Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 104
68 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
SUND Íslenska sundfólkið fer vel
af stað á Evrópumótinu sem nú
stendur yfir í Debrecen í Ung-
verjalandi. Ragnheiður Ragn-
arsdóttir, sundkona úr KR, setti
nýtt Íslandsmet í 100 metra
skriðsundi og Örn Arnarson,
sundmaður úr SH, setti
Íslandsmet í 100 metra
flugsundi og komst í und-
anúrslit í gær.
Ragnheiður bætti
fyrra met sitt í 100
metra skriðsundi, sem
hún setti í lok nóvember,
þegar hún synti á 55.29 sekúnd-
um í gær. Met Ragnheiðar nægði
þó ekki til þess að hún kæmist í
undanúrslitin og endaði hún í
23. sæti. Ragnheiður keppir
aftur í dag í 100 metra fjór-
sundi og svo lýkur hún
keppni með í 50 metra
skriðsundi á morgun.
Örn Arnarson synti
100 metra flugsund í
gær á tímanum
52,69 sekúndur,
sem er nálægt
Íslandsmeti hans,
og nægði það
honum til að tryggja
sig áfram í undanúr-
slitin. Þar bætti hann
um betur og synti á tímanum 52,53
sekúndur, sem er nýtt Íslandsmet,
og endaði í 13. sæti. Í dag keppir
Örn í 100 metra skriðsundi og 50
metra baksundi og morgun kepp-
ir hann svo í 50 metra flugsundi.
Jakob Jóhann Sveinsson synti
100 metra bringusund á tímanum
1:01.51 og lenti í 36. sæti af 50
keppendum í gær og í
dag keppir hann í 200
metra bringusundi.
- óþ
Íslenska sundfólkið fór vel af stað á Evrópumótinu í 25 metra laug í Debrecen í Ungverjalandi í gærdag:
Ragnheiður og Örn settu ný Íslandsmet
FÓTBOLTI Samkvæmt Sky Sports
fréttastofunni hefur Arsenal
fengið leyfi Levski Sofia til þess
að fá einn liðsmanna búlgarska
liðsins, hinn unga og efnilega
Nikolay Dimitrov, á reynslu á
næstunni með hugsanleg kaup í
huga. Dimitrov er tvítugur og
spilar yfirleitt á vinstri kanti en
getur einnig leikið í stöðu
framherja og hefur líklega vakið
athygli Arsene Wenger í leikjum
með U-21 árs liði Búlgaríu.
Stnimir Stoilov, stjóri Levski
Sofia, efast ekki um að Dimitrov
muni slá í gegn hjá Arsenal.
„Við höfum þegar gefið grænt
ljós á þetta og það eina sem er
eftir núna er að Dimitrov fari til
London og æfi með Arsenal og ég
er viss um að hann á eftir að
standa undir væntingum. Hann er
ungur og efnilegur og ég er mjög
ánægður fyrir hans hönd, en ég
lít einnig á þetta sem heiður fyrir
Levski Sofia sem lið að Arsene
Wenger hafi áhuga á einum
leikmanna þess.“ - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Dimitrov á leið
til Arsenal
EFNILEGUR Dimitrov þykir mikið efni í
heimalandi sínu og tíminn mun leiða í
ljós hvort hann nær að heilla Arsenal á
reynslutímanum. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Fimm stuðningsmenn
Manchester United voru stungnir
í 50 manna óeirðum sem brutust
út fyrir leik enska liðsins gegn
ítalska liðinu Roma í Róm í
fyrrakvöld. Enginn Bretanna
varð fyrir lífshættulegum
áverkum en sex voru handteknir
og fjórir formlega kærðir fyrir
þátttöku sína í óeirðunum, en
þetta var ekki í fyrsta sinn sem
aðdáendur liðanna fara í hár
saman. Þegar liðin mættust í Róm
í átta liða úrslitum Meistara-
deildarinnar í fyrra voru ellefu
stuðningsmenn fluttir á sjúkra-
hús vegna meiðsla sem hlutust í
slagsmálum við óeirðalögreglu
innan Ólympíuvallarins í Róm.
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, lýsti yfir
vonbrigðum sínum með uppá-
komuna í viðtali í leikslok í
fyrrakvöld.
„Við vorum að vonast eftir
rólegu kvöldi og að við gætum
snúið aftur til Manchester án
nokkurra óeirða á milli aðdáenda
liðanna, en það gekk því miður
ekki eftir. Auðvitað veit ég ekki
nákvæmlega hvað gerðist, en ég
vona að allir aðdáendur sem lentu
í átökum séu heilir á húfi, en ég
get ekki leynt vonbrigðum mínum
með þessa uppákomu.“ - óþ
Meistaradeild Evrópu:
Fimm Bretar
stungnir í Róm
ÓLÆTI Stuðningsmenn Manchester
United og Roma lentu í átökum í fyrra-
kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Í FANTA FORMI Ragn-
heiður Ragnarsdóttir
bætti met sitt í 100
metra skriðsundi
í gær.
ÖFLUGUR Örn Arnarson byrjaði vel
á EM í sundi í gær og setti Íslands-
met i 100 metra flugsundi.