Fréttablaðið - 02.01.2008, Qupperneq 37
MIÐVIKUDAGUR 2. janúar 2008
Kylie Minogue
segist hafa
margfaldan
persónuleika.
„Þetta snýst
ekki um að
hafa tvo
mismunandi
persónuleika –
þetta er eins
og að vera með
heila nefnd í
höfðinu á sér,“
segir söngkon-
an, sem segist
eiga svo
margar
samræður við
umrædda
„nefnd“ að hún haldi oft að hún
hafi í raun rætt við vini eða
fjölskyldu um málin.
„Núna um daginn var ég að
segja vini mínum, William Baker,
frá næstu tónleikaferð minni og
hvað við ætluðum að gera og
svona, og hann horfði á mig og
spurði „Hvaða ferð, hvenær?“ Og
allt í einu mundi ég að ég hafði í
rauninni ekki sagt neinum frá því
að ég ætlaði í tónleikaferð nema
sjálfri mér,“ segir söngkonan.
Margfaldur
persónuleiki
MEÐ NEFND Í
HÖFÐINU Kylie
Minogue segist vera
margfaldur persónu-
leiki og á iðulega
langar samræður við
sjálfa sig.
Natalie
Portman er
síðust í langri
röð stjarna
sem taka sér
fyrir hendur
að hanna
tískulínur,
yfirleitt í
samráði við
fyrirtæki eða
reyndari
hönnuði úr
bransanum.
Portman gerir
þetta þó
dálítið eftir
eigin höfði, en
í stað þess að
ganga í lið með vel þekktu
fyrirtæki hyggst hún hanna skó
fyrir verslunina Te Casan í New
York. Portman hefur lengi verið
grænmetisæta, og hyggst
framfylgja þeim gildum í hönnun
sinni. Það má því draga þá ályktun
að ekki verði mikið um leður eða
rúskinn í skólínu Portman. Skórnir
koma á markað ytra í febrúar, og
verðið verður í kringum 12 þúsund
krónur fyrir skóparið.
Portman
hannar skó
EKKERT LEÐUR Natalie
Portman er grænmet-
isæta og því ekki við
því að búast að mikið
verði um leður í skón-
um sem hún hannar
fyrir Te Casan.
Robbie Williams ku áforma að
taka upp tónlistarþráðinn á kom-
andi ári. Fjögurra ára samningur
söngvarans við plötufyrirtækið
EMI rann nýlega út, og samkvæmt
heimildum Femalefirst.co.uk vill
söngvarinn hefna sín á fyrrver-
andi hljómsveitarfélögum sínum í
Take That með glæsibrag nú í ár.
„Hlutirnir hafa ekkert gengið of
vel hjá Robbie nýlega og hann
hefur hvílt sig svolítið á upptök-
um. Síðasta platan hans, Rudebox,
féll ekki í kramið hjá gagnrýnend-
um, og staðan varð enn verri af
því að Take That gekk svo vel án
hans,“ segir heimildarmaðurinn.
„Robbie hefur núna ákveðið að
það sé kominn tími til að endur-
heimta krúnuna. Hann er að vinna
að nýju efni og telur sjálfur að
það sé það besta sem hann hafi
nokkurn tíma samið. Það gæti
meira að segja leynst þar
annað vinsældalistalag á borð
við Angels,“ segir heimildar-
maðurinn.
Endurkoma Take That hefur
gengið afar vel. Plata sveitarinn-
ar, Beautiful World, er enn
í áttunda sæti á met-
sölulista í Bretlandi,
þótt hún sé orðin
ársgömul. Þá er
lagið „Rule the
World“ úr kvik-
myndinni Star-
dust, talið líklegt til að verða til-
nefnt til Óskarsverðlauna sem
besta kvikmyndalagið.
Gary Barlow, forsprakki sveit-
arinnar, kæfði nýlega orðróm
þess efnis að Robbie myndi
taka lagið með hljómsveit-
inni á ný, en hann yfirgaf
sveitina árið 1995. „Það er
ekki pláss fyrir Robbie í
Take That lengur,“ sagði
hann.
Robbie vill hefnd
ÁFORMAR ENDUR-
KOMU Robbie
Williams hyggst
láta til sín taka á
næsta ári og skjóta
þar með Take That
ref fyrir rass.
EKKI PLÁSS FYRIR ROBBIE Forsprakki
Take That sagði á dögunum að það væri
ekki pláss fyrir Robbie í sveitinni lengur.
A
R
G
U
S
0
7
-0
9
3
7
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
20%
afsláttur
af miðaverði