Fréttablaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 70
62 31. desember 2007 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. löngun 6. kusk 8. arinn 9. gerast
11. í röð 12. sjúga 14. sáldur 16. tveir
eins 17. dvelja 18. for 20. bardagi 21.
slabb.
LÓÐRÉTT
1. fyrst fædd 3. þys 4. hnöttur 5. stal
7. galli 10. skammstöfun 13. efni 15.
skjóla 16. hald 19. guð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lyst, 6. ló, 8. stó, 9. ske,
11. jk, 12. totta, 14. svarf, 16. tt, 17.
una, 18. aur, 20. at, 21. krap.
LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. ys, 4. stjarna, 5.
tók, 7. ókostur, 10. etv, 13. tau, 15.
fata, 16. tak, 19. ra.
„Á meðan sumir útlendingar í
Peking eru enn kvartandi yfir því
að geta ekki farið heim um jólin
hafa aðrir ákveðið að gera þessi jól
eftirminnileg,“ segir í frétt sem
birtist í dagblaðinu China Daily á
jóladag. Umfjöllunarefnið er hópur
sem undir stjórn hins alíslenska
Jóns Bjarka Magnússonar gekk
um stræti borgarinnar í jólasveina-
búningum til þess að skemmta
gestum og gangandi.
„Þetta er hópur sem kallar sig
Practical Fun in the Now og varð
til þegar ég og félagi minn
ferðuðumst um Asíu fyrir tveimur
árum. Hagkvæm skemmtun í
núinu er þessi eina, sanna gleði
sem sprettur aðeins upp í núinu
sem er núna,“ segir Jón Bjarki en
hann hefur starfað sem ensku-
kennari í Peking undanfarna fjóra
mánuði. „Nútíminn er fullur af allskyns bulli og við
sitjum bara og gerum ekki baun í bala. Þess vegna
grípur fólk hugmyndina og gerir eitthvað sem það
myndi annars ekki gera. Þess vegna komu 30 manns út
á lestarstöð og hittu okkur. Við gengum um borgina
allan jóladag, sungum jólasöngva og leyfðum Kínverj-
um að taka myndir af okkur. Við fengum mikla athygli
og fólkið á Torgi hins himneska friðar tók okkur
virkilega vel. Konur hlógu og karlar gláptu, sum
börnin voru hálf skelkuð en jöfnuðu sig fljótt.“
Jón Bjarki og breskur meðleigjandi hans keyptu 40
jólasveinabúninga fyrir gönguna. „Við keyptum þá á
Fuchengmen-stöð en þar var líka hægt að kaupa jólatré
og jólaskraut eins og á næstum hverju götuhorni í
Peking fyrir jólin. Kínverjar fagna fæðingu fjármagns-
ins sem flæðir inn í landið með jólasveinahúfum og
amerískum jólavísum.“ Á aðfangadag segist Jón Bjarki
hafa borðað kalkún á kaffihúsi. „Þeir buðu upp á
jólahlaðborð með öllu tilheyrandi og kór þjónanna söng
jólalög fyrir okkur. Svo opnaði ég pakkana um kvöldið
með kærustunni.“ - sók
Stóð fyrir jólasveinagöngu í Kína
„Ég er ekki búinn að sjá skaupið en Ragnar
[Bragason leikstjóri] er búinn að sjá það og hann
segir að það sé frábært. Og ég verð að treysta
honum,“ segir Jón Gnarr, leikari og einn þriggja
handritshöfunda Áramótaskaupsins í ár. Miðað
við reynslu síðustu ára er nokkuð ljóst að þorri
landsmanna verður límdur fyrir framan skjáinn
kl. 22.30 í kvöld þegar Áramótaskaupið verður
sýnt. Lítið hefur verið látið uppi um efnistök
Skaupsins í ár en eins og von og vísa er munu
landsmenn allir hafa sterkar skoðanir á útkom-
unni. „Sem er mjög undarlegt. Það er ekki eins
og við séum að breyta stjórnarskránni, þetta er
bara þriggja kortera skemmtiþáttur um árið sem
er að líða,“ segir Jón.
Í kynningu RÚV fyrir Skaupið í ár segir meðal
annars að um sé að ræða fyrsta fjölþjóðlega
Skaupið frá upphafi og vekur athygli að erlendir
ríkisborgarar eru í stórum hlutverkum. Hin
danska Charlotte Böving er ein þeirra, en henni
hafa Íslendingar fengið að kynnast að mestu í
gegnum leiksviðið hingað til, auk þess sem hún
fór með hlutverk barnsmóður Georgs Bjarn-
freðarsonar í Næturvaktinni.
„Þetta var ofsalega skemmtilegur tími og það
var sérstaklega gaman að vinna með öllum þess-
um útlendingum. Ég fékk að kynnast ýmsum
menningarheimum á þeim tíma sem tökur stóðu
yfir,“ segir Charlotte, en hún fer með hlutverk
hinnar dönsku Gitte sem er nokkuð
fyrirferðarmikil í Skaupinu að
þessu sinni. „Það var mjög
skemmtilegt að fá að leika sér
með tungumálið og blanda
saman dönsku og íslensku á
eins vitlausan hátt og mögu-
legt var,“ segir Charlotte. - vig
Erum ekki að breyta stjórnarskránni
JÁKVÆÐUR Í ÁR
Jón Gnarr var í
stóru hlutverki í
Skaupi síðasta
árs eins og nú.
FRÁ TÖKUM Ragnar Bragason er við stjórnvölinn í ár og
ber því ábyrgð á útkomunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Já, það gustaði um okkur kobbojana
frá Selfossi. Heldur betur,“ segir
Birgir Nielsen, trymbill Klaufa og
ein lykilpersónan í því sem kallað
var Stóra Klaufamálið og var mjög
á döfinni í upphafi þessa mánaðar.
Rétt til upprifjunar snerist Stóra
Klaufamálið um reikninga sem hin
góðkunna kántríhljómsveit Klauf-
ar frá Selfossi sendi inn til RÚV
vegna útsendingar frá dansleik þar
sem Klaufar spiluðu. RÚV taldi
hins vegar engin efni til að greiða
þá reikninga – að samkomulag væri
um annað. Lyktir málsins urðu svo
þær að RÚV greiddi Klaufum helm-
ing uppsettrar upphæðar. Nú hafa
Klaufar ákveðið að láta þá upphæð,
um 140 þúsund krónur, renna til
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna. Stóð til að Klaufar afhentu
upphæðina á árlegum styrktar-
tónleikum Einars Bárðarsonar sem
halda átti í Háskólabíói í gær. Þeim
var hins vegar aflýst vegna
veðurs.
Að sögn Birgis hlaut Stóra Klaufa-
málið farsælan endi þótt það hafi
verið stormasamt á tímabili. „Rosa-
leg umræða. Engu logið með það.
Þetta snerti greinilega gríðarlega
margan manninn. Við heyrðum frá
mörgum kollegum í bransanum
sem sýndu okkur stuðning. En þetta
mál á eftir að leiða gott eitt af sér,
til dæmis hins góða fundar milli
þeirra Jakobs Frímanns og Páls
Magnússonar, þar sem kom fram
vilji að gera betur í þessum efnum
sem er vel. Vonandi geta menn
unnið saman í þessum bransa í sátt
og samlyndi,“ segir Birgir.
Ekki er að sjá að Stóra Klaufamál-
ið hafi slegið þá Klaufa út af laginu
né að eftirspurn hafi minnkað nema
síður sé. Klaufar eru bókaðir langt
fram á næsta ár en aðdáendur þeirra
geta séð hljómsveitina í kvöld. „Við
komum fram ásamt Bjórbandinu í
Hvíta húsinu á Selfossi. Á heima-
slóðum,“ segir Birgir.
Þá eru Klaufar að undirbúa efni á
aðra plötu sína en hún verður tekin
upp í Nashville líkt og sú fyrsta,
Hamingjan er björt. „Af því konan
mín er svört er vinnuheiti hennar.
Við förum vestur í júní,“ segir
Birgir Nielsen.
jakob@frettabladid.is
BIRGIR NIELSEN: FARSÆLL ENDIR Á STÓRA-KLAUFAMÁLINU
Klaufapeningar renna til
krabbameinssjúkra barna
HAGKVÆM SKEMMT-
UN Jóni Bjarka
Magnússyni er mikið
í mun að fólk læri
að skemmta sér í
núinu. Áhugasam-
ir geta kynnt sér
hugmyndafræði
hans á myspace.
com/practicalfun.
KÍNVERSKIR JÓLASVEINAR Jón Bjarki hreif 30 manns með sér
sem gengu um í jólasveinabúningum í Peking á jóladag og
skemmtu sér og öðrum.
„Ég er nú ekki mikið með kveikt
á útvarpinu í vinnunni. Ég er
með snyrtistofu þannig að ég
hlusta yfirleitt á einhverja ró-
lega slökunartónlist. Ef ég hlusta
á útvarpið er það hins vegar
Rás 2.“
Inga Louise Stefánsdóttir snyrtifræðingur.
KLAUFAR FRÁ SEL-
FOSSI Það gustaði
um kobbojana í Stóra
Klaufamálinu en eftir-
spurnin er nú meiri en
nokkru sinni.
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Landsliðsfyrirliðinn
Eiður Smári Guð-
johnsen vakti athygli
á skemmtistöðum
bæjarins síðustu daga.
Á annan í jólum
skemmti hann
sér með Auðuni
Blöndal sjónvarps-
manni og Agli
„Gillzenegger“
Einarssyni á Rex
í Austurstræti.
Var eftir því tekið að
knattspyrnumaðurinn
knái var í miklum
skemmtanagír. Á
föstudagskvöldið var
Eiður síðan aftur mætt-
ur á Rex og aftur var
Auðunn Blöndal með í
för. Þá þótti rólegra yfir
þeim köppunum.
Annað tvíeyki hefur farið mikinn á
skemmtistöðunum síðustu daga.
Kvikmyndaleikstjórarnir Quentin
Tarantino og Eli Roth hafa látið
sjá sig á B5, Rex og Óliver auk
þess að bíða með almúganum í
leigubílaröð bæjarins. Nærvera
þeirra hefur vakið lukku hjá kven-
peningnum og yfirgnæfðu skrækir
ungmeyja á stundum tónlistina á
Óliver á föstudagskvöldið. Tarantino
og Roth eru hvergi
nærri hættir og
hafa bókað
komu sína á
Rex eftir mið-
nætti í kvöld.
- hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI