Fréttablaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
31. desember 2007 — 355. tölublað — 7. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Þegar litið er um öxl á áramótum er oft margs
að minnast. Hafdís Jónsdóttir, eða Dísa í World
Class eins og flestir þekkja hana, hefur til
dæmis opnað fjórar nýjar líkm ð
að strengja áramótheit segir Dísa: „Já, ég lofa sjálfri
mér alltaf að reyna að gera betur og ð
manneskja Bæta sjálf
Áramót í Afríku
Dísa er þakklát fyrir gott heilsufar fjölskyldunnar og heitir því ár hvert að bæta sig í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Öryggisgleraugun eru nauðsynleg bæði ungum og öldnum um áramót. Ekki aðeins þeir sem skjóta eiga að vera með slíkan búnað heldur einnig þeir sem á horfa.
Sprengingar geta vakið ótta hjá ungum börnum. Best er að skilja barnið ekki eitt eftir í augnablik heldur vera með það í fanginu allan tím-ann sem sprengingarnar eru.
Hávaðinn sem fylgir flugeldunum getur valdið óbætanlegum heyrnar-skaða og því er ráð að nota eyrnatappa. Ekki má gleyma að setja eyrna-tappa í eyrun á litlu börnunum.
VEÐRIÐ Í DAG
Opið 10–13
í dag
DÍSA Í WORLD CLASS
Varði síðustu áramót-
um í hita og sól í Afríku
Áramót
Í MIÐJU BLAÐSINS
FASTEIGNIR
Nýtískulegt
funkishús
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Skaupið er frábært
Jón Gnarr segir að það
sé ekki verið að breyta
stjórnarskránni með
Skaupinu.
FÓLK 62
Níu ára
í speglinum
Guðmundur Andri
Thorsson rithöf-
undur er fimm-
tugur í dag.
TÍMAMÓT 22
fasteignir 31. DESEMBER 2007
Rétt við lítinn furuskóg efst í Krikahverfi í Mos-
fellsdal stendur nýtt einnar hæðar raðhús. Ein
íbúð í því er föl hjá fasteignasölunni Stórborg.
R aðhúsið er með mikilli lofthæð, millipalli og innbyggðum bílskúr og er samtals 194,6 fer-metrar að flatarmáli. Íbúðin skiptist í for-stofu, gestaherbergi, hol, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu/þvotta-hús.Milliveggir eru ýmist staðstey tieða klæddi
í gólf. Loftplötur eru steyptar og slípaðar, tilbúnar til
spörslunar og málningar. Hurðir eru fullfrágengnar og ísettar og hið sama
gildir um gluggana. Einnig eru fráveitulagnir innan-
húss fullgerðar og neysluvatnslagnir eru tengdar við
stofninntak og frágengnar að tækjum. Vinnuljós eru
tengd í hverju herbergi, gert ráð fyrir hljómtækjum
í stofu og tölvu- og símalagnir eru í herbergjum. Gert
er ráð fyrir innfelldri gólflýsingu í anddyri og gangi
einnig rafknúnum gardínum í t fHú i
Nýtískulegt funkishús
Aðeins ein íbúð er óseld í þessu raðhúsi í Litlakrika í Mosfellsbæ. Ásett verð er 39,9 milljónir.
„Við erum aldrei of upptekin fyrir þig “
Ekki heldur um áramótin.
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
boas@remax.is
Gunnar
Sölufulltrúi
899 0800
go@remax.is
Áslaug María
Sölufulltrúi
8200 301
aslaug@remax.is
Eir
Sölufulltrúi
660 6085
eir@remax.is
Benedikt
Sölufulltrúi
661 7788
benolafs@remax.is
Edda HrafnhildurSölufulltrúi
896 6694
edda@remax.is
Hilmar
Sölufulltrúi
892 2982
hilmarosk@remax.is
Stefán Páll Jónsson Löggiltur fasteignasali
42
SVÖLUSTU
STELPURNAR
Best klæddu stjörnur
ársins 2007
VERSLUN Yfir 200 notaðir Range
Rover-bílar hafa verið settir á
söluskrá á bílasölum landsins á
síðustu þremur mánuðum.
Samanlagt verðmæti bílanna er
tæplega tveir milljarðar króna og
á þeim hvíla skuldir upp á vel rúm-
lega hálfan milljarð, að því er
úttekt Fréttablaðsins leiðir í ljós.
Bílarnir eru um 220. Þeir eru
nær allir árgerð 2000 eða yngri.
Þeir ódýrustu kosta um fimm
milljónir en þeir dýrustu eru
verðlagðir á sautján og hálfa
milljón. Afborganir af tugum
þessara bíla nema yfir hundrað
þúsund krónum á mánuði, og
sumum allt upp í 150 þúsund
krónur.
Samkvæmt útreikningum
Fréttablaðsins á hver skuldari
enn eftir að greiða rúmar fimm
milljónir að meðaltali af bíl sínum,
en þess ber að geta að margir hafa
greitt bíla sína að fullu.
Þrátt fyrir að svo margir Range
Rover-eigendur reyni nú að selja
dýra bíla sína án þess að hafa
borgað af þeim er ekki mikið um
vanskil af lúxusbílalánum, að
sögn Péturs B. Magnússonar, for-
stöðumanns innheimtu- og lög-
fræðisviðs Lýsingar. „Við könn-
umst allavega ekkert við það hjá
Lýsingu,“ segir hann. Auður
Rafnsdóttir, yfirmaður inn-
heimtudeildar hjá SP Fjármögn-
un, vildi ekki tjá sig um málið.
- sh
Yfir 200 notaðir Range
Rover bílar á bílasölum
Á síðustu þremur mánuðum hafa yfir 200 notaðir Range Rover bílar verið skráðir
á sölu. Bílarnir kosta samanlagt tæpa tvo milljarða. Hálfur milljarður áhvílandi.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Gleðilegt
nýtt ár!
Áramótaávörp formanna
Formenn íslensku stjórnmálaflokk-
anna gera upp árið. Allir eru þeir
sammála um að árið hafi verið
mjög viðburðaríkt í stjórnmálum.
SKOÐUN 10, 12 OG 16
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Mánudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
40%
69%
HVESSIR VESTAN TIL Í KVÖLD
Í dag verður sunnan 10-18 m/s
sunnan og vestan til, hvassast allra
vestast, annars 8-15 m/s. Þurrt á
Austurlandi, annars skúrir eða él.
Hiti 0-5 stig að deginum.
SJÁ ÁRAMÓTASPÁNA Á BLS. 4
HÚSAFELL Ábúendur á Húsafelli
beita brögðum til að halda ró yfir
um 15 hrossum í girðingu í
sprengjuregni um áramótin.
Hrossin fá nýja heyrúllu á
gamlárskvöld og traktor verður
hafður í gangi til að hestarnir
heyri kunnuglegt hljóð.
„Það þarf ekki mikið til að
hræða hrossin, sér í lagi þau sem
ekki eru borgarbúar,“ segir
Sigríður Snorradóttir, íbúi á
Húsafelli.
Hún segir að þetta hafi gefist
vel á undanförnum árum. Sífellt
fleiri dvelji í orlofshúsum á
svæðinu um áramót, og þó lætin
séu ekkert í líkingu við það sem
gerist í þéttbýli stressi spreng-
ingarnar hrossin.
Í þéttbýli er algengt að
hestaeigendur byrgi glugga í
hesthúsum, hafi kveikt inni og
útvarp í gangi. - bj
Róa hestana um áramótin:
Ný heyrúlla og
traktor í gangi
Marel aftur til
Breiðabliks
Knattspyrnukappinn
Marel Baldvinsson
gekk í raðir Breiða-
bliks á nýjan leik í gær
þegar hann skrifaði
undir þriggja ára samn-
ing við félagið.
ÍÞRÓTTIR 52
DANMÖRK Brátt verður allt að
því fimmta hvert barn sem
fæðist í Danmörku „glasa-
barn“, ef fram heldur sem
horfir í fæðingamynstri
kvenna í Danmörku og fleiri
velmegunarlöndum.
Berlingske Tidende hefur
eftir fæðingarlæknum og
öðrum frjósemissérfræðing-
um frá ýmsum löndum að
innan fárra ára séu horfur á
að 15-20 prósent allra
fæddra barna verði getin í
tilraunaglasi. Nú mun þetta
hlutfall í Danmörku vera
rúmlega sjö prósent.
Eftirspurn eftir
tæknifrjóvgunum hefur
stóraukist í takt við
hækkandi aldur kvenna er
þær eignast sitt fyrsta barn.
- aa
Barnsfæðingar í Danmörku:
Stóraukin tíðni
tæknifrjóvgana