Fréttablaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 34
[ ]
Áramótakveðja Samanhópsins
er hvatning til jákvæðra sam-
skipta innan fjölskyldunnar.
Samanhópurinn er grasrótar-
samtök sem hafa meðal annars að
markmiði að virkja jákvæð sam-
skipti fjölskyldunnar og vekja
athygli á þeim ógnum sem börn-
um og unglingum stafar af áfengi
og öðrum vímuefnum í samfélag-
inu. Frá því að hópurinn tók til
starfa árið 1999 hefur hann beitt
ýmsum aðferðum til að ná þessum
markmiðum fram, meðal annars
með því að senda landsmönnum
áramótakveðju þar sem mikilvægi
samverustunda fjölskyldunnar er
undirstrikað.
„Áramótakveðjan er einn af
nokkrum liðum sem hafa fest sig í
sessi í okkar starfi,“ segir Eygló
Rúnarsdóttir, fulltrúi ÍTR í
Samanhópnum, og bætir við að
kveðjan verði reyndar tvíþætt í ár.
„Annars vegar að samvera með
fjölskyldunni sé besta jólagjöfin
og hins vegar ósk um að skipu-
leggja næsta ár með samveru fjöl-
skyldunnar í huga. Þetta er gert
þar sem rannsóknir sýna að
samvera barna og unglinga með
fjölskyldunni skiptir meginmáli
varðandi velgengni þeirra í skóla
ásamt því að vinna gegn áhættu-
hegðun. Það hefur verið útgangs-
punkturinn í öllu okkar starfi.“
Að sögn Eyglóar er áramóta-
kveðjan ein þeirra fjölmörgu leiða
sem Samanhópurinn beitir til að
koma jákvæðum skilaboðum á
framfæri til markhópsins, það er
foreldranna sjálfra. „Við beitum
ekki fyrir okkur einhverjum
hræðsluáróðri, heldur bendum á
mikilvægi samverustunda og þess
að rækta góð tengsl við fjölskyld-
una,“ útskýrir hún og bætir við að
mikil vinna sé framundan, bæði
við að fylgja eftir áramótakveðj-
unum og eins við að ljúka fram-
kvæmdaáætlun fyrir næsta ár.
„Til allrar hamingju bætast
sífellt fleiri við sem leggja hönd á
plóg,“ segir hún. „Sveitarfélög
utan höfuðborgarsvæðisins eru að
koma í samstarfið, en það er
mikilvægt að fá fleiri aðila til sam-
starfs við okkur, ekki síst þá sem
hafa sýn á það sem gerist í smærri
samfélögum. Við vöxum bara og
döfnum með hverju ári.“
roald@frettabladid.is
Saman um áramótin
Eygló Rúnarsdóttir er fulltrúi ÍTR í Samanhópnum sem hvetur íslenskar fjölskyldur til þess að verja áramótunum saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA JÓHANNSDÓTTIR
Tími flugeldanna er kominn
og eflaust hlakka margir til að
fíra þeim upp í loft. Ýmislegt
ber þó að varast til að forðast
slys. Á vef Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar er farið yfir
helstu atriði.
■ Börn yngri en 16 ára fá ekki að
kaupa flugelda.
■ Börn skulu ávallt vera undir
eftirliti fullorðinna í návist
flugelda.
■ Allir eiga að vera með öryggis-
gleraugu. Líka þeir sem horfa á.
■ Flugeldar og smádót sem fylgir
eru ekki leikföng og ekki skal nota
það í hrekki. Oft verða slæm slys
af þeim völdum.
■ Ekki skal standa nálægt flugeld-
um sem sprengdir eru því hávaði
frá þeim getur skaðað heyrnina.
■ Víkja skal vel frá eftir að búið
er að kveikja í flugeldunum.
■ Ekki má handleika flugelda
eftir að kveikt hefur verið á þeim
því þeir geta sprungið fyrirvara-
laust. Ef þeir springa ekki skal
hella yfir þá vatni.
■ Mikilvægt er að hafa trausta
undirstöðu undir flugelda áður en
þeim er skotið upp.
■ Standblys og skotkökur þurfa
einnig stöðuga undirstöðu og
mikið rými.
■ Velja skal skotstað í að minnsta
kosti 20 metra fjarlægð frá
húsum.
■ Það má aldrei kveikja í flugeld-
um á meðan haldið er á þeim.
Að eins á sérmerktum handblys-
um.
■ Alvarlegustu slysin af
völdum flugelda verða
sökum fikts. Mjög
hættulegt er að taka þá í
sundur og búa til heima-
gerðar sprengjur.
■ Halda skal dýrum
innandyra þar sem þau
heyra sem minnst í
sprengingunum. Hundar,
kettir og hestar eru
sérstaklega viðkvæmir
fyrir hávaðanum.
Hvað ber að varast?
Allir eiga að vera með öryggisgleraugu,
líka þeir sem horfa á.
Kampavínsflaskan
opnuð með stæl
NOKKUR VANDI GETUR VERIÐ AÐ
OPNA KAMPAVÍNSFLÖSKU SVO VEL
SÉ.
Tappinn skýst úr flöskunni og
kampavínið flæðir yfir stútinn og
flýtur um allt. Því miður á tappinn
það til að lenda í auganu á ein-
hverjum eða brjóta gler, sem veld-
ur því að sumir óttast að opna
kampavínsflöskuna. Hins vegar er
einfalt að opna flöskuna án nokk-
urrar slysahættu með þessari að-
ferð:
1. Taktu álpappírinn utan af tapp-
anum.
2. Losaðu um
vírinn sem
heldur utan
um tappann.
3. Settu visku-
stykki utan um
tappann og
flöskuhálsinn.
4. Taktu utan
um tapp-
ann (án þess
að taka visku-
stykkið af) og
snúðu honum
varlega, eða
haltu í tappann
og snúðu flösk-
unni varlega.
5. Haltu áfram
að snúa þar til
þú finnur og
heyrir tappann
losna. Taktu
hann þá alveg
úr og helltu í
glösin.
Álfar flytja búferlum um áramót og ekki alltaf gott að verða á þeirra
leið. Þá er gott að fara með þessa þulu: Komi þeir sem koma vilja,
fari þeir sem fara vilja, veri þeir sem vera vilja, mér og mínum að
meinalausu.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRANBETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Fæst í helstu bókabúðum og víðar!
Verð kr. 3.490,- m/vsk
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki