Fréttablaðið - 31.12.2007, Síða 54
46 31. desember 2007 MÁNUDAGUR
menning@frettabladid.is
Á nýársdag kl. 14.45 flytur Útvarpsleikhúsið fyrri hluta upptöku frá
1954 af einu höfuðverki leikbókmennta heimsins, Hamlet eftir Vilhjálm
Shakespeare í leikstjórn Þorsteins Ö. Stephensen. Seinni hlutinn er á
dagskrá 6. janúar kl. 14.25. Fyrir útsendinguna á nýársdag er þáttur um
sviðsetningar á verkinu hér á landi í umsjón Hallmars Sigurðssonar og
Ásdísar Thoroddsen. Verkið er flutt í þýðingu Matthíasar Jochumssonar.
Með hlutverk prinsins fer Lárus Pálsson en hann lék hlutverkið fyrstur
manna hér á landi í leikstjórn Edvins Timroth árið 1946. Meðal annarra
leikenda má nefna Regínu Þórðardóttur, Gest Pálsson, Jón Sigurbjörns-
son og Margréti Guðmundsdóttur í hlutverki Ófelíu. Fjöldi annarra
leikara fer með smærri hlutverk. Sögumaður er Helgi Skúlason sem þá
stóð við upphaf ferils síns. Hljóðritunin er sögulegt plagg og einn þeirra
gripa sem kalla má djásn úr kistum hljóðvarpsins. - pbb
Hamlet í Gufunni
Það verður að teljast líklegt
að tónleikarnir sem fara
fram í Hallgrímskirkju í
dag kl. 17 verði þeir síð-
ustu á árinu. Hefð hefur
skapast í kringum þessa
tónleika sem hafa farið
fram hvern gamlársdag
síðan árið 1993, en á þeim
kveðja þeir Ásgeir H. Stein-
grímsson og Eiríkur Örn
Pálsson trompet leikarar og
Hörður Áskelsson orgel-
leikari gamla árið og fagna
því nýja með lúðraþyt og
orgelleik.
Efnisskrá tónleikanna að þessu
sinni hefst með tveimur verkum
frá 20. öldinni. Leikin verða
Prelude en caonon, fagnaðarfor-
leikur eftir franska tónskáldið
Pierre Max Dubois og Pastorale
eftir Malcolm Holloway. Því næst
er á dagskrá konsert í D-dúr fyrir
tvo trompeta og orgel eftir Johann
Mechior Molter, sem var hirðtón-
listarstjóri í Eisenach í Þýska-
landi í byrjun 18. aldar. Þá leikur
Hörður hina þekktu tokkötu og
fúgu í d-moll eftir Johann Sebasti-
an Bach og síðan hljómar Adagio í
g-moll eftir Albinoni og Giazotto
þar sem Ásgeir og Eiríkur blása í
trompeta og flügelhorn. Tónleik-
unum lýkur með sónatínu eftir
Johann Pezel. Á síðari hluta 17.
aldar var Pezel borgarblásari í
Leipzig. Þetta var mikilvægt starf
því hann sá um tónlistarflutning
úr turnum borgarinnar og kom
fram tvisvar á dag á litlum svöl-
um á turni ráðhússins og lék tón-
list íbúum borgarinnar til yndis-
auka.
Ásgeir H. Steingrímsson, Eirík-
ur Örn Pálsson og Hörður Áskels-
son eru löngu orðnir landsþekktir
tónlistarmenn. Ásgeir og Eiríkur
leika báðir með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands auk þess að vera
virkir í tónlistarlífinu almennt,
meðal annars með Hljómsveit
Íslensku óperunnar, Kammer-
sveit Reykjavíkur og Caput-hópn-
um. Þá hafa þeir leikið einleik
bæði með Sinfóníuhljómsveitinni
og Kammersveitinni.
Hörður Áskelsson hefur gegnt
starfi organista og kantors Hall-
grímskirkju síðan árið 1982. Hann
stjórnar Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Schola cantorum og er
listrænn stjórnandi Kirkjulista-
hátíðar og Sumarkvölds við orgel-
ið. Hörður var borgarlistamaður
Reykjavíkur árið 2002, hefur hlot-
ið Íslensku tónlistarverðlaunin og
tvisvar verið valinn tónlistarmað-
ur ársins af DV. Þá hefur hann
komið fram á fjölmörgum geisla-
diskum ýmist sem organisti eða
sem stjórnandi. Auk starfa sinna
við Hallgrímskirkju er Hörður
jafnframt söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunnar. vigdis@frettabladid.is
Stórt safn af teikningum og textum
eftir einn helsta snilling mann-
kynssögunnar, sjálfan Leonardo da
Vinci, er í hættu vegna myglu.
Skjölin eru geymd í bókasafninu
Biblioteca Ambrosiana í ítölsku
borginni Mílanó.
Skjölin eru frá árunum 1478-
1519 og í þeim fjallar Leonardo um
sum sín helstu hugðarefni, þar á
meðal flugvélar, vopn, stærðfræði
og grasafræði.
Vinnan við að bjarga skjölunum
frá mygluvánni verður óhjákvæmi-
lega afar dýr og forstöðumenn
Ambrosiana-bókasafnsins segja að
því miður sé ekki mögulegt að
hefjast þegar handa við viðgerðir
þar sem nægt fjármagn sé einfald-
lega ekki til staðar. Það verður þó
að teljast bót í máli að myglan er
bundin við lítinn hluta skjalanna
og virðist ekki dreifa hratt úr sér.
Því þarf ekki að hafa bráðar
áhyggjur af ástandinu sem stend-
ur, þó að sjálfsögðu væri best að
lagfæra skemmdirnar sem fyrst.
Skjölin eru geymd í sérstökum
skáp þar sem hita- og rakastigi er
stjórnað af tölvu, en þrátt fyrir
þessa tæknivæddu geymsluað-
ferð hefur varðveislan farið á
versta veg. Bandarískur fræði-
maður varð myglunnar fyrstur
var í fyrra, en skemmdirnar hafa
síðan verið staðfestar af ítölskum
sérfræðingum. Þeir telja að mygl-
an sé hugsanlega afleiðing af við-
gerðastarfi sem unnið var á árun-
um 1968-1972. Þá voru skjölin
líklega lökkuð með lími til að auka
á gljáa þeirra og gera pappírinn
meira aðlaðandi. Þessi meðferð
gæti hafa leitt til myglunnar sem
nú herjar á viðkvæmar minjarn-
ar.
Ambrosiana-bókasafnið hafði
skjölin síðast til sýnis árið 1998 og
hlaut sýningin mikla aðsókn, enda
Leonardo da Vinci gríðarlega vin-
sæll í heimalandi sínu. Ólíklegt
verður að teljast að skjölin verði
aftur til sýnis í bráð vegna skemmd-
anna og því verður almenningur að
bíða og vona að viðgerðunum verði
sem fyrst komið við. - vþ
Mygla í verkum meistarans
Fyrir skemmstu bárust fréttir af því að rússnesk
stjórnvöld hefðu lagt bann við listsýningu á
verkum í eigu rússnesku þjóðarinnar sem fyrir-
hugað hafði verið að sett yrði upp í London nú
í janúar. Breskur almenningur hafði beðið sýn-
ingarinnar með mikilli eftirvæntingu og því voru
vonbrigðin mikil. Breska þingið átti greinilega
erfitt með að horfa upp á svo mikið svekkelsi
nísta hjörtu þjóðar sinnar og greip því til þess
ráðs að veita sérlega flýtimeðferð lögum sem
gera sýninguna mögulega að nýju.
Lögin nýju koma í veg fyrir að afkomendur
upprunalegra eigenda listaverkanna geti gert
tilkall til þeirra á meðan þau eru til sýnis í
Bretlandi. Verkin voru flest í einkaeigu áður en
stjórn kommúnista þjóðnýtti þau og því óttast
rússneska ríkisstjórnin mjög að afkomendurnir
grípi til slíkra aðgerða. Óttinn er á rökum reist-
ur þar sem tilraun var gerð til að gera verkin
upptæk þegar þau voru til sýnis í Sviss fyrir
nokkrum árum.
Í Bretlandi hafa fram að þessu ekki verið í
gildi lög sem koma í veg fyrir slíkar aðgerðir,
en þökk sé framtakssemi breska þingsins
hefur nú orðið breyting þar á. Lögin ganga í
gildi sjöunda janúar næstkomandi sem er rétt
í tæka tíð fyrir opnun sýningarinnar.
Listaverkin eru um þessar mundir í Düssel-
dorf þar sem þau eru til sýnis. Þar sem Rússar
höfðu dregið lán sitt á verkunum til Bretlands
til baka hafði verið ráðgert að verkin færu
beinustu leið heim til Moskvu frá Düsseldorf.
Aðstandendur sýningarinnar í London þurfa
því að hafa hraðar hendur og skipuleggja
flutning sýningarinnar til Bretlands sem fyrst
svo að sýningin geti opnað í London í næsta
mánuði líkt og fyrirhugað var. - vþ
SÍÐUSTU TÓNLEIKAR ÁRSINS Hörður, Ásgeir og Eiríkur æfa fyrir tónleikana. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Síðustu tónleikar ársins
LISTUNNANDINN VLADIMÍR PÚTÍN
Pútín og forsætisráðherra Breta, Gordon Brown,
verða meðal gesta á sýningaropnuninni í
London í janúar.
Málverkasýning möguleg á ný
Kl. 19
Þjóðlagakvöld verður á dagskrá
Rásar 1 kl. 19 í kvöld. Í þættin-
um verða flutt íslensk þjóðlög,
áramótasöngvar og alþýðulög í
flutningi Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, Einsöngvarakórsins,
Kammersveitar Reykjavíkur,
Hamrahlíðarkórsins og fleiri.
LEONARDO DA VINCI Mikilvæg skjöl sem
hann samdi á fimmtándu og sextándu
öld liggja nú undir skemmdum af
völdum myglu.
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarstjóri ::: Ernst Kovacic
Einsöngvari ::: Auður Gunnarsdóttir
FIMMTUDAGINN 3. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDAGINN 5. JANÚAR KL. 17.00 UPPSELT
LAUGARDAGINN 5. JANÚAR KL. 21.00 LAUS SÆTI
ÁRIÐ HEFST MEÐ GLEÐI, SÖNG OG DUNANDI DANSI!
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru
ómissandi í ársbyrjun enda varla hægt að hugsa sér
betri upptakt að nýju ári en danstónlist úr smiðju
valsakóngsins Johanns Strauss, ljúfar óperettuaríur
og aðra sígilda smelli. Miðar á þessa vinsælustu tón-
leika ársins eru fljótir að seljast upp og því enginn
tími til umhugsunar – skelltu þér!
Vínartónleikar
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
2. janúar
11. janúar
19. janúar
25. janúar