Fréttablaðið - 14.12.2007, Page 64
BLS. 10 | sirkus | 14. DESEMBER 2007
„DVERGAJÓL“
Philippe Starck-
dvergarnir eru
upplagðir í
jólapakkann í ár
fyrir alla þá sem
hafa smekk fyrir
garðdvergum og
öðrum slíkum
gleðigjöfum. Ekki
spillir að hafa Starck
sjálfan skrifaðan fyrir
skemmtilegheitunum.
Dvergarnir fást í
versluninni Epal.
SYKURHÚÐUÐ JÓL
Dreymir ekki alla um
að eignast „candy-
floss“-vél? Tilvalin
jólagjöf fyrir þá sem
elska klístraðan 17.
júní og státa af
hraðvirku brennslu-
kerfi innra með sér.
„Candyfloss“-vél heim
í stofu og þjóðhátíðin
byrjar hjá þér þegar
þú vilt, 365 daga á ári
ef þú ert í rétta
stuðinu. Vélin fæst á
Vörutorginu.
SÚKKULAÐIGOSBRUNNUR OG ÁRSKORT Í
LAUGAR Í JÓLAPAKKANN Hvaða
súkkulaðigrís hefur ekki dreymt um að
eignast gosbrunn fljótandi í súkkulaði?
Súkkulaðigosbrunnurinn er tilvalinn í
jólapakkann og ætti að lífga upp á
hvert heimili, því eins og frægt er orðið
þá er súkkulaði hverjum manni
LÍFSnauðsynlegt. EF ÆTLUNIN ER AÐ
EYÐA JÓLAHÁTÍÐINNI LIGGJANDI
UNDIR GOSBRUNNINUM SAFNAST
DÁGÓÐAR KALORÍUR Í SAFNIÐ og því
ætti líkamsræktarkort að fylgja með
súkkulaðibrunnum fyrir mestu
súkkulaðinautnaseggina. Súkkulaðigos-
brunnurinn fæst á Vörutorginu. SPACE-BAG Í PAKKANN Gefðu ástinni þinni bestu jólagjöf í heimi, „The
Space bag“, töfralausn sem sparar rými. Með pokanum góða er hægt
að þrefalda skápaplássið á heimilinu og ætti því enginn að þurfa að
láta plássleysið stoppa sig í fatainnkaupum, með þessu mætti fylgja 2
milljóna inneign í GUCCI-búðinni í Lundúnum, nóg er plássið í
skápunum. Pokarnir góðu fást á Vörutorginu.
FYRIR MATGÆÐINGINN Kjúklingaspír-
allinn er stórkostleg gjöf fyrir alla
þá sem hafa gaman af að troða
fyllingu í kjúklinginn eða
kalkúninn en eiga í
vandræðum með
að setja fuglinn
saman. Með
kjúklingaspír-
alinn að
vopni verður
slík aðgerð
hægðarleikur
og elda-
mennskan
verður enn
skemmtilegri.
Kjúklingaspírallinn
fæst í Kokku.
BOBBI BROWN-TÓNIK Hvern dreymir ekki um
fegurð og frískleika í svartasta skammdeg-
inu? Andlitsvatnið eða „tónikið“ frá Bobbi
Brown sveipar andlitið ljóma á örskammri
stundu og gerir karftaverk fyrir alla þá sem
trúa á slíkan mátt. Það er þó harðbannað að
blanda því út í ginið. Fæst í verslunum Lyfja
og heilsu og Hagkaupum.
GAMALDAGS UPPVASK Á
tímum uppþvottavéla
dreymir alla um uppvask upp
á gamla mátann að minnsta
kosti einu sinni á ári.
Uppþvottagrindin fæst í Epal.
„DIAMONDS ARE A
GIRL’S BEST FRIEND“
Diamonds Emporio
Armani-ilmvatnið og
húðmjólkin eru
sannkallaðir
demantar í jólagjafa-
flóðinu og ættu að
gleðja kvenþjóðina og
jafnvel hörðustu
femínista.
ELEGANT EGGAJSKERI Eggjaskeri sem fer vel
við hvítlakkaðar eldhúsinnréttingar. Fullkomin
gjöf fyrir þá sem eiga allt.
Hvað er hægt að gefa fólki sem á allt þegar landskikar og fallvötn eru
ekki í boði? Sirkus fór á stúfana og komst að því að vöruúrval af bráð-
nauðsynlegum óþarfa hefur aldrei verið meira.
ÓSKALISTI
þeirra sem allt eiga
LAUGAVEGUR 86 -94, S: 511-2007
REYKJAVIK STORE