Joshua Helm 19, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12,
Brynjar Þór Björnsson 11, Fannar Ólafsson 6,
Helgi Már Magnússon 4, Darri Hilmarsson 2.
Stig Tindastóls: Donald Brown 23, Serge Poppe
22, Philip Perre 13, Svavar Birgisson 11, Ísak Ein-
arsson 9, Samir Shaptahovic 7, Helgi Viggósson 4,
Halldór Halldórsson 2.
Njarðvík-Fjölnir 87-75
Tölfræði úr leiknum barst ekki fyrir prentun
Fréttablaðsins.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI ÍR-ingar fóru illa með Snæfellinga í
Seljaskóla í Iceland Express-deild karla í gær
og tóku af þeim sjötta sætið með 25 stiga sigri,
102-77. Snæfellingar áttu engin svör við
grimmri vörn heimamanna sem refsuðu þeim
síðan með vel útfærðum hraðaupphlaupum auk
þess að setja niður fjórtán þrista í leiknum.
Snæfell hékk í ÍR framan af leik, var aðeins
einu stigi undir eftir fyrsta leikhluta, 25-24, og
9 stigum undir í hálfleik, 53-44 en ÍR skoraði
átta fyrstu stig seinni hálfleiks og stakk í kjöl-
farið af í leiknum. ÍR-ingar skoruðu 12
fleiri þriggja stiga körfur en Hólmarar í
leiknum sem nýttu aðeins 2 af 18
þriggja stiga skotum sínum. ÍR-liðið
skoraði að auki 24 fleiri stig úr
hraðaupphlaupum og skildu hvað
eftir annað þunga Snæfellinga
eftir í sporunum.
„Við erum með vel spilandi
lið og erum loksins búnir að
finna taktinn okkar eftir
erfiða byrjun. Við
förum inn í þetta
jólafrí með
fjóra sigra í röð og ætlum okkur
mikið í framhaldinu,“ sagði ÍR-ing-
urinn Hreggviður Magnússon sem setti
niður 5 af 7 þriggja stiga skotum
sínum. Hreggviður og ÍR-liðið
hefur gengið í gegnum ýmislegt í
vetur en nú virðist liðið komið
með rétta blöndu. „Þegar við
vorum allir heilir og að spila í
fyrra þá vorum við með gott
sigurhlutfall og núna erum
við komnir með þennan
hóp aftur og erum
orðnir gríðarlega
vel spilandi.“
Hreggviður er
ánægður með Nate
Brown en ÍR hefur unnið þrjá sannfærandi
sigra síðan hann kom aftur til liðsins. „Hans
framlag í leiknum er miklu meira en það sem
segir á stigatöflunni. Hann er að setja upp,
finna réttu kerfin og keyra taktinn í liðinu,“
segir Hreggviður sem átti mjög
góðan leik.
Eigum að vinna ÍR hvar sem
er
Hlynur Bæringsson, fyrir-
liði Snæfells, lék ekk-
ert síðustu 13 mín-
útur leiksins
vegna meiðsla
á læri. „Við
fráköstum illa
og svo hittum
við ekki neitt,
hvorki úr
vítum né neinu
öðru. Þeir voru
síðan að setja niður
öll skot á tímabili. Við
spiluðum aldrei neina
vörn og það var ekki
eins og þeir væru að
setja einhver erfið skot
niður. Það er bara til
skammar að fá á sig 102
stig,“ segir Hlynur en það eru fleiri en hann
að kljást við meiðsli.
„Við erum langt frá því að vera með okkar
lið í góðu standi en mér er alveg sama því mér
finnst samt, með fullri virðingu fyrir ÍR, að
við eigum að vinna þá hvar sem er. Ef það er
orðið takmarkið hjá okkur að koma og standa
í ÍR-ingum þá er ég bara hættur,“ sagði Hlynur
sem segir slakan varnarleik vera helsta
vandamál liðsins.
„Við förum ekki neitt langt á því að Snæfell
hafi spilað góða vörn í gegnum tíðina. Það er
eins og það sé bara sjálfsagt að við eigum að
spila góða vörn af því að við erum vanir því og
góðir varnarmenn flestir. Góð vörn kemur
ekki af sjálfu sér og við erum að spila skelfi-
lega svæðisvörn.
Það er enginn að tjá sig við næsta mann og
við erum að gefa galopin skot hvað eftir annað
og það nýta góðar skyttur sér. Við verðum að
gera eitthvað almennilegt í jólafríinu,“ sagði
Hlynur. Justin Shouse var atkvæðamestur
með 20 stig og 10 stoðsendingar en lykilmenn
eins og Sigurður Þorvaldsson og Slobodan
Subasic brugðust alveg.
Það var búist við miklu af Snæfellsliðinu í
vetur en með sama áframhaldi er allt annað
en öruggt að liðið komist í úrslitakeppnina í
vor.
ooj@frettabladid.is
Loksins búnir að finna taktinn
Hreggviður Magnússon segir mikið búa í ÍR-liðinu sem vann 25 stiga sigur á Snæfelli í gær. Hlynur Bær-
ingsson, fyrirliði Snæfells, var hins vegar allt annað en ánægður með vörnina sem Snæfell spilaði í gær.
BARÁTTA
Það var ekkert
gefið eftir undir
körfunni í Seljaskóla
í gær þó svo að Snæfell
hafi ekki spilað góða
vörn. Á stóru myndinni er
síðan Nate Brown sem lék
vel og uppskar mikið hrós frá
Hreggviði Magnússyni, félaga
sínum í ÍR.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM