Fréttablaðið - 31.12.2007, Page 56
48 31. desember 2007 MÁNUDAGUR
Aðdáendur Ágústs Borgþórs
Sverrissonar bíða með
önd ina í hálsinum eftir því
að komast að hvort hann sé
endanlega hættur að blogga.
Útgefandi hans telur líklegt
að hann snúi aftur innan
tíðar.
„Ég get ekki svarað því. En það
fóru miklu fleiri eintök en 350 frá
okkur þannig að líkur eru á að hann
hafi náð þessu lágmarki sínu,“
segir Steingrímur Steinþórsson,
útgefandi hjá Skruddu.
Ágúst Borgþór Sverrisson, rit-
höfundur og einn af vinsælli blogg-
urum landsins – og sem slíkur oft
nefndur Bloggþór – sendi frá sér
sérkennilega tilkynningu í miðju
jólabókaflóði í tengslum við nýja
„novellu“ sína Hliðarspor. Ef bókin
myndi ekki seljast í meira en 350
eintökum þá ætlaði Ágúst Borgþór
að hætta að blogga. Hann hefur nú
látið af bloggskrifum og bloggsíða
hans liggur í dvala. Þessi yfirlýs-
ing olli nokkru uppnámi meðal
velunnara og aðdáenda síðu Ágústs
sem von er. Og ríkir spenna í her-
búðum þeirra með hvað verður.
Þeirri spennu verður ekki aflétt í
bráð.
Steingrímur telur þó ekki ástæðu
til að örvænta. En óvissa ríkir um
sölutölur meðal útgefenda því
ómögulegt er að segja fyrir um það
hversu mikið af útgefnum bókum
skilar sér aftur úr búðum. Það
muni ekki liggja fyrir fyrr en ein-
hvern tíma í janúar á næsta ári.
„Ég þori því ekkert um það að
segja. Ég er ekki alveg klár á því
hversu mikið var prentað af þess-
ari tilteknu bók. Það var eitthvað
vel á annað þúsund. Og það er lítið
eftir á brettinu.“
Að sögn Steingríms var Skrudda
ekki með neinar metsölubækur
þetta árið. Engin þeirra bóka sem
forlagið gaf út fór í stórum upplög-
um. Hins vegar hafi salan verið
jöfn og gott hljóð sé í útgefendum.
„Morðið á Laugalæk seldist vel
sem og Morðgáta og unglingabókin
Skelmir Gottskálks. Ein bókanna
seldist upp en hún var reyndar
ekki prentuð í stóru upplagi.
Danska frúin á Kleppi,“ segir Stein-
grímur. - jbg
folk@frettabladid.is
> VISSIR ÞÚ?
Friends-leikkonan
Courteney Cox og eigin-
maður hennar David
Arquette eru með heldur
óvenjulega áletrun inni í
giftingarhringum sínum.
Þar stendur „A deal is a
deal“ eða „Samningur er
samningur“.
Söngkonan Lily Allen virðist ekki of upptekin af útlitinu. Hún sagðist
nýlega aldrei ætla að flytja til Bandaríkjanna, þar sem konurnar þar
hefðu allt of miklar áhyggjur af útlitinu. „Manni líður eins og algjöru
hrói í Bandaríkjunum ef maður leggur sig ekki fram. Ég man eftir
einu skipti þegar ég fór í handsnyrtingu í New York og það var
kona við hliðina á mér að láta vaxa á sér handleggina, sem ég
hafði aldrei heyrt um áður. Hún snéri sér að mér og sagði
„Þú þarft að láta gera þetta bráðum.“ Ég sagði bara,
„Nei! Hvað ertu að tala um?“,“ segir söngkonan.
„Þar fer manni að líða illa með sjálfan sig nema
maður sé algjörlega snyrtur alls staðar. Ég hata
þessa nútímalegu hugsun að maður verði að
fara í líkamsrækt tíu sinnum í viku, megi ekki
borða hitt og þetta og verði að fara í brúnkuspraut-
un. Maður lítur bara verr út af allri þessari snyrt-
ingu hvort sem er,“ segir Allen.
Söngkonan er sem stendur andlit hársnyrtivara að
nafni Satin, sem fyrirtækið Braun framleiðir. Hún segist þó
vera ánægðust með eigið hár þegar það er óhreint. „Stundum
nota ég líka ákveðinn úða því mér finnst hárið á mér betra
þegar það lítur út fyrir að vera dálítið skítugt – eins og daginn-
eftir-hár,“ segir söngkonan.
Ekki upptekin af útlitinu
Leikkonan Sienna Miller varð 26 ára gömul í
gær, og samkvæmt heimildum Femalefirst.co.
uk átti hún von á eðalgóðum afmælisgjöfum.
Kærasti Siennu, velski leikarinn Rhys Ifans, ku
hafa lagt mikið á sig til að gleðja stúlkuna á
afmælisdeginum.
Fyrir utan alla pinklana hefur Ifans einnig
skrifað ástarljóð á velsku fyrir kærustuna, en
Sienna hefur einmitt verið að læra tungumálið
til að sýna honum hversu alvarlega hún tekur
samband þeirra. Þá hefur einnig heyrst
orðrómur um að Rhys hafi ætlað sér að
biðja leikkonunnar á afmælisdaginn, en
þau hafa verið saman í nokkra mánuði.
Vinur leikarans sagði í viðtali við The
Sun að Ifans hefði safnað saman tíu
afmælisgjöfum fyrir Siennu. Þær áttu að
verða hluti af afar rómantísku kvöldi
turtildúfnanna, með heilu fjalli af afmælis-
pökkum. „Sienna er í smá aldurskrísu, og
finnst eins og hún hafi ekki gert nógu mikið
við líf sitt,“ segir heimildarmaður The Sun.
Lífsspeki Rhys er hins vegar að lifa og
njóta hvers einasta dags. Til að rífa sína
heittelskuðu upp úr þessum hugsanagangi
samdi hann því ljóð á velsku. Það fjallar um
glæsta framtíð þeirra saman, hversu miklu
Sienna hefur áorkað í lífi sínu og um að njóta
augnabliksins, að sögn vinar leikarans.
„Hann hefur ekki sagt neitt um bónorð, en
ýjaði að því við mig að hann hefði fengið
velskan hönnuð til að búa til sérstakan hring
fyrir hana… sem getur bara þýtt eitt,“ segir
heimildarmaðurinn.
Fékk velskt ljóð í afmælisgjöf
GÓÐAR AFMÆLISGJAFIR
Kærasti Siennu Miller keypti handa
henni haug af afmælisgjöfum, en
sögusagnir herma að í haugnum
hafi leynst trúlofunarhringur.
ALDREI TIL BANDARÍKJANNA
Lily Allen segist aldrei ætla að flytja
til Bandaríkjanna þar sem konur þar
séu of uppteknar af útlitinu.
Bloggþór enn í súrefnistjaldi
ÁGÚST BORGÞÓR Leggur bloggferil sinn að veði fyrir sölutölur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Söngkonan Rihanna segir að vel-
gengni sín undanfarin misseri og
frægðin sem henni fylgir hafi gert
sig einmana og óhamingjusama.
Söngkonan unga viðurkennir að
hún eigi erfitt með að vera stöðugt
í sviðsljósinu og segir að frægð-
inni fylgi ekki eintómt sældarlíf,
þvert á það sem margir kunni að
halda. Þá segist Rihanna einnig
eiga mjög erfitt að treysta því
fólki sem hún vinnur með í tón-
listarbransanum.
„Frægðin er einmanaleg. Í
fyrstu líkaði mér mjög vel við
athyglina sem ég fékk en með tím-
anum verður þetta verra. Lífið er
einhæft og það eru sannarlega
dökkar hliðar í frægðarlífinu. Á
bak við velgengnina liggja vanda-
mál sem valda óhamingju,“ segir
Rihanna.
Einmana söngkona
ÓHAMINGJUSÖM Hin 19 ára gamla
Rihanna líkir tónlistarbransanum við leik
sem hún sé nokkuð góð í að leika.