Fréttablaðið - 02.01.2008, Page 24
[ ]Hljóðbækur eru góður valkostur fyrir þá sem eiga erfitt með lestur af einhverjum orsökum. Eldra fólki þykir stundum erfitt að halda á þungum bókum, til dæmis þegar lesið er uppi í rúmi, og auk þess getur letrið verið smátt. Hljóðbækur geta þá komið í góðar þarfir.
Nám er ákveðið langhlaup
og það eru sannindi í kvæð-
inu „það er leikur að læra“
segir Jónína Kárdal, starfs- og
námsráðgjafi hjá Háskóla
Íslands. Henni finnst margir
stúdentar gleyma því að nám
er skemmtilegt. Hún telur upp
nokkur góð ráð fyrir komandi
vorönn.
„Helstu pyttirnir eru að byrja ekki
strax,“ segir Jónína þegar hún er
spurð að því hvað stúdentar ættu
helst að varast í upphafi vorannar
nú í janúar. „Það að byrja strax er
ekki endilega að maður sitji sveitt-
ur í átta tíma á dag, heldur að
maður sé meðvitaður um hvað
maður sé að gera. Að hvert skref
sé alltaf í áttina að því að ljúka
verkefninu. Og spyrja sig: Af
hverju ætla ég að geyma þetta þar
til á morgun? Er ég að fresta þessu
af því mér finnst þetta leiðinlegt
eða er ég smeyk við verkefnið?
Maður verður að horfast í augu við
hvað það er sem hindrar mann í að
halda áfram.“
Jónína segir að tímastjórnun sé
mikilvæg til að ná markmiðum.
Mikilvægt er að átta sig á mismun-
andi hlutverkum sem maður gegn-
ir: „Ég er kannski ekki eingöngu
námsmaður heldur líka hluti af
fjölskyldu og stunda vinnu. Orðið
tímastjórnun er ef til vill öfugmæli
því við stjórnum ekki tímanum,
hann ræður sér sjálfur. En við
ráðum hvað við gerum og hvernig
við hugsum um tímann.“
Námsmaður á að líta yfir farinn
veg og sjá hvað hann hefur lært á
undanförnum misserum, athuga í
hvers konar pytti hann datt og læra
af mistökunum. Það má hinsvegar
ekki einblína á mistökin heldur
horfa frekar á það sem vel gekk.
Svo er mikilvægt að búa til
skemmtilegar stundir líka og njóta
þeirra án samviskubits. „Sam-
viskubitið er dragbítur,“ segir
Jónína. „Ef við tölum um próf-
stress og verkefnastress getur það
verið jákvætt afl. Stress kemur
okkur fram úr rúminu á morgnana.
En ef við förum yfir okkar streitu-
þröskuld fer stressið að vinna á
móti okkur.“
Jónína nefnir algeng vinnubrögð
sem hún kennir við slembilukku;
það að fresta því að lesa undir próf
þar til tveimur dögum fyrir prófið
og fá svo átta í einkunn. „Það eru
mjög slæm vinnubrögð, því þú ert
ekki að læra og meðtaka. Markmið
náms er að nota það sem maður
lærði til að yfirfæra yfir á aðrar
aðstæður. Ef við færum ekki
þekkingu yfir í langtímaminnið þá
hverfur hún.“ niels@frettabladid.is
Í upphafi skal endinn skoða
Skólastofurnar fengu líka jólafrí.
Aukin ökuréttindi
Næsta námskeið byrjar 22. ágúst
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Meirapróf-
Nýlegir kennslubílar
9. janú r
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Auglýsingasími
– Mest lesið