Fréttablaðið - 02.01.2008, Síða 40
36 2. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
Enska úrvalsdeildin:
Fulham-Chelsea 1-2
1-0 Danny Murphy (10.), 1-1 Salomon Kalou
(54.), 1-2 Michael Ballack (62.).
Middlesbrough-Everton 0-2
0-1 Andy Johnson (67.), 0-2 James McFadden
(72.).
Arsenal-West Ham 2-0
1-0 Eduardo Da Silva (2.), 2-0 Emmanuel
Adebayor (18.).
Man. Utd.-Birmingham 1-0
1-0 Carlos Tevez (25.).
Reading-Portsmouth 0-2
0-1 Sol Campell (9.), 0-2 John Utaka (66.).
Aston Villa-Tottenham 2-1
1-0 Olof Mellberg (41.), 1-1 Jermain Defoe (79.),
2-1 Marin Laursen (85.).
STAÐAN Í DEILDINNI:
Arsenal 21 15 5 1 42-16 50
Man. Utd. 21 15 3 3 38-11 48
Chelsea 21 13 5 3 33-16 44
Liverpool 19 10 7 2 33-12 37
Everton 21 11 3 7 37-22 36
Aston Villa 21 10 6 5 37-27 36
Man. City 20 10 6 4 27-22 36
Portsmouth 21 9 7 5 31-20 34
Blackburn 20 8 6 6 27-28 30
West Ham 20 8 5 7 25-19 29
Newcastle 20 7 5 8 27-31 26
Tottenham 20 6 6 8 41-36 24
Reading 21 6 4 11 29-44 22
M‘brough 21 5 5 11 18-35 20
Birmingham 21 5 4 12 22-32 19
Bolton 20 4 5 11 22-32 17
Sunderland 20 4 5 11 20-39 17
Wigan 20 4 4 12 20-36 16
Fulham 21 2 9 10 22-37 15
Derby 20 1 4 15 10-45 7
MARKAHÆSTU LEIKMENNIRNIR:
Cristiano Ronaldo, Man. Utd. 13
Emmanuel Adebayor, Arsenal 12
Nicolas Anelka, Bolton 10
Robbie Keane, Tottenham 10
Roque Santa Cruz, Blackburn 10
Benjani, Portsmouth 9
Fernando Torres, Liverpool 9
Yakubu, Everton 9
Dimitar Berbatov, Tottenham 8
Dave Kitson, Reading 8
Carlos Tevez, Man. Utd. 8
FLESTAR STOÐSENDINGAR:
Cesc Fabregas, Arsenal 11
Dimitar Berbatov, Tottenham 8
Salomon Kalou, Chelsea 8
Nicky Shorey, Reading 8
Ashley Young, Aston Villa 8
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Chris Mort, stjórnarfor-
maður Newcastle, hefur ítrekað í
fjölmiðlum að starf Sam Allar-
dyce, knattspyrnustjóra liðsins,
sé ekki í hættu þrátt fyrir miklar
vangaveltur þess efnis að Mike
Ashley, eigandi liðsins, vilji losa
sig við Stóra Sam.
„Það er verið að orða nýja og
nýja menn við stjórastöðuna hjá
Newcastle og við erum ekki einu
sinni að leita að nýjum stjóra.
Mér finnast þessar vangaveltur
vera orðnar dálítið þreytandi,“
sagði Mort en Newcastle-hetjan
Alan Shearer og Martin Jol hafa
meðal annarra verið orðaðir við
starfið á undanförnum dögum og
vikum.
Allardyce virðist sjálfur
pollrólegur yfir þessu öllu saman.
„Ég hef engar áhyggjur hvað
varðar Ashley og Mort. Þeir finna
alveg fyrir pressunni eins og ég
og við látum ekki utanaðkomandi
áhrif stjórna okkur. Hvað varðar
Alan Shearer, þá er hann mikils
metinn hér í Newcastle og verður
það áfram og það breytir stöðu
minni ekkert,“ sagði Stóri Sam
keikur. - óþ
Chris Mort, Newcastle:
Erum ekki að
leita að stjóra
KEIKUR Stóri Sam lætur sögusagnir um
framtíð sína hjá Newcastle ekki á sig fá.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Fulham og Chelsea mætt-
ust í Lundúnaslag í ensku úrvals-
deildinni í hádeginu í gær og Roy
Hodgson, nýráðinn stjóri Fulham,
varð að sætta sig við tap í sínum
fyrsta leik með
liðið.
Hodgson fékk óskabyrjun á
þjálfaraferli sínum hjá Fulham
þegar liðið fékk dæmda víta-
spyrnu strax á 10. mínútu gegn
Chelsea eftir að Joe Cole brá
Moritz Volz í teignum en snerting-
in virtist þó ekki vera mikil.
Danny Murphy skoraði af
öryggi úr spyrnunni og Ful-
ham því óvænt komið með
forystu í leiknum. Chelsea
virkaði kraftlítið í fyrri hálf-
leik og staðan var enn 1-0 þegar
fyrri hálfleikur var flautaður af. Í
seinni hálfleik mætti allt annað
Chelsea-lið til leiks og Fulham átti
í erfiðleikum með hratt spil liðs-
ins. Salomon Kalou jafnaði leikinn
með skalla eftir að hornspyrna
Julianos Belletti hafði ratað á koll-
inn á Alex og þaðan til Kalou sem
stangaði boltann af miklu harð-
fylgi. Þjóðverjinn Michael Ball-
ack sá svo um að innbyrða sigur
Chelsea með því í fyrsta lagi að
fiska vítaspyrnu eftir baráttu við
Clint Dempsey í vítateig Fulham
og svo í öðru lagi að skora úr
spyrnunni. Markið reyndist sigur-
mark leiksins og Chelsea náði að
styrkja stöðu sína í þriðja sæti
deildarinnar og Avram Grant,
stjóri liðsins, var afar sáttur í
leikslok.
„Við höfum tekið 12 stig yfir
hátíðirnar og það er mikið ánægju-
efni. Við fórum rólega af stað í
þessum leik eins og virðist jafnan
vera þegar við leikum snemma
dags, en við náðum að koma til
baka og skora tvö mörk og hefðum
hæglega getað skorað fleiri,“ sagði
Grant en starfsbróðir hans Roy
Hodgson á erfitt verk fyrir hönd-
um í fallbaráttunni með Fulham
þó svo að ákveðin batamerki hafi
verið á liðinu í leiknum.
„Það er alltaf svekkjandi þegar
maður tapar með mörkum úr föst-
um leikatriðum því það er alltaf
hægt að koma í veg fyrir þau.
Sumir myndu segja að brotið hefði
verið á Ballack og sumir myndu
segja að þetta hefði alls ekki verið
víti, en ég er sáttur við framlag
leikmanna minna og baráttu,“
sagði Hodgson. - óþ
Chelsea hafði betur gegn Fulham í fyrsta leik liðsins undir stjórn Roy Hodgson í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Ballack bjargaði Chelsea í Lundúnaslag
LEIÐTOGI Michael Ballack bar fyrir-
liðaband Chelsea í fjarveru John
Terry og Frank Lampard í gær og
skoraði sigurmark leiksins.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Englandsmeistarar
Manchester United og topplið
Arsenal voru í eldlínunni í ensku
úrvalsdeildinni í gær og nældu
sér bæði í þrjú stig.
Arsenal tók forystu þegar rétt
rúm mínúta var liðin af leiknum
gegn West Ham með stórglæsi-
legu marki Eduardo Da Silva.
Cesc Fabregas átti þá hnitmiðaða
sendingu á Da Silva sem tók bolt-
ann á kassann og afgreiddi hann
svo glæsilega í fjærhornið og
Robert Green, markvörður West
Ham, átti aldrei möguleika. West
Ham reyndi að svara og komst
nálægt því þegar Anton Ferdin-
and átti skot eftir hornspyrnu
sem Gael Clichy bjargaði á línu.
Arsenal var hins vegar ekki hætt
og á 18. mínútu átti umræddur
Clichy sendingu inn fyrir vörn
West Ham á Emmanuel Adebayor
sem lék á Green og var þá nálægt
því að missa boltann aftur fyrir
endalínuna en náði með einhverj-
um ótrúlegum hætti að snúa bolt-
anum í átt að markinu. Boltinn
rúllaði aftur fyrir Matthew
Upson, varnarmann West Ham
sem kom á fleygiferð í skotlínuna,
í stöngina og inn. Frábært mark
hjá Adebayor úr vægast sagt
þröngu færi. Markið var
mikið áfall fyrir West Ham
sem var búið að reyna allt
sitt til að jafna leikinn. West
Ham varð svo fyrir öðru
áfalli á 37. mínútu þegar
Freddie Ljungberg,
fyrrverandi leikmaður
Arsenal, fór meiddur af
leikvelli.
Leikurinn var ekki
jafn fjörugur í seinni
hálfleik og mótspyrna
West Ham minnkaði
eftir því sem leið á leik-
inn. Sigur Arsenal var
aldrei í hættu og aðeins
spurning með hve
mörgum mörkum Ars-
enal myndi vinna leik-
inn. Að endingu urðu
mörkin hins vegar bara tvö en
góð þrjú stig í hús og Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, var
ánægður með lið sitt í
leikslok.
„Við unnum vinnu
okkar vel í byrjun leiks-
ins og eftir það stjórnuð-
um við honum algjör-
lega,“ sagði Wenger
sáttur.
Töfrar Tevez
Flestir bjuggust við
auðveldum sigri
Manchester United
þegar liðið tók á móti
Birmingham á heima-
velli sínum Old Trafford
í gær. Sir Alex Ferguson,
stjóri United, gerði fimm breyt-
ingar á liði sínu frá því í síðasta
leik gegn West Ham en Wayne
Rooney var enn frá vegna veik-
inda og Ryan Giggs var hvíldur.
Carlos Tevez og Cristiano Ron-
aldo voru saman í sóknarlínu
United og það voru einmitt þeir
tveir sem skópu eina mark leiks-
ins á 25. mínútu með glæsilegu
samspili. Tevez var þá staddur
á miðju vallarins og lyfti boltan-
um yfir sig, beint á Ronaldo sem
gaf skemmtilega hælspyrnu inn
í hlaupalínu Tevezar sem komst
einn inn fyrir vörn Birmingham
og átti ekki í erfiðleikum með að
afgreiða boltann í netið framhjá
Maik Taylor í marki Birming-
ham. Tevez fór svo meiddur af
leikvelli eftir að hafa verið tækl-
aður fyrr í leiknum og þó svo að
United hafi ekki náð að bæta við
marki, þá gátu þeir verið ánægð-
ir með að halda hreinu.
„Það var mikilvægt fyrir
okkur að koma til baka eftir að
hafa fengið á okkur tvö slæm
mörk gegn West Ham og mikil-
vægt að halda markinu hreinu.
Við getum ekkert verið að horfa
á hvað Arsenal er að gera heldur
verðum við bara að halda okkar
striki og sjá til þess að við stönd-
um okkur,“ sagði Rio Ferdinand,
varnarmaður United, í leikslok.
Everton og Aston Villa á flugi
Everton tryggði stöðu sína í efri
hluta deildarinnar með tveimur
mörkum í seinni hálfleik gegn
Middlesbrough sem gengur ekk-
ert á heimavelli í deildinni.
Aston Villa sigraði Tottenham í
kaflaskiptum leik, en Martin
Laursen tryggði Villa þrjú stig
með skallamarki á 85. mínútu.
omar@frettabladid.is
Arsenal og Man. Utd. tóku þrjú stig
Toppliðin Arsenal og Manchester United unnu bæði leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í gærdag. Arsenal
lenti aldrei í erfiðleikum gegn West Ham á Emirates-leikvanginum og United gekk erfiðlega að skora en
sigur liðsins var þannig séð tæplega í hættu. Everton og Aston Villa héldu einnig góðu gengi sínu áfram.
MEÐ SNUÐ Carlos Tevez
fagnaði marki sínu með
fremur sérstökum hætti.
NORDIC PHOTOS/GETTY
BRÖGÐÓTTUR Emmanuel Adebayor leikur boltanum hér framhjá Robert Green, markverði West Ham, í leiknum í gær. Í framhald-
inu skoraði hann svo seinna mark Arsenal í leiknum með hnitmiðuðu skoti úr mjög svo þröngu færi við endalínu vallarins.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Reading og Portsmouth
mættust í sannkölluðum Íslend-
ingaslag á Madejski-leikvangin-
um í gær þar sem Ívar Ingimars-
son var í byrjunarliði heimamanna
en Hermann Hreiðarsson var í
byrjunarliði gestanna sem höfðu
betur í leiknum. Brynjar Björn
Gunnarsson tók út leikbann hjá
Reading og var því ekki með.
Leikur Reading og Portsmouth
byrjaði fjörlega og lykilatriði átti
sér stað strax á 3. mínútu leiksins
þegar Ibrahim Sonko, varnar-
manni Reading, var réttilega vikið
af leikvelli fyrir að brjóta á Benj-
ani. Portsmouth fékk í þokkabót
víti en Niko Kranjcar, hinn króat-
íski framherji Portsmouth, fór illa
af ráði sínu og misnotaði víta-
spyrnuna með því að skjóta í
stöng. Portsmouth var þó ekki
lengi að nýta sér liðsmuninn og á
níundu mínútu skoraði varnar-
tröllið Sol Campbell fyrsta mark
leiksins eftir mistök Marcusar
Hahnemann í marki Reading.
Portsmouth hélt áfram að sækja í
fyrri hálfleik án þess þó að ná að
bæta við marki en Kevin Doyle
átti besta færi Reading þegar skot
hans fór af David James, mark-
verði Portsmouth, og rúllaði rétt
framhjá markinu.
Í seinni hálfleik komu yfirburð-
ir Portsmouth vel í ljós og Reading
átti greinilega erfitt uppdráttar
með að ráða við spilamennsku
Portsmouth einum færri. John
Utaka innsiglaði svo sigur
Portsmouth á 66. mínútu þegar
hann fékk sendingu upp hægri
kantinn og stakk Nicky Shorey,
varnarmann Reading, hreinlega
af á sprettinum og afgreiddi
boltann snyrtilega framhjá
Hahnemann í markinu og þar við
sat. - óþ
Reading og Portsmouth áttust við í „Íslendingaslag“ Ívars Ingimarssonar og Hermanns Hreiðarssonar:
Hermann hafði betur gegn Ívari
BARÁTTA Hermann
stekkur hér upp í skalla-
einvígi við Dave Kitson.
NORDIC PHOTOS/GETTY