Fréttablaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 6
6 31. desember 2007 MÁNUDAGUR
KJARAMÁL Laun Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra munu hækka um
6,6 prósent um áramót, og laun
annarra seðlabankastjóra um 7
prósent. Um áramótin munu laun
forsætisráðherra hækka um 2
prósent, og laun almennra opin-
berra starfsmenn um 2 til 3 pró-
sent.
Laun seðlabankastjóra hafa
hækkað um tæplega 30 prósent frá
ársbyrjun 2005 til komandi
áramóta. Á sama þriggja ára
tímabili hafa laun forsætisráðherra
hækkað um tæp 18 prósent.
Grunnlaun seðlabankastjóra
hækka um 100 þúsund krónur þann
1. janúar næstkomandi. Það er í
samræmi við ákvörðun bankaráðs
frá 31. maí síðastliðnum.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í júní var ákveðið að hækka
grunnlaun seðlabankastjóra um
100 þúsund krónur frá 1. maí, og
aftur um sömu upphæð 1. janúar
2008. Ástæðan var sögð sú að halda
þyrfti launabili milli æðstu
stjórnenda og millistjórnenda, sem
hefðu hækkað vegna samkeppni
um starfsfólk.
Grunnlaun seðlabankastjóra
voru um 1.097 þúsund krónur á
mánuði þann 1. janúar 2005, en
verða eftir hækkunina 1. janúar
næstkomandi 1.410 þúsund krónur.
Hækkun á grunnlaununum nemur
því um 28,5 prósentum.
Á sama tímabili hafa laun
forsætisráðherra hækkað um 17,8
prósent, úr 915 þúsundum króna í
1.078 þúsund.
Við grunnlaun seðlabankastjóra
bætist bankaráðsþóknun. Hún er í
dag 110 þúsund krónur á mánuði,
en var 78 þúsund árið 2005.
Aðalbankastjórinn er með hærri
greiðslur, en hinir tveir
bankastjórarnir hafa því hækkað í
launum úr 1.175 þúsundum 1.
janúar 2005 í 1.520 þúsund 1. janúar
2008, eða um 29 prósent.
Aðalbankastjóri Seðlabankans,
Davíð Oddsson, hefur átta prósenta
álag ofan á grunnlaun seðla banka-
stjóra, og að auki tvöfalda banka-
ráðsþóknun. Laun Davíðs hafa
hækkað um 401 þúsund frá því
hann tók við starfinu 20. október
2005.
Mánaðarlaun aðalbankastjórans
voru 1.341 þúsund krónur 1. janúar
2005 en verða 1.742 þúsund krónur
1. janúar næstkomandi. Hækkunin
er um 30 prósent.
Á morgun verður aðalbanka-
stjóri Seðlabankans með 62 pró-
sentum hærri laun en forsætisráð-
herra. Fyrir þremur árum var
munurinn tæp 47 prósent, og aukn-
ingin því um 15 prósentustig.
brjann@frettabladid.is
Aðalbankastjóri
Bankastjórar
Grunnlaun
Forsætisráðherra
jan.
´05
mar.
´05
maí.
´05
júl.
´05
sep.
´05
nóv.
´05
jan.
´06
mar.
´06
maí.
´06
júl.
´06
sep.
´06
nóv.
´06
jan.
´07
mar.
´07
maí.
´07
júl.
´07
sep.
´07
nóv.
´07
jan.
´08
millj. kr.
0,8
1
1,2
1,4
1,6
1,8
LAUN SEÐLABANKASTJÓRA
1.340.880
1.175.112
1.097.112
915.170
1.742.298
1.519.535
1.409.535
1.077.917
Hækka mun meira
en aðrir starfsmenn
Grunnlaun seðlabankastjóra hafa hækkað helmingi meira en laun forsætis-
ráðherra á síðustu þremur árum. Mánaðarlaun aðalbankastjóra Seðlabankans
hafa hækkað um 400 þúsund krónur frá því Davíð Oddsson tók við árið 2005.
GEIR H. HAARDE DAVÍÐ ODDSSON
Slysa og bráðamóttaka
Landspítala við Hring-
braut og í Fossvogi er
opin allan sólar hringinn.
Aðalsímanúmer er 543
1000. Beint innval á
bráðamóttöku við Hring-
braut er 543 2050 og
beint innval á slysadeild
Landspítala í Fossvogi er
543 2000.
LÆKNAVAKT
HEILSUGÆSLUNNAR
Vitjanasíminn 1770 er
opinn allan sólar hring-
inn.
Læknavaktin er opin yfir
hátíðirnar frá klukkan 9
til 23. 30.
NEYÐARLÍNAN
Neyðarlínan er opin
allan sólarhringinn í
númeri 112 og svarar
fyrir slökkvilið, sjúkra bif-
reiðar og lögreglu um
allt land.
RAUÐI KROSSINN
1717 er sími Vinalín unn-
ar og Rauða krossins og
er svarað í því númeri
hvenær sólarhrings sem
er yfir hátíðirnar.
STÍGAMÓT
Stígamót eru lokuð yfir
hátíðirnar. Hægt er að
leita til Neyðarmót-
tökunnar.
SÁÁ
Skrifstofur SÁÁ og
Bráðamóttakan á Vogi
verða lokuð á gamlárs-
og nýársdag. Bent er á
slysadeild og bráða-
móttöku Landspítala
komi alvarleg tilfelli
upp.
KVENNAATHVARFIÐ
Kvennaathvarfið er opið
allan sólarhringinn á
gamlárs- og nýársdag.
Síminn er 561 1205 eða
869 7225.
SAMGÖNGUR
STRÆTÓ BS.
Gamlársdagur
Ekið á öllum leiðum
samkvæmt áætlun
laugardaga en akstri
lýkur um það bil klukkan
14.
Nýársdagur
Enginn akstur
Afgreiðslutímar yfir hátíðirnar
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkrahúsið í
Vestmannaeyjum fékk góðar
gjafir í fyrradag þegar velunnar-
ar gáfu sjúkrarúm og tæki að
andvirði um 38 milljóna króna.
Bjarni Sighvatsson athafnamað-
urinn hafði veg og vanda að
gjöfinni, en hann gekk á fund
fyrirtækja og fékk þau í lið með
sér við að styrkja spítalann. Auk
þess kom kvenfélagið Líkn að
gjöfinni, en félagskonur hafa gefið
sjúkrahúsinu tæki á hverju ári.
Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins,
sagði gjafirnar koma sér vel,
árlega fengi sjúkrahúsið um tvær
milljónir til tækjakaupa og því
munaði miklu um góðar gjafir. - bj
Sjúkrahús fékk góðar gjafir:
Búnaður fyrir
38 milljónir
GJAFIR Bjarni Sighvatsson og fjölskylda
færðu sjúkrahúsinu gjafirnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
HEILBRIGÐISMÁL Júlíus Rafnsson, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Grundar, segir mikinn fjölda fólks hafa leitað
eftir hvíldarrými fyrir aldraða ættingja sína
um jólin.
„Það er vöntun á hvíldarrýmum og þegar
fólk á ættingja sem eru ekki það veikir að þeir
þurfi að vera á spítala en ekki það frískir að
þeir geti verið einir heima geta ýmis vanda-
mál komið upp,“ segir Júlíus og nefnir að
honum hafi heyrst að margir sem leituðu til
hans hafa gert áætlanir um að dvelja erlendis
um jólin. Að því væri þó ekki hlaupið ef
amman eða afinn væri of veikur til að vera
einn heima á meðan.
Deild heilabilaðra á Landakoti verður lokað
1. mars á næsta ári og sjúklingar færðir á eina
deild auk þess sem tíu hvíldarpláss á spítalan-
um verða nýtt fyrir heilabilaða. Heilbrigðis-
ráðuneytið bauð þó fyrir skömmu út tuttugu
hvíldarpláss og vonast Júlíus til þess að þau
verði komin í gagnið sem allra fyrst.
Alla jafna hafa verið um þrjátíu til fjörutíu
manns á biðlista eftir hvíldarplássi á Landa-
koti og segir Júlíus að þörfin fyrir þessi pláss
hafi verið mjög vanmetin. „Mér sýnist samt á
öllu að heilbrigðisráðherra sé að vinna að
lausn þessa vanda,“ segir hann en bendir á að
jólaösin hafi sýnt sér svart á hvítu hve mikil
þörf sé eftir hvíldarplássum í samfélaginu.
- kdk
Skortur á hvíldarrýmum fyrir eldri borgara gerði fólki erfitt fyrir um jólin:
Hátíðir í uppnámi vegna skorts á rýmum
JÓLAÖSIN OG ALDRAÐIR Framkvæmdastjóri Grundar
segir að mikill fjöldi fólks hafi leitað eftir því að koma
öldruðum ættingjum sínum í hvíldarpláss um jólin.
FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR
NEPAL, AP Fimm fulltrúar upp-
reisnarhreyfingar maóista voru í
gær skipaðir ráðherrar í ríkis-
stjórn Nepals
og þar með
efnt fyrirheit
um myndun
þjóðstjórnar
lýðveldissinna.
Ákveðið hefur
verið að
afnema hið
aldagamla
konungsveldi
eftir kosningar
í apríl og gera
landið að lýðveldi.
Nýju ráðherrarnir úr röðum
maóísta munu meðal annars taka
við hinu áhrifamikla ráðuneyti
upplýsinga- og fjarskipamála,
sem fjölmiðlar landsins heyra
undir.
Nepalþing samþykkti afnám
konungdæmisins í jólavikunni í
samræmi við samkomulag sem
helstu stjórnmálaflokkarnir
höfðu áður náð.
Á síðasta ári lauk áratugar-
langri uppreisn kommúnista sem
lagði yfir 13.000 manns í valinn.
- eá/aa
Maóistar í stjórn í Nepal:
Þjóðstjórn
lýðveldissinna
GYENENDRA
KONUNGUR
Hefur þú prófað ólögleg
fíkniefni?
Já 26,9%
Nei 73,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Keyptir þú flugelda fyrir
gamlárskvöld?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN