Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 112
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 14.
desember, 348. dagur ársins.
11.14 13.22 15.31
11.28 13.07 14.46
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
JÓLAGJÖF
SEM FLÝGUR ÚT
Sölutímabil er til 24. des. 2007 kl. 18:00. Bókunartímabil er til og með 25. jan. 2008. Ferðatímabil er frá 12. janúar til og með 31. maí 2008. Til Bergen, Gautaborgar, Halifax og Toronto er ferðatímabilið til og með 15. júní 2008.
Jólapakkatilboð gildir til allra áfangastaða sem Icelandair flýgur til í beinu áætlunarflugi frá Íslandi. Undantekningar eru: Orlando, Salzburg, München, Madrid, Mílanó og Barcelona. Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags.
Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 500 til 12.800 Vildarpunkta. Jólapakkarnir fást líka á söluskrifstofum Icelandair og í Fjarsölu í síma 50 50 100 gegn þjónustugjaldi.
Safnaðu
Vildarpunktum
Evrópa 26.900 kr.*
Bandaríkin 36.900 kr.*
Saga Class Evrópa 52.900 kr.*
Saga Class Bandaríkin 62.900 kr.*
Einungis fyrir handhafa
Vildarkorta VISA og Icelandair.
Evrópa 32.900 punktar**
Bandaríkin 47.900 punktar**
20% barnaafsláttur gildir í almennu farrými.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
**Greiða verður flugvallarskatta (Evrópa 8.205 kr., USA 13.065 kr.)
*Skattar eru innifaldir í verði.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
03
48
1
2/
07
Þriðjudaginn 10. júní 2003 kom bæjarstjórn Kópavogs saman
til fundar að Fannborg 2 og tók
þá örlagaríku ákvörðun að vegur
sem liggur sunnarlega í gegnum
Kórahverfi skyldi heita Rjúpna-
vegur. Þessi samþykkt fór algjör-
lega fram hjá mér. Að minnsta
kosti hafði ég aldrei heyrt minnst
á þetta einskismannsland þegar
ég lenti þar í sjálfheldu rúmum
fjórum árum síðar, bensínlítill á
dimmu frostkvöldi í október, og
ekki víst að ég ætti afturkvæmt.
KÓPAVOGUR er dálítið eins og
álagaskógurinn í gömlu ævintýr-
unum; ef maður hættir sér of
langt inn í hann á maður á hættu
að rata aldrei aftur út. Kópavog-
ur er eiginlega alveg kennileita-
laus, þar er enginn miðbær og ef
maður færi þangað með áttavita
myndi nálin ábyggilega snúast í
hringi. Smáralindin er eins og
töfrahöll sem lætur mann alltaf
gleyma úr hvaða átt maður kom
þegar maður ætlar að komast
aftur burt. Frá henni er aðeins
ein rétt beygja – allar aðrar leiða
annaðhvort aftur að Smáralind
eða það sem verra er: í Kóra-
hverfið og Salina.
ÞETTA tiltekna kvöld henti hið
síðarnefnda mig. Ég hafði ekið
villur vega í að minnsta kosti
hálftíma. Mér datt í hug að spyrja
fólk til vegar en varð ekki var við
lifandi sálu, gangandi né akandi.
Það var farinn að sækja að mér
þó nokkur beygur þegar ég sá á
skilti á ljósastaur, sem gæti
kannski gefið mér hugmynd um
hvar ég var. Ég snarhemlaði,
steig út úr bílnum og las í fyrsta
skipti nafnið sem hefur vakið
með mér ískaldan hroll allar
götur síðan: Rjúpnavegur. Ég var
engu nær um hvar ég var. Fyrir
utan malið í bílvélinni heyrðist
ekki eitt aukatekið hljóð en í höfði
mér hljómaði dimm og tröllsleg
rödd sem hló og sagði: „það er
gott að búa ...“
KLUKKAN var að ganga tólf og
ég taldi næsta víst að örlög mín
væru ráðin: Að ganga af vitinu
við Rjúpnaveg, hverfa sporlaust
og enda í besta falli í sem efnivið-
ur í skáldsögu eftir Arnald. Í
þann mund sem mér var að falla
allur ketill í eld sneri ég mér til
norðurs og leit til himins. Og
þarna blasti hún við mér eins og
varða hlaðin af æðri máttar-
völdum: friðarsúla Yoko Ono.
Sem ég ók af stað varð mér
hugsað til Johns Lennon. Með
dauða sínum bjargaði hann
mögulega lífi mínu.
Álagabærinn