Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 1

Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI > Markaðurinn Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ... FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG 225 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 9. janúar 2008 – 1. tölublað – 4. árgangur 12-13 Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 F R É T T I R V I K U N N A R www.lausnir.is fi nndu rétta tóninn… www.trackwell .com Tíma- og verkskráning fyrir starfsmenn og tæki FORÐASTÝRING Nordic Partners í matvæl- in Íslenska fjárfestingarfélagið Nordic Partners keypti Hamé, stórt matvælafyrirtæki í Mið- og Austur-Evrópu. Starfsmenn Hamé eru um þrjú þúsund og veltan í fyrra nam sautján millj- örðum íslenskra króna. Kaup- verð er trúnaðarmál. Wessmann tekur stjórnarsæti Róbert Wessman, eigandi fjár- festingarfélagsins Salts og for- stjóri Actavis, hyggst fara fram á sæti í stjórn Glitnis á næsta hlut- hafafundi, en Salt keypti á dögun- um tveggja prósenta hlut í Glitni fyrir um 7,5 milljarða króna. Nótt hinna löngu hnífa Banka- stjóra og tveimur lykilstarfs- mönnum Icebank var óvænt sagt upp um áramótin. Stjórnarfor- maður og nýráðinn bankastjóri segja breytingar á framkvæmda- stjórn eiga sér eðlilegar skýr- ingar. Undirmarkaður í Kauphöll- inni Nýr markaður fyrir ýmis hlutabréfatengd réttindi var opn- aður í Kauphöllinni, OMX Nordic Exchange Iceland, í gær. Í við- skiptakerfi Kauphallarinnar ber nýi markaðurinn heitið „OMX ICE Equity Rights“. 600 milljarða gjalddagi Fram kom að alls væru rúmlega 600 milljarðar íslenskra króna á gjalddaga hjá bönkunum á árinu 2008. Verg landsframleiðsla árið 2006 nam tæplega tólf hundruð milljörðum, svo það sem bank- arnir greiða nemur ríflega helm- ingi þess. „Ég tek sætinu með brosi á vör ef eftir því verður kallað,“ segir Orri Hauksson, talsmaður Novators í Finnlandi, „en aðalmálið er að ná í gegn breyting- um í þágu hluthafanna.“ Novator vill fá tvo stjórnarmenn í finnska fjar- skiptafélaginu Elisa á hluthafafundi sem haldinn verður 21. þessa mánaðar. Novator hefur lagt til ýmsar breytingar á Elisa. Novator er stærsti hluthafinn í Elisa og á yfir 11,5 prósenta hlut í félaginu. Björgólfur Thor Björgólfsson segir í viðtali við finnska dagblaðið Helsingin Sanomat að Orri verði annar fulltrúa félagsins, fáist menn í stjórn. Hinn fulltrúi Novators verði annar Íslendingur eða Breti. Orri Hauksson hefur starfað fyrir Novator um skeið en áður vann hann fyrir Símann, auk þess að hafa verið aðstoðarmaður forsætisráðherra. Novator hefur undanfarið aukið hlut sinn í félaginu. Finnskir lífeyrissjóðir og tryggingafélög sem eru andsnúin hugmyndum Novators um breytingar á félaginu hafa nýlega aukið hlut sinn. - ikh / Sjá síðu 16 Vilja Orra Hauksson í stjórnina Novator vill fá tvo stjórnarenn í finnska fjarskiptafélaginu Elisa. Ekki verður tekin ákvörðun um skráningu Promens í OMX kauphöll Íslands fyrr en undir lok þessa árs, að sögn Ragnhildar Geirs dóttur, for- stjóra félagsins. Upphaflega var stefnt að skráningu félagsins í Kauphöllina á síðasta ári, en þá voru horfur á að hægt yrði að skrá hér hluta- bréf í evrum líkt og félagið stefnir á að gera. Ragnhildur segir þó að núna séu það erfiðar markaðsaðstæður sem ráði því að forsvarsmenn félags- ins vilji bíða og sjá hver þróunin verður áður en næstu skref verða tekin. Þá verður að öllum líkind- um heldur ekki fyrr en undir mitt ár sem hægt verður að skrá hluta- bréf í evrum, samkvæmt upplýs- ingum frá Verðbréfaskráningu. - óká / Sjá síðu 18 Skráningu Promens frestað RAGNHILDUR GEIRSDÓTTIR Ingimar Karl Helgason skrifar „Hingað í fjármálaráðuneytið hafa borist kærur vegna synjunar á beiðni um uppgjör í erlendri mynt,“ segir Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra. Samkvæmt heimildum Markaðarins synjaði Árs- reikningaskrá beiðni Kaupþings um heimild til að gera bókhald sitt upp í evrum. Í kjölfarið vísaði Kaupþing málinu til fjármálaráðherra. Kaupþing sótti um heimild til uppgjörs í evrum í fyrra. Ársreikningaskráin tekur slíkar ákvarðanir. Sam- kvæmt reglugerð, sem tók gildi um miðjan febrúar í fyrra, þarf Ársreikningaskráin að leita umsagn- ar Seðlabankans áður en hún samþykkir eða synjar slíkum beiðnum, þegar banki á í hlut. Ársreikningaskráin er innan vébanda ríkissak- sóknara. Hann tjáir sig hvorki um niðurstöðu Árs- reikningaskrár né umsögn Seðlabankans. Bankastjórn Seðlabankans vísar á ríkisskatt- stjóra um málið. Skilyrðin fyrir því að fá að gera bókhald sitt upp í erlendri mynt koma fram í annarri grein reglu- gerðarinnar. Þau eru að félag hafi meginstarfsemi sína erlendis í erlendum gjaldmiðli. Það eigi erlend dótturfélög eða hlutdeild í erlendum félögum og meginviðskipti við þau séu í erlendri mynt. Félag hafi meginstarf- semi hér á landi en hafi meirihluta tekna sinna frá erlendum aðilum, í erlendri mynt. Þá þarf félag að vera af tiltekinni stærð. Kaupþing virðist uppfylla öll skilyrði reglugerðar- innar. Vera má að umsögn Seðlabankans um beiðni Kaupþings hafi verið neikvæð eða að formgalli hafi verið á beiðninni. Hvorugt fæst staðfest. Talsmaður Kaupþings vildi það eitt segja að beðið sé niðurstöðu fjármálaráðuneytisins. Eftir því sem Markaðurinn kemst næst er búist við því að úrskurðað verði í málinu í þessum mán- uði. Straumur-Burðaráss hefur leyfi til að færa bók- hald sitt í erlendri mynt og hefur gert það um nokk- urra mánaða skeið. Straumur sótti um þetta og fékk beiðni sína afgreidda áður en reglugerðin um um- sögn Seðlabankans var sett. Kaupþing kærir til ráðherra vegna evru Seðlabankinn veitir Ársreikningaskrá umsögn um beiðni banka til að færa bókhald í evru. Hún synjaði beiðni Kaupþings um það. Bankinn kærði til fjármálaráðherra. Mikil sala lúxusvarnings Kampavínið flæddi sem aldrei fyrr Allt loft úr bankabólunni Framhaldið með öllu óráðið Stórveldin slást Man. Utd ríkast á ný Sími: 512 5000 MIÐVIKUDAGUR 9. janúar 2008 — 8. tölublað — 8. árgangur VEÐRIÐ Í DAG HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Ármúla 42 · Sími 895 8966 Lærðu kínversku áskemmtilegan hátt Námskeið byrjar 13. janúar Sæmundur Kristjánsson matreiðslumeistari naut hátíðanna í dýrindis jólakúlu ítölsku Alpanna. „Ég var svo lánsamur að vera í hópi 200 Íslendinga sem Árni Sæmundsson smalaði saman í jólaskíðaferð til fjallaþorpsins Santa Katarina í ítölsku Ölpunum, en þar hefur skíðaferðamennska legið niðri um langa hríð þar til nú að uppbygging er hafin aftur. Við vígð- um þar spánnýtt hótel og áttum fjöllin ein, því enn er staðurinn laus við massatúrisma en fullur af frið- sæld, fámenni og fegurð,“ segir Sæmundur Kristj- ánsson, eigandi veitingastaðanna Á næstu grösum, sem í þessari ferð eyddi jólum fjarri Íslandsbyggð í fyrsta sinn. „Santa Katarina stendur í þjóðgarðar kó boði á hverjum stað, og þarna skorti ekkert upp á hátíðleikann eða velgjörning í mat og drykk,“ segir Sæmundur og rifjar upp aðfangadag í skíðabrekkun- um. „Þarna vorum við frúin og krakkarnir að skíða í frábæru færi þegar klukkan sló fjögur og við sögðum börnunum að nú væri aðfangadagur jóla. Þvílík for- réttindi; ekkert stress, bara friður og kyrrð í fjall- garðinum, og jólin að koma. Svo dóluðum við okkur niður brekkurnar til að fara í jólabaðið og borða jóla- matinn á hótelinu, og héldum síðar um kvöldið lítil jól í okkar vistarverum þar sem við opnuðum fáeina pakka og höfðum það notalegt saman,“ segir Sæmund- ur sem er alveg til í að sleppa takinu á í l jólum aftur til að k Skíðað í jólakorti BENSÍNIÐ SPARAÐRunólfur Ólafsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda kann ýmis ráð til að spara eldsneyti. Hann ráðleggur fólki meðal annars að aka á löglegum hraða. BÍLAR 2 MISSTI AF FLUGIReynir Freyr Reynisson lagðist í þriggja vikna lestarferðalag um Evrópu fyrir tveimur árum, eftir að hafa misst af flugi heim frá Róm. FERÐIR 3 Sæmundur Kristjánsson er eigandi veitingahússins Á Næstu grösum og naut þess að láta stjana við sig í mat og drykk í ítölsku Ölpunum yfir hátíð-arnar á milli þess sem hann skíðaði í púðursnjó ofan við fjallaþorpið Santa Katarina. FR ÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Laugavegi 51 • s 5 nýir bílarMIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 Skoda Fabia CombiNýjasta afurðin frá Skoda þykir vera vönduð, stílhrein og laus við prjál. BLS. 8 ...ég sá það á visir.is SÆMUNDUR KRISTJÁNSSON Naut jólahátíðarinnar í ítölsku Ölpunum ferðir bílar Í MIÐJU BLAÐSINS Langar heim Sigfús Sigurðsson vill flytja aftur heim til Íslands af því að hann saknar sonar síns. ÍÞRÓTTIR 30 Brennandi áhugi nauðsynlegur Kristinn Óskarsson dæmdi þúsundasta leikinn fyrir KKÍ. TÍMAMÓT 22 Vegið að lýðræðinu „Er það lýðræði að einstaklingur setjist í forsetastól með stuðningi minnihluta þjóðar og sitji þar í áskrift án kosninga til eilífðar- nóns?“ spyr Ástþór Magnússon. UMRÆÐAN 20 Tímarnir okkar á vínyl Sprengjuhöllin gefur út vínyl- plötu og heldur í vinnubúðir. FÓLK 28 EGILL „GILLZENEGGER“ EINARSSON Stendur í ströngu með Mercedes Club Hörð átök í lyftingasalnum fyrir Eurovision. FÓLK 34 NÝIR BÍLAR Toyota Land Cruiser, bíllinn sem beðið var eftir Sérblað um nýja bíla FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG SKÚRIR EÐA ÉL - Í dag verður fremur hæg breytileg átt en þó strekkingur vestast á Vestfjörðum. Víða lítilsháttar skúrir eða él nú með morgninum en styttir upp á austurhluta landsins um hádegi. Hiti nálægt frostmarki með strönd- um. VEÐUR 4       VÍSINDI Hin fullkomna lausn á því hvernig spila eigi damm án þess að tapa er ein af tíu merkilegustu uppgötvunum síðasta árs samkvæmt vísindatíma- ritinu Science. Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, fann lausnina ásamt teymi kanadískra vísindamanna, og er einn af aðalhöfundum greinar um lausnina sem birtist í tímaritinu í sumar. Listinn yfir tíu merkilegustu uppgötvanirnar var birtur á vefsíðu tímaritins, sem er eitt það virtasta í vísindaheiminum, í lok desember. Lausn Yngva og félaga lenti í tíunda sæti, á eftir uppgötvunum á borð við erfðamengjagreiningu, nýja tegund rafeindasnúnings, endurforritun frumna og notkun minninga til að spá fyrir um framtíðina. „Þetta er fyrst og fremst skemmtileg viðurkenn- ing, en hefur kannski ekki mikil áhrif,“ segir Yngvi. „Það var í sjálfu sér meiri viðurkenning að greinin um lausnina hafi verið birt í tímaritinu síðasta sumar, og hafði mun meiri áhrif. Þetta er eitt virtasta vísindatímarit heims og erfitt að fá greinar sínar birtar þar.“ Lausnin á dammtaflinu er ekki eina afrekið sem Yngvi vann í fyrra, en hann varð einnig heimsmeistari í gervigreind í fyrrasumar ásamt Hilmari Finnssyni, meistaranema í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Yngvi segir helsta lærdóminn sem draga megi af öllu þessu vera þann að Íslendingar þurfi ekki að hafa neina minnimáttarkennd þótt þjóðin sé fámenn og rannsóknarfjármagn oft af skornum skammti. „Við erum alveg fullgildir meðlimir í vísindasamfélag- inu, við þurfum ekki að hafa neina minnimáttar- kennd.“ - sþs Vísindatímaritið Science birtir lista yfir tíu stærstu uppgötvanir síðasta árs: Íslensk uppgötvun ein sú merkasta DR. YNGVI BJÖRNSSON SKIPULAGSMÁL Kostnaður Reykja- víkurborgar vegna friðunar hús- anna við Laugaveg 4 til 6 gæti numið hundruðum milljóna króna. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins munu eigendur lóðanna ekki selja þær fyrir minna en sex hundruð milljónir. Endurbygging húsanna getur síðan kostað allt að hundrað milljónir. Húsafriðunarnefnd samþykkti í gær að beina þeim tilmælum til menntamálaráðherra að húsin verði friðuð. Nefndin komst að þeirri nið- urstöðu að fyrirhugaðar byggingar á reitnum rýri varðveislugildi Laugavegs 2 og séu úr takti við þá götumynd sem húsin séu mikilvæg- ir hlekkir í. Menntamálaráðherra hefur aldrei hafnað tilmælum nefndar- innar um friðun húsa. Kaupangur eignarhaldsfélag hugðist rífa húsin og reisa í stað þeirra fjögurra hæða hótel. Öll til- skilin leyfi höfðu fengist til þess, meðal annars deiliskipulag frá 2002, samþykki byggingarfulltrúa fyrir niðurrifinu og byggingu hótelsins frá því í ágúst í fyrra og bygginga- leyfi til að rífa húsin frá 2. janúar síðastliðnum. Hefja átti niðurrif húsanna í síð- ustu viku, en því var frestað um tvær vikur svo hægt væri að flytja þau á annan stað. Í yfirlýsingu frá forsvarsmönn- um Kaupangs segir að með ólíkind- um sé að húsafriðunarnefndin taki sig nú til, eftir að hafa fylgst með undirbúningi við framkvæmdir á lóðinni undanfarin ár, og sendi ráð- herra beiðni um að friða húsin. „Verði slík ákvörðun tekin mun það leiða til þess að fjárfesting og kostnaður sem nemur hundruðum milljóna króna ónýtist og bóta- skylda skapast sem lendir á skatt- greiðendum,“ segir í yfirlýsing- unni. Undir hana skrifa Bjarki Júlíusson og Jóhannes Sigurðsson. Nákvæmari tölur um upphæð bótakröfunnar fengust ekki hjá eig- endum Kaupangs. Jón Guðmunds- son, fasteignasali og eigandi Fast- eignamarkaðarins, segir ljóst að sú tala verði ekki undir sex hundruð milljónum króna. Þá telji hann ekki með uppkaup á eignum í kringum lóðirnar við Laugaveg, sem Kaup- angur hafi keypt vegna fram- kvæmdanna. Nikulás Úlfar Másson, formaður húsafriðunarnefndar, segir að ákvörðunin sé vissulega tekin á seinustu stundu en samkvæmt alþjóðlegum samþykktum um verndun menningararfsins sé aldrei of seint að friða hús meðan þau standi enn uppi. Þorsteinn Bergsson, fram- kvæmdastjóri Minjaverndar, segir erfitt að meta kostnað við endur- byggingu húsanna, en gróflega megi áætla að hann sé hátt í hundr- að milljónir króna. - sþs Friðun gæti kostað borgina hundruð milljóna króna Húsin við Laugaveg 4 til 6 verða friðuð samkvæmt tillögu húsafriðunarnefndar. Eigendur segjast munu krefjast hundruð milljóna í skaðabætur ef af því verður. Með ólíkindum sé að friða eigi húsin nú. VIÐSKIPTI Seðlabankinn leggst gegn því að Kaupþing fái að færa bók- hald sitt í evrum í umsögn sinni til Ársreikningaskrár. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins vildi Ársreikningaskrá heimila bankanum að færa bókhaldið í evrum, en þó með því skilyrði að svo yrði ekki fyrr en yfirtaka bankans á hollenska bankanum NIBC verður um garð gengin. Hins vegar hafi Seðla- bankinn lagst gegn málinu í umsögn sinni. Kaupþing sótti um það í haust að fá að færa bókhald sitt í evrum. Samkvæmt reglugerð sem tók gildi fyrir tæpu ári, þarf Seðlabankinn að veita umsögn um þessi mál þegar banki á í hlut. Kaupþing hefur kært niðurstöð- una til fjármálaráðuneytisins. - ikh / Sjá Markaðinn Umsögn Seðlabankans: Kaupþing kærir evruskráningu til ráðuneytis BJARGAÐ Tólf manns var hjálpað út úr íbúðum sínum í Jórufelli í Breiðholti í gær. Bæði var fólkið flutt niður í stiga og með körfubíl, auk þess sem nokkrir fengu fylgd niður stigaganginn með svokölluðum björgunarmöskum. Kveikt var í rusli í stigagangi hússins og var allt tiltækt slökkvilið sent á staðinn. Sjá síðu 2 FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.