Fréttablaðið - 14.12.2007, Síða 56
Í basar Thorvaldsensfélagsins
má finna ýmsa fallega muni
sem eru tilvaldir í jólapakkann.
Margt skrefið til framfara í sam-
félaginu má í gegnum tíðina þakka
íslenskum kvenfélögum sem vinna
óeigingjarnt starf í þágu almenn-
ings. Thorvaldsensfélagið er elsta
kvenfélag Reykjavíkur,
stofnað 1875 með það að
markmiði að hlúa að
þeim sem minna mega
sín, sérstaklega sjúkum
börnum. Félagið hefur
einnig unnið að rétt-
indamálum kvenna
frá fyrsta degi og
tók þátt
í stofnun mæðrastyrksnefndar.
Félagið stóð að byggingu húss
við þvottalaugarnar í Laugardal
og að þvottakonur fengju vagna
til að flytja þvottinn á milli, sem
varð til þess að Laugavegurinn
var lagður. Thorvaldsensbasar-
inn hefur starfað í 107 ár og er til
húsa að Austurstræti 4 og vinna
félagskonur þar í sjálfboðavinnu.
Á basarnum fást ýmiskon-
ar handunnar vörur
og listiðnaður sem
gaman væri að fá í
jólapakkann. - rt
14. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● miðbærinn
Ullarkragi með
íþæfðu silki kostar
7.900 krónur.
Íslensk
blóma rós á
upphlut er
tilvalin gjöf
handa ungum
Íslending-
um. 2.385
krónur.
Rautt og jóla-
legt ullarsjal
kostar 3.475
krónur.
Handunnar vörur í jólapakkann
Mikið úrval er af lopapeysum
bæði á börn og fullorðna. Blá
barnapeysa á 5.600 krónur.
Handprjónaðar
ullarhosur eru
hlýjar í jólapakk-
ann og kosta
1.950 krónur.
Skemmtilegar styttur
af íslenskum
kirkjum og
húsum fást á
basarnum á
830 krónur
stykkið.
Enskibar heitir nýr bar í miðbæn-
um sem var opnaður fyrir hálfum
mánuði. Barinn er ílangur og nota-
legur en ganga má inn í hann frá
tveimur hliðum, frá Austurstræti
og Austurvelli. Þar er hægt að fá
35 tegundir af viskíi og 25 tegundir
af bjór og að sjálfsögðu Guinness
og Kilkenny.
Við fyrstu sýn virðist barinn
ekkert vera enskari en margir
aðrir og manni gæti dottið í hug að
það sem geri hann enskan sé enski
fótboltinn sem fær að njóta sín vel
á þremur breiðtjöldum og tveimur
46 tommu skjám. Þegar betur er
að gáð má sjá að alúð hefur verið
lögð í innréttingarnar.
Barinn sjálfur er massívur og
undir honum stöplar sem hafa
verið útskornir í Englandi.
Eitt helsta stolt barsins er nokk-
urs konar bjórrúlletta sem hefur
slegið í gegn hjá gestum og kostar
1.500 krónur leikurinn. Sextán
reita lukkuhjóli er hægt að snúa á
öxli og pinni velur einn reit sem á
gæti leynst vinningur.
Blaðamaður gaf sig á tal við
tvo kúnna sem sátu við barinn og
spurði hvernig þeim líkaði staður-
inn. Þeir voru báðir með svolítið
ensk nef og á þeirri skoðun að það
þyrfti pottþétt fleiri staði eins og
þennan í miðbæinn þar sem menn
gætu horft á fótbolta.
Enskibarinn ætlar að bjóða gest-
um sínum upp á panini-langlokur,
snakk og hnetur. En þar er fyrst og
fremst að finna drykki, fótbolta og
góða tónlist. - nrg
Nýr pöbb í
miðbænum
Hermann Svendsen, einn af eigendum
Enskabars, við dælurnar.
Innritun í kvöldskóla Iðnskólans í Reykjavík stendur yfir á netinu,
www.ir.is (Námsframboð – Kvöldnám)
Aðstoð við innritun verður í matsal skólans,
miðvikudaginn 2. og fimmtudaginn 3. janúar frá kl. 17:00–18:30.
Allar nánari upplýsingar á www.ir.is
Kennsla hefst miðvikudaginn 9. janúar.
Kvöldskóli Iðnskólans í Reykjavík – vorönn 2008
Innritun í fjarnám Iðnskólans stendur yfir á netinu:
www.ir.is (Námsframboð – Fjarnám)
Innritun lýkur 20. janúarog kennsla hefst miðvikudaginn 23. janúar.
Alls eru í boði 70 áfangar með áherslu á starfstengt nám.
Fjarnám Iðnskólans í Reykjavík – vorönn 2008