Fréttablaðið - 09.01.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
> Markaðurinn
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
225
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 9. janúar 2008 – 1. tölublað – 4. árgangur
12-13
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
www.lausnir.is
fi nndu rétta tóninn…
www.trackwell .com
Tíma- og verkskráning
fyrir starfsmenn og tæki
FORÐASTÝRING
Nordic Partners í matvæl-
in Íslenska fjárfestingarfélagið
Nordic Partners keypti Hamé,
stórt matvælafyrirtæki í Mið-
og Austur-Evrópu. Starfsmenn
Hamé eru um þrjú þúsund og
veltan í fyrra nam sautján millj-
örðum íslenskra króna. Kaup-
verð er trúnaðarmál.
Wessmann tekur stjórnarsæti
Róbert Wessman, eigandi fjár-
festingarfélagsins Salts og for-
stjóri Actavis, hyggst fara fram á
sæti í stjórn Glitnis á næsta hlut-
hafafundi, en Salt keypti á dögun-
um tveggja prósenta hlut í Glitni
fyrir um 7,5 milljarða króna.
Nótt hinna löngu hnífa Banka-
stjóra og tveimur lykilstarfs-
mönnum Icebank var óvænt sagt
upp um áramótin. Stjórnarfor-
maður og nýráðinn bankastjóri
segja breytingar á framkvæmda-
stjórn eiga sér eðlilegar skýr-
ingar.
Undirmarkaður í Kauphöll-
inni Nýr markaður fyrir ýmis
hlutabréfatengd réttindi var opn-
aður í Kauphöllinni, OMX Nordic
Exchange Iceland, í gær. Í við-
skiptakerfi Kauphallarinnar ber
nýi markaðurinn heitið „OMX
ICE Equity Rights“.
600 milljarða gjalddagi
Fram kom að alls væru rúmlega
600 milljarðar íslenskra króna á
gjalddaga hjá bönkunum á árinu
2008. Verg landsframleiðsla árið
2006 nam tæplega tólf hundruð
milljörðum, svo það sem bank-
arnir greiða nemur ríflega helm-
ingi þess.
„Ég tek sætinu með brosi á vör ef eftir því verður
kallað,“ segir Orri Hauksson, talsmaður Novators í
Finnlandi, „en aðalmálið er að ná í gegn breyting-
um í þágu hluthafanna.“
Novator vill fá tvo stjórnarmenn í finnska fjar-
skiptafélaginu Elisa á hluthafafundi sem haldinn
verður 21. þessa mánaðar.
Novator hefur lagt til ýmsar breytingar á Elisa.
Novator er stærsti hluthafinn í Elisa og á yfir 11,5
prósenta hlut í félaginu.
Björgólfur Thor Björgólfsson segir í viðtali
við finnska dagblaðið Helsingin Sanomat að Orri
verði annar fulltrúa félagsins, fáist menn í stjórn.
Hinn fulltrúi Novators verði annar Íslendingur eða
Breti.
Orri Hauksson hefur starfað fyrir Novator um
skeið en áður vann hann fyrir Símann, auk þess að
hafa verið aðstoðarmaður forsætisráðherra.
Novator hefur undanfarið aukið hlut sinn í
félaginu.
Finnskir lífeyrissjóðir og tryggingafélög sem
eru andsnúin hugmyndum Novators um breytingar
á félaginu hafa nýlega aukið hlut sinn.
- ikh / Sjá síðu 16
Vilja Orra Hauksson í stjórnina
Novator vill fá tvo stjórnarenn í finnska fjarskiptafélaginu Elisa.
Ekki verður
tekin ákvörðun
um skráningu
Promens í OMX
kauphöll Íslands
fyrr en undir
lok þessa árs, að
sögn Ragnhildar
Geirs dóttur, for-
stjóra félagsins.
Upphaflega
var stefnt að
skráningu félagsins í Kauphöllina
á síðasta ári, en þá voru horfur á
að hægt yrði að skrá hér hluta-
bréf í evrum líkt og félagið stefnir
á að gera.
Ragnhildur segir þó að núna séu
það erfiðar markaðsaðstæður sem
ráði því að forsvarsmenn félags-
ins vilji bíða og sjá hver þróunin
verður áður en næstu skref verða
tekin. Þá verður að öllum líkind-
um heldur ekki fyrr en undir mitt
ár sem hægt verður að skrá hluta-
bréf í evrum, samkvæmt upplýs-
ingum frá Verðbréfaskráningu.
- óká / Sjá síðu 18
Skráningu
Promens
frestað
RAGNHILDUR
GEIRSDÓTTIR
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Hingað í fjármálaráðuneytið hafa borist kærur
vegna synjunar á beiðni um uppgjör í erlendri
mynt,“ segir Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra.
Samkvæmt heimildum Markaðarins synjaði Árs-
reikningaskrá beiðni Kaupþings um heimild til að
gera bókhald sitt upp í evrum. Í kjölfarið vísaði
Kaupþing málinu til fjármálaráðherra.
Kaupþing sótti um heimild til uppgjörs í evrum
í fyrra.
Ársreikningaskráin tekur slíkar ákvarðanir. Sam-
kvæmt reglugerð, sem tók gildi um miðjan febrúar
í fyrra, þarf Ársreikningaskráin að leita umsagn-
ar Seðlabankans áður en hún samþykkir eða synjar
slíkum beiðnum, þegar banki á í hlut.
Ársreikningaskráin er innan vébanda ríkissak-
sóknara. Hann tjáir sig hvorki um niðurstöðu Árs-
reikningaskrár né umsögn Seðlabankans.
Bankastjórn Seðlabankans vísar á ríkisskatt-
stjóra um málið.
Skilyrðin fyrir því að fá að gera bókhald sitt upp
í erlendri mynt koma fram í annarri grein reglu-
gerðarinnar.
Þau eru að félag hafi meginstarfsemi sína erlendis
í erlendum gjaldmiðli. Það eigi erlend dótturfélög
eða hlutdeild í erlendum félögum og meginviðskipti
við þau séu í erlendri mynt. Félag hafi meginstarf-
semi hér á landi en hafi meirihluta tekna sinna frá
erlendum aðilum, í erlendri mynt. Þá þarf félag að
vera af tiltekinni stærð.
Kaupþing virðist uppfylla öll skilyrði reglugerðar-
innar.
Vera má að umsögn Seðlabankans um beiðni
Kaupþings hafi verið neikvæð eða að formgalli hafi
verið á beiðninni. Hvorugt fæst staðfest.
Talsmaður Kaupþings vildi það eitt segja að beðið
sé niðurstöðu fjármálaráðuneytisins.
Eftir því sem Markaðurinn kemst næst er búist
við því að úrskurðað verði í málinu í þessum mán-
uði.
Straumur-Burðaráss hefur leyfi til að færa bók-
hald sitt í erlendri mynt og hefur gert það um nokk-
urra mánaða skeið. Straumur sótti um þetta og fékk
beiðni sína afgreidda áður en reglugerðin um um-
sögn Seðlabankans var sett.
Kaupþing kærir til
ráðherra vegna evru
Seðlabankinn veitir Ársreikningaskrá umsögn um beiðni
banka til að færa bókhald í evru. Hún synjaði beiðni
Kaupþings um það. Bankinn kærði til fjármálaráðherra.
Mikil sala lúxusvarnings
Kampavínið flæddi
sem aldrei fyrr
Allt loft úr bankabólunni
Framhaldið
með öllu óráðið
Stórveldin slást
Man. Utd
ríkast
á ný
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
9. janúar 2008 — 8. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Ármúla 42 · Sími 895 8966
Lærðu kínversku áskemmtilegan hátt
Námskeið
byrjar
13. janúar
Sæmundur Kristjánsson matreiðslumeistari
naut hátíðanna í dýrindis jólakúlu ítölsku
Alpanna.
„Ég var svo lánsamur að vera í hópi 200 Íslendinga
sem Árni Sæmundsson smalaði saman í jólaskíðaferð
til fjallaþorpsins Santa Katarina í ítölsku Ölpunum,
en þar hefur skíðaferðamennska legið niðri um langa
hríð þar til nú að uppbygging er hafin aftur. Við vígð-
um þar spánnýtt hótel og áttum fjöllin ein, því enn er
staðurinn laus við massatúrisma en fullur af frið-
sæld, fámenni og fegurð,“ segir Sæmundur Kristj-
ánsson, eigandi veitingastaðanna Á næstu grösum,
sem í þessari ferð eyddi jólum fjarri Íslandsbyggð í
fyrsta sinn.
„Santa Katarina stendur í þjóðgarðar kó
boði á hverjum stað, og þarna skorti ekkert upp á
hátíðleikann eða velgjörning í mat og drykk,“ segir
Sæmundur og rifjar upp aðfangadag í skíðabrekkun-
um.
„Þarna vorum við frúin og krakkarnir að skíða í
frábæru færi þegar klukkan sló fjögur og við sögðum
börnunum að nú væri aðfangadagur jóla. Þvílík for-
réttindi; ekkert stress, bara friður og kyrrð í fjall-
garðinum, og jólin að koma. Svo dóluðum við okkur
niður brekkurnar til að fara í jólabaðið og borða jóla-
matinn á hótelinu, og héldum síðar um kvöldið lítil jól
í okkar vistarverum þar sem við opnuðum fáeina
pakka og höfðum það notalegt saman,“ segir Sæmund-
ur sem er alveg til í að sleppa takinu á í l
jólum aftur til að k
Skíðað í jólakorti
BENSÍNIÐ SPARAÐRunólfur Ólafsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda kann ýmis ráð til að spara eldsneyti. Hann ráðleggur fólki meðal annars að aka á löglegum
hraða.
BÍLAR 2
MISSTI AF FLUGIReynir Freyr Reynisson lagðist í þriggja vikna lestarferðalag um Evrópu fyrir tveimur árum, eftir að hafa misst af flugi heim frá Róm.
FERÐIR 3
Sæmundur Kristjánsson er eigandi veitingahússins Á Næstu grösum og naut þess að láta stjana við sig í mat og drykk í ítölsku Ölpunum yfir hátíð-arnar á milli þess sem hann skíðaði í púðursnjó ofan við fjallaþorpið Santa Katarina.
FR
ÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Laugavegi 51 • s 5
nýir bílarMIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 Skoda Fabia CombiNýjasta afurðin frá Skoda þykir vera vönduð, stílhrein og laus við prjál. BLS. 8
...ég sá það á visir.is
SÆMUNDUR KRISTJÁNSSON
Naut jólahátíðarinnar
í ítölsku Ölpunum
ferðir bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
Langar heim
Sigfús Sigurðsson
vill flytja aftur heim
til Íslands af því
að hann saknar
sonar síns.
ÍÞRÓTTIR 30
Brennandi áhugi
nauðsynlegur
Kristinn Óskarsson
dæmdi þúsundasta
leikinn fyrir
KKÍ.
TÍMAMÓT 22
Vegið að lýðræðinu
„Er það lýðræði að einstaklingur
setjist í forsetastól með stuðningi
minnihluta þjóðar og sitji þar í
áskrift án kosninga til eilífðar-
nóns?“ spyr Ástþór Magnússon.
UMRÆÐAN 20
Tímarnir okkar á
vínyl
Sprengjuhöllin
gefur út vínyl-
plötu og heldur
í vinnubúðir.
FÓLK 28
EGILL „GILLZENEGGER“ EINARSSON
Stendur í ströngu með
Mercedes Club
Hörð átök í lyftingasalnum fyrir Eurovision.
FÓLK 34
NÝIR BÍLAR
Toyota Land Cruiser,
bíllinn sem beðið var eftir
Sérblað um nýja bíla
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
SKÚRIR EÐA ÉL - Í dag verður
fremur hæg breytileg átt en þó
strekkingur vestast á Vestfjörðum.
Víða lítilsháttar skúrir eða él nú
með morgninum en styttir upp á
austurhluta landsins um hádegi.
Hiti nálægt frostmarki með strönd-
um.
VEÐUR 4
VÍSINDI Hin fullkomna lausn á því hvernig spila eigi
damm án þess að tapa er ein af tíu merkilegustu
uppgötvunum síðasta árs samkvæmt vísindatíma-
ritinu Science. Dr. Yngvi Björnsson, dósent við
tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, fann
lausnina ásamt teymi kanadískra vísindamanna,
og er einn af aðalhöfundum greinar um lausnina
sem birtist í tímaritinu í sumar.
Listinn yfir tíu merkilegustu uppgötvanirnar
var birtur á vefsíðu tímaritins, sem er eitt það
virtasta í vísindaheiminum, í lok desember. Lausn
Yngva og félaga lenti í tíunda sæti, á eftir
uppgötvunum á borð við erfðamengjagreiningu,
nýja tegund rafeindasnúnings, endurforritun
frumna og notkun minninga til að spá fyrir um
framtíðina.
„Þetta er fyrst og fremst skemmtileg viðurkenn-
ing, en hefur kannski ekki mikil áhrif,“ segir
Yngvi. „Það var í sjálfu sér meiri viðurkenning að
greinin um lausnina hafi verið birt í tímaritinu
síðasta sumar, og hafði mun
meiri áhrif. Þetta er eitt virtasta
vísindatímarit heims og erfitt að
fá greinar sínar birtar þar.“
Lausnin á dammtaflinu er ekki
eina afrekið sem Yngvi vann í
fyrra, en hann varð einnig
heimsmeistari í gervigreind í
fyrrasumar ásamt Hilmari
Finnssyni, meistaranema í
tölvunarfræði við Háskólann í
Reykjavík.
Yngvi segir helsta lærdóminn
sem draga megi af öllu þessu
vera þann að Íslendingar þurfi ekki að hafa neina
minnimáttarkennd þótt þjóðin sé fámenn og
rannsóknarfjármagn oft af skornum skammti. „Við
erum alveg fullgildir meðlimir í vísindasamfélag-
inu, við þurfum ekki að hafa neina minnimáttar-
kennd.“ - sþs
Vísindatímaritið Science birtir lista yfir tíu stærstu uppgötvanir síðasta árs:
Íslensk uppgötvun ein sú merkasta
DR. YNGVI
BJÖRNSSON
SKIPULAGSMÁL Kostnaður Reykja-
víkurborgar vegna friðunar hús-
anna við Laugaveg 4 til 6 gæti numið
hundruðum milljóna króna. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
munu eigendur lóðanna ekki selja
þær fyrir minna en sex hundruð
milljónir. Endurbygging húsanna
getur síðan kostað allt að hundrað
milljónir.
Húsafriðunarnefnd samþykkti í
gær að beina þeim tilmælum til
menntamálaráðherra að húsin verði
friðuð. Nefndin komst að þeirri nið-
urstöðu að fyrirhugaðar byggingar
á reitnum rýri varðveislugildi
Laugavegs 2 og séu úr takti við þá
götumynd sem húsin séu mikilvæg-
ir hlekkir í.
Menntamálaráðherra hefur
aldrei hafnað tilmælum nefndar-
innar um friðun húsa.
Kaupangur eignarhaldsfélag
hugðist rífa húsin og reisa í stað
þeirra fjögurra hæða hótel. Öll til-
skilin leyfi höfðu fengist til þess,
meðal annars deiliskipulag frá 2002,
samþykki byggingarfulltrúa fyrir
niðurrifinu og byggingu hótelsins
frá því í ágúst í fyrra og bygginga-
leyfi til að rífa húsin frá 2. janúar
síðastliðnum.
Hefja átti niðurrif húsanna í síð-
ustu viku, en því var frestað um
tvær vikur svo hægt væri að flytja
þau á annan stað.
Í yfirlýsingu frá forsvarsmönn-
um Kaupangs segir að með ólíkind-
um sé að húsafriðunarnefndin taki
sig nú til, eftir að hafa fylgst með
undirbúningi við framkvæmdir á
lóðinni undanfarin ár, og sendi ráð-
herra beiðni um að friða húsin.
„Verði slík ákvörðun tekin mun
það leiða til þess að fjárfesting og
kostnaður sem nemur hundruðum
milljóna króna ónýtist og bóta-
skylda skapast sem lendir á skatt-
greiðendum,“ segir í yfirlýsing-
unni. Undir hana skrifa Bjarki
Júlíusson og Jóhannes Sigurðsson.
Nákvæmari tölur um upphæð
bótakröfunnar fengust ekki hjá eig-
endum Kaupangs. Jón Guðmunds-
son, fasteignasali og eigandi Fast-
eignamarkaðarins, segir ljóst að sú
tala verði ekki undir sex hundruð
milljónum króna. Þá telji hann ekki
með uppkaup á eignum í kringum
lóðirnar við Laugaveg, sem Kaup-
angur hafi keypt vegna fram-
kvæmdanna.
Nikulás Úlfar Másson, formaður
húsafriðunarnefndar, segir að
ákvörðunin sé vissulega tekin á
seinustu stundu en samkvæmt
alþjóðlegum samþykktum um
verndun menningararfsins sé aldrei
of seint að friða hús meðan þau
standi enn uppi.
Þorsteinn Bergsson, fram-
kvæmdastjóri Minjaverndar, segir
erfitt að meta kostnað við endur-
byggingu húsanna, en gróflega
megi áætla að hann sé hátt í hundr-
að milljónir króna. - sþs
Friðun gæti kostað borgina
hundruð milljóna króna
Húsin við Laugaveg 4 til 6 verða friðuð samkvæmt tillögu húsafriðunarnefndar. Eigendur segjast munu
krefjast hundruð milljóna í skaðabætur ef af því verður. Með ólíkindum sé að friða eigi húsin nú.
VIÐSKIPTI Seðlabankinn leggst gegn
því að Kaupþing fái að færa bók-
hald sitt í evrum í umsögn sinni til
Ársreikningaskrár.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins vildi Ársreikningaskrá
heimila bankanum að færa
bókhaldið í evrum, en þó með því
skilyrði að svo yrði ekki fyrr en
yfirtaka bankans á hollenska
bankanum NIBC verður um garð
gengin. Hins vegar hafi Seðla-
bankinn lagst gegn málinu í
umsögn sinni.
Kaupþing sótti um það í haust
að fá að færa bókhald sitt í
evrum. Samkvæmt reglugerð sem
tók gildi fyrir tæpu ári, þarf
Seðlabankinn að veita umsögn um
þessi mál þegar banki á í hlut.
Kaupþing hefur kært niðurstöð-
una til fjármálaráðuneytisins.
- ikh / Sjá Markaðinn
Umsögn Seðlabankans:
Kaupþing kærir
evruskráningu
til ráðuneytis
BJARGAÐ Tólf manns var hjálpað út úr íbúðum sínum í Jórufelli í Breiðholti í gær. Bæði var fólkið flutt niður í stiga og með
körfubíl, auk þess sem nokkrir fengu fylgd niður stigaganginn með svokölluðum björgunarmöskum. Kveikt var í rusli í stigagangi
hússins og var allt tiltækt slökkvilið sent á staðinn. Sjá síðu 2
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R