Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 100
64 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
7
16
7
14
12
16
14
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 6 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
RUN FATBOY RUN kl. 8 - 10
SAW 4 kl. 8 - 10
7
16
16
16
14
14
RUN FATBOY RUN kl.5.50 - 8 - 10.10
SAW 4 kl. 8 - 10.10
BUTTERFLY ON A WHEEL kl.5.45 - 8 - 10.15
DAN IN REAL LIFE kl.5.45
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.6- 9
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 - 8 ÍSL. TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 - 8 - 10 ENSKT TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10 ENSKT TAL
BEE MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 4 - 6 - 8 - 10
HITMAN kl. 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl. 10
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 6 - 8 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6 - 8 - 10
BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 5.45 - 8 - 10.15
ACROSS THE UNIVERSE kl. 8 - 10.40
RENDITION kl. 10
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
5%
5% 5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
Nú verður allt vitlaust!
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!
HLAUPTU FITUBOLLA,
HLAUPTU
Stórskemmtileg gamanmynd fyrir
alla fjölskylduna
- bara lúxus
Sími: 553 2075
RUN FATBOY RUN kl. 4, 6, 8 og 10 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR - ÍSL TAL kl. 4 og 6 L
SAW IV kl. 8 og 10 16
BEE MOVIE - ÍSL TAL kl. 4 og 6 L
HITMAN kl. 8 og 10 16
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Málverk eftir listamanninn
Eggert Pétursson prýðir umslag
fyrstu plötu hljómsveitarinnar
Hjaltalín, Sleepdrunk Sessions.
„Við vorum að leita að hugmynd
að umslagi og ég hringdi í Eggert.
Hann er mikill tónlistargrúskari
og áhugamaður um geisladiska og
„art“-hönnun. Hann var til dæmis
að hlusta á japanska „noise“-tón-
list þegar ég heimsótti hann. Hann
var til í þetta með því skilyrði að
málverkið yrði afskræmt og
klippt til fyrir umslagið,“ segir
Högni Egilsson, söngvari og for-
sprakki Hjaltalín.
Sigurður Oddsson, hönnuður og
bassaleikari í rokksveitinni
Mínus, sá um þá hlið mála. Varð
niðurstaðan samt nokkuð öðruvísi
en ætlunin var í upphafi. „Við ætl-
uðum að hafa „coverið“ upp-
hleypt. Það átti að vera hrjúft eins
og málverkin hans Eggerts en það
var mun dýrara en við gerðum
ráð fyrir,“ segir Högni, sem bætir
við að Pétur, sonur Eggerts, eigi
texta við þrjú lög á plötunni.
Annað málverk eftir Eggert
prýðir síðan nýja smáskífu Hjalta-
lín við lagið Traffic Music. Einnig
er á skífunni fyrsta lagið sem
Hjaltalín tók upp, jólalagið
Mamma kaupir kertaljós, sem
kom út 2004.
Hjaltalín fékk frábæra dóma í
Fréttablaðinu og Mogganum fyrir
nýju plötuna og er Högni mjög
ánægður með það. „Það er gott að
fá góða umfjöllun en það væri
best ef allir myndu hlusta á hana
og dæma fyrir sig. Það var samt
léttir að fá ágætis umfjöllun.“
- fb
Eggert á umslagi Hjaltalín
Bandaríska sálargoðsögnin Ike Turner,
fyrrverandi eiginmaður Tinu Turner, er
látinn, 76 ára að aldri. Hann lést á heimili
sínu í Kaliforníu eftir að hafa glímt við
lungnasjúkdóm.
Turners verður fyrst og fremst minnst fyrir
samstarf sitt og stormasamt hjónaband með Tinu
Turner, sem hélt því fram að hann hefði beitt sig
ofbeldi. Var sambandi þeirra gert skil í kvikmynd-
inni What´s Love Got to Do With It sem kom út
1993.
Kvartaði undan fjölmiðlum
Í viðtali við AP-fréttastofuna árið 2001 sagðist Ike
ekki hafa beitt Tinu ofbeldi og taldi að fjölmiðlar
hefðu svert ímynd sína í stað þess að fjalla um
sögulegt framlag sitt til rokksins.
„Þið getið spurt Snoop Dogg eða Eminem, þið
getið spurt The Rolling Stones eða Eric Clapton.
Þið getið spurt hvern sem er, þeir þekkja allir
hversu mikið ég hef lagt af mörkum til tónlistar-
innar. En það hefur ekkert verið skrifað um mitt
framlag fyrr en núna,“ sagði hann.
Ike, sem var vígður í Frægðarhöll rokksins 1991
ásamt Tinu, er af sumum rokkfræðingum sagður
hafa búið til fyrstu rokkplötuna, Rocket 88, sem
kom út 1951. Á plötunni, sem hinn kunni Sam
Phillips tók upp, var notast við bjagaða rafmagns-
gítara í fyrsta sinn.
Tina sækir um skilnað
Ike varð heimsfrægur eftir að hann hitti Önnu
Mae Bullock, sem síðar breytti nafni sínu í Tina,
og gerði hana að aðalsöngkonu hljómsveitar
sinnar. Á meðal vinsælustu laga þeirra voru Proud
Mary og River Deep Mountain High.
Eftir sautján ára hjónaband sótti Tina um
skilnað frá Ike árið 1976 vegna fíkniefnaneyslu og
ofbeldishneigðar hans og hóf vel heppnaðan
sólóferil.
Á sama tíma féll Ike í gleymskunnar dá og
lagðist í mikla kókaínneyslu. Um miðjan níunda
áratuginn var honum stungið í fangelsi fyrir
fíkniefnabrot.
Aftur í sviðsljósið
Það var ekki fyrr en Ike varð sjötugur, árið 2001,
sem hann sneri aftur í sviðsljósið sem tónlistar-
maður. Þá var hann tilnefndur til Grammy-
verðlaunna fyrir plötu sína Here and Now. Fyrr á
þessu ári hlaut hann verðlaunin síðan fyrir plötuna
Risin’ With the Blues.
Sálargoðsögn fallin frá
IKE TURNER Ike
heldur á Grammy-
verðlaununum
sem hann fékk fyrir
plötuna Risin´ With
the Blues.
MEÐ TINU Storma-
sömu hjónabandi
Ike og Tinu lauk árið
1976 þegar Tina
sótti um skilnað.
HÖGNI EGILSSON Högni fékk að nota lista-
verk Eggerts Péturssonar fyrir umslag fyrstu
plötu Hjaltalín.
UMSLAG-
IÐ Mynd
Eggerts
Péturs-
sonar
prýðir
umslag
Sleep-
drunk
Sessions.
EGGERT PÉTURSSON
Eggert vildi að mál-
verk sitt yrði afskræmt
fyrir umslagið.